Sigurjón dæmdur í skilorðsbundið fangelsi Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, var í dag dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi í Hæstarétti í endurupptöku á svokölluðu Ímon-máli. Elínu Sigfúsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, var ekki gerð sérstök refsing. 12.3.2021 13:10
Bjargar erfðafræðin dæmdum raðmorðingja?: Fékk 30 ára dóm fyrir að myrða börnin sín en vísindamenn segja hana saklausa Níutíu virtir vísindamenn og læknar hafa skrifað undir áskorun til ríkisstjóra Nýju Suður-Wales og skorað á hann að náða Kathleen Folbigg og láta hana umsvifalaust lausa. 12.3.2021 12:10
Fleiri kosið nú en í formannskjörinu 2017: Kosning stendur yfir til kl. 12 á morgun Klukkan tíu í morgun höfðu 7.447 greitt atkvæði í allsherjaratkvæðagreiðslu til formanns og stjórnar VR. Um 35.900 eru á kjörskrá og kosningaþátttaka hefur því náð 20 prósentum en hún var 17 prósent þegar kosið var til formanns árið 2017. 11.3.2021 11:56
Íslenska ríkið greiðir Aldísi bætur vegna skjals sem lögregla útbjó fyrir Jón Baldvin Íslenska ríkið hefur samþykkt að greiða Aldísi Schram 1,2 milljón króna í miskabætur og 400 þúsund króna í málskostnað vegna ákvörðunar Persónuverndar, sem komst að þeirri niðurstöðu að embætti Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hefði brotið gegn lögum með því að miðla upplýsingum um Aldísi til föður hennar. 10.3.2021 22:38
Brúnt vatn og óætur matur: Líkir fangavistinni við pyntingar Það er niðurlægjandi hvernig farið er með Ghislaine Maxwell í fangelsinu í New York, segir bróðir hennar Ian Maxwell. Hann líkir fangavistinni við pyntingar en Maxwell hefur verið sökuð um að hafa útvegað vini sínum Jeffrey Epstein stúlkur undir lögaldri. 10.3.2021 21:56
Hundruð bólusettra barna í Ísrael upplifðu engar alvarlegar aukaverkanir Um 600 ísraelsk börn á aldrinum 12 til 16 ára sem voru bólusett gegn Covid-19 með bóluefni Pfizer upplifðu engar alvarlegar aukaverkanir. Ungmenni eru almennt ekki bólusett en yfirvöld í landinu hafa mælt með bólusetningu einstaklinga í áhættuhópum. 10.3.2021 21:08
Sjö skjálftar yfir 3 á áttunda tímanum Frá því kl. 19.22 hafa sjö skjálftar yfir 3 mælst á Reykjanesskaga. Röðin hófst með skjálfta upp á 3,6 en nýjasti skjálftinn, sem mældist kl. 19.49 var 3,7. 10.3.2021 20:19
Fær útborgunina aftur jafnvel þótt bæði hafi verið skráð eigendur 50 prósenta hlutar Héraðsdómur Reykjaness hefur komist að þeirri niðurstöðu að maður eigi heimtingu á að fá útborgun í íbúð endurgreidda við sölu hennar í kjölfar sambandsslita, jafnvel þótt hann og sambýliskona hans hafi verið skráð fyrir jafn stórum hlut. 10.3.2021 20:04
„Það er enn vetur á Íslandi“: Kjalarnesvegur lokaður til 6 í fyrramálið hið minnsta Vegurinn um Kjalarnes er enn lokaður vegna lélegs skyggnis og verður þar til í fyrramálið. Þetta kemur fram í tísti Vegagerðarinnar. 10.3.2021 19:15
Freistaði þess að stela vörum fyrir um 46 þúsund krónur Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust í dag fjórar tilkynningar um þjófnað í verslunum og þá var tilkynnt um innbrot í húsnæði í póstnúmeri 220, þar sem fatnaði og raftækjum var stolið. 10.3.2021 18:36