Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Hundur hefur fundist dauður við Lang­jökul

Hundur hefur fundist dauður vestanmegin við Langjökul en ekki er víst hvort hann lá í jöklinum sjálfum og sé að koma undan núna í hlýnandi veðri eða hvort hann hafi legið á ísnum eða við jaðar jökulsins. Ekki er hægt að meta tegund né lit á feldi vegna mikils niðurbrots en hundurinn virðist vera af meðalstærð.

Maður sem passaði við lýsinguna var hand­tekinn

Stunguárás sem varð á níunda tímanum í gærkvöldi, þann 2. júlí, er ekki talin tengjast skipulagðri glæpastarfsemi en mennirnir tveir sem um ræðir þekktust. Þá var greint frá því í gær að sérsveitin hafi verið kölluð til aðstoðar lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en svo sagt að snúa við.

Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum

Einn stærsti dagskrárliður Írskra daga er tónlistarviðburðurinn Lopapeysan sem samanstendur af sextán mismunandi tónlistaratriðum þetta árið og fer fram næsta laugardag, þann 4. júlí. Þeir Valdimar Ingi Brynjarsson og Hjörvar Gunnarsson voru árið 2024 ráðnir viðburðastjórar bæjarhátíðarinnar sem hefur verið haldin síðan árið 1999 og fer, rétt eins og vanalega, fram á Akranesi nú á dögunum.

Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leður­blöku á and­litinu

Ellefu ára kanadískur drengur lést úr hundaæði eftir að hafa vaknað við að leðurblaka var sest á andlit hans en atvikið átti sér stað árið 2024. Foreldrar drengsins leituðu með hann til læknis um tveimur vikum seinna þegar hann fór að finna fyrir doða og bólgu í andliti. Illa gekk að greina einkenni hans og á tímabili var gert ráð fyrir að hann væri með svokallaða Bell-lömun og seinna herpes-munn- og gómsýkingu. Þegar hann var loks greindur með hundaæði átti hann rétt rúmar tvær vikur ólifaðar.

Eldur braust út í fjöl­býlis­húsi og nokkrir eru látnir

Eldur kom upp í tíu hæða fjölbýlishúsi í belgísku borginni Antwerpen um klukkan átta í morgun en áætlað er að um tvö hundruð manns búi í húsinu. Þegar hafa nokkrir verið úrskurðaðir látnir en enn er leitað að fórnarlömbum. Meðal þeirra sem hefur verið bjargað úr húsinu er fyrrverandi borgarstjóri borgarinnar.

Renni­brautinni lokað og ljósin skoðuð

Ljósastýringar í rennibraut Laugardalslaugar eru yfirfarnar reglulega en stærsta rennibrautin er lokuð sem stendur vegna viðhalds. Síðasta laugardag, þann 27. júní, var kallað eftir aðstoð lögreglu vegna þess að drengjahópur fór niður rennibrautina á eftir manni með ungt barn með þeim afleiðingum að þeir lentu saman. Maðurinn veittist þá að drengjunum og í kjölfarið fór einn þeirra á slysadeild í fylgd forráðamanna.

Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést

Rannsókn stendur yfir hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eftir að öldruð kona féll fram af svölum á hjúkrunarheimili í Reykjavík og lést. Forstjóri segir um hörmulegt slys að ræða og að hann viti ekki til þess að annað eins hafi gerst á hjúkrunarheimilinu. 

Hall­dór Haralds­son er látinn

Halldór Haraldsson, píanóleikari og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík, lést í gær, þann 29. júní, þá 89 ára gamall. Foreldrar hans voru Haraldur Halldórsson og Hólmfríður Gísladóttir en hann lætur eftir sig eiginkonu, tvö börn, barnabörn og barnabarnabörn. 

Tíma­mót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“

Skólastjóri Klettaskóla er spennt fyrir flutningum á hluta starfsemi skólans úr Hlíðunum í Reykjavík í Staðahverfi í Grafarvogi. Kærkomið verði að færa frístund nemenda á miðstigi nær skólanum og rýmka almennt um starfsemina sem hafi sprengt húsnæðið algjörlega utan af sér.

Spiluðu þjóð­sönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land

Hvalveiðiskipið Hvalur 8 dró tíunda hval veiðivertíðarinnar að landi á öðrum tímanum í dag en þjóðsöngur Íslands var spilaður í hátalarakerfi á höfninni meðan á verkinu stóð. Þá mátti heyra menn hrópa „áfram Ísland“ og tók einn starfsmaður Hvals sig til og sveiflaði getnaðarlim hvalsins að tökumanni fréttastofunnar.

Sjá meira