„Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Enn hefur ekki fundist skýring á því hvernig stærðarinnar, og kryddað, lambalæri og svo seinna steikarsneiðar og flatkökur enduðu í móa við Hafravatn, langt frá næstu mannabyggð. Kona sem var á hlaupaæfingu í aðdraganda Reykjavíkurmaraþonsins og uppgötvaði matinn þegar hundarnir hennar tveir þefuðu hann uppi segist ekki halda að lærið hafi verið eitrað en skilur hvorki upp né niður í því hvernig það endaði á þessum slóðum. 7.7.2026 15:21
Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Móðir fjögurra ára gamals drengs sem fannst látinn í bænum Wyong í suðvesturhluta Ástralíu á laugardag, þann 4. júlí, hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald og ákærð fyrir morðið á syni sínum. Lögregla rannsakar nú hvort mannát hafi átt sér stað í tengslum við atvikið en barnaverndaryfirvöld í fylkinu hafa einnig hafið sjálfstæða rannsókn vegna tilkynninga sem þeim bárust fyrir andlátið. 7.7.2026 10:41
Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Eigandi hunds sem fannst dauður við Langjökul á dögunum er enn ófundinn. Fjölmargir hafa þegar sett sig í samband við sjálfboðaliðasamtökin Dýrfinnu. Meðal þess sem þeim hefur borist var ábending um hund sem týndist fyrir tæpum fjörutíu árum. Hann var ekki með eins litaða ól og sá sem fannst og er því útilokað að um sama hund sé að ræða. 6.7.2026 16:43
Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Rannsókn stendur enn yfir eftir að öldruð kona féll fram af svölum á Eir hjúkrunarheimili í Grafarvogi sunnudaginn 28. júní með þeim afleiðingum að hún lést. Andlátið hefur verið rannsakað sem slys og verður það áfram nema eitthvað óvænt komi í ljós í niðurstöðum krufningar. 6.7.2026 14:39
Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Tvö áþekk innbrot voru framin í byrjun sumars, fyrst í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudagsins 11. maí en síðar í Reykjabú í Mosfellsbæ, þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar, aðfaranótt mánudagsins 1. júní. Rannsókn beggja mála er ólokið og hefur enginn verið handtekinn en lögreglan hefur leitað að vitnum síðan í upphafi júní. 6.7.2026 13:58
Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Um helmingur þýfisins sem var stolið af vinnustofu Karenar Briem og Antons Lyngdal aðfaranótt laugardagsins, 4. júlí, hefur ratað aftur heim en aðeins annar þjófurinn hefur verið handsamaður. Hugleikur Dagsson, grínisti og eiginmaður Karenar, rifjaði það upp í viðtali á Vísi að Bubbi Morthens hafi aðstoðað sig við að endurheimta harðan disk fyrir um áratug síðan en hann hefur ekki enn verið ræstur út þessa ferðina. 6.7.2026 11:56
Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Brúðulistahátíðin HIP-fest (Hvammstangi international puppetry festival) var haldin í fimmta sinn dagana 26., 27. og 28. júní en þátttakendur í ár voru frá jafn mörgum mismunandi löndum. Handbendi brúðuleikhús stendur fyrir hátíðinni en gestir ferðuðust sumir víða að, þar á meðal frá Havaí, Kína og Finnlandi. 6.7.2026 10:02
Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Hugbúnaðarfræðingur sem hefur síðustu sex ár unnið að og þróað Kattaskránna leggur nú lokahönd á nýtt app sem hann er hægt að hlaða niður í gegnum glænýjan kattarvef. Þar er hægt að haka við að kisa sé týnd og fá þá „kattavinir“ í nágrenninu skilaboð í símann sinn um týndu kisuna. Ríflega tvö þúsund kisur eru þegar skráðar í gagnagrunn Kattaskránnar og hafa bæði dýralæknar og lögreglan leitað í grunninn við mál sem snúa að köttum. 4.7.2026 15:03
„Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Kántrísöngkonan Dolly Parton var ein þeirra sem hlutu styrk frá þeim Taylor Swift og Travis Kelce en stjörnuparið hefur verið saman í um þrjú ár. Þrátt fyrir að það hafi að mestu leyti tekist að halda undirbúningi brúðkaups þeirra úr fjölmiðlaumfjöllun hafa sumar bandarískar fréttastofur greint frá því að hátíðarhöldin hafi hafist í gærkvöldi og að parið gifti sig á næstu dögum. 3.7.2026 17:26
Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals Forstjóri Hvals hf. hefur sent Matvælastofnun fyrirspurn um það hvort eftirlitsskýrslur varðandi hvalveiði fyrirtækisins hafi verið afhentar þriðja aðila. Hann telur aðgerðarsinna á skipinu Bandero hafa nýtt skýrslurnar sem ógni öryggi starfsmanna Hvals og geri fyrirtækinu erfitt fyrir um veiðar á gjöfulum miðum. 3.7.2026 16:50