Kynferðisbrota- og heimilisofbeldismál verða ekki undir í vinnu Jóns Steinars Vinna Jóns Steinars Gunnlaugssonar fyrir dómsmálaráðuneytið mun ekki snúa að málaflokkum er varða kynferðisbrot eða heimilisofbeldi. Þetta staðfestir Áslaug Arna Sigurbjörsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við Vísi. 9.3.2021 18:24
Segja dómsmálaráðherra senda konum kaldar kveðjur Kvenréttindafélag Íslands og Stígamót segja Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra senda konum kaldar kveðjur með því að fela Jóni Steinari Gunnlaugssyni að vinna að nauðsynlegum umbótum í réttarkerfinu. 9.3.2021 17:38
„Ekki fallegt ásýndar“ að reyna að svindla sér framar, segir Kári „Það er sérstaklega ógnvekjandi að vita af þessum tveimur sem greindust utan sóttkvíar en ég hef fulla trú á því að okkur takist að ná utan um þetta og ég reikna ekki með að þetta verði stór bylgja,“ sagði Kári Stefánsson, forstjóri deCODE, í samtali við Reykjavík síðdegis í dag. 9.3.2021 17:19
„Hann gerði þetta ekki“: Íslendingur sakaður um að hafa myrt fjögurra manna fjölskyldu „Ég veit ekki hvað ég á að segja, ég trúi ekki að þetta sé að gerast,“ segir Nikolina Grnovic en faðir hennar Savo var handtekinn í Frankfurt á fimmtudag. Hann er sakaður um að hafa myrt fjögurra manna fjölskyldu árið 1991. 6.3.2021 14:32
Öllum stafar ógn af ríkjum í afneitun og feluleik Þrjú ríki virðast í afneitun eða feluleik þegar kemur að Covid-19 og hafa ekki deilt upplýsingum um stöðu mála. Umrædd ríki eru Tansanía, Túrkmenistan og Norður-Kórea en sérfræðingar segja áhyggjuefni að SARS-CoV-2 fái mögulega að grassera óáreitt á ákveðnum stöðum. 5.3.2021 14:28
Mannapar í San Diego bólusettir gegn Covid-19 Níu mannapar í dýragarðinum í San Diego hafa verið bólusettir gegn Covid-19. Um er að ræða fjóra órangúta og fimm simpasa, sem hafa fengið tvo skammta af bóluefni frá Zoetis, fyrirtæki sem framleiðir lyf fyrir dýr. 5.3.2021 12:38
Reykjavíkurborg telur kristinfræðifrumvarp ekki til að auka víðsýni og efla mannskilning Reykjavíkurborg er „alfarið á móti þeirri nálgun að heiti námsgreinarinnar trúarbragðafræði verði breytt í kristinfræði og trúarbragðafræði og telur þá aðferð ekki til þess fallna að styðja við víðsýni og efla mannskilning.“ 5.3.2021 11:41
Skipuleggjendur sumarhátíða eru bjartsýnir á þróun mála Ef bólusetningar ganga jafn vel hérlendis og vonir standa til, eru skipuleggjendur bjartsýnir á að geta blásið til sumarhátíða. Þeir segjast þó hafa lært að gera ráð fyrir öllum mögulegum útkomum og eru við öllu búnir. 5.3.2021 10:10
Áætla að hefja bólusetningar 70 ára og eldri í næstu viku Til stendur að bólusetja 7.000 einstaklinga í þessari viku og sama fjölda í næstu viku, segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Hann segir gert ráð fyrir að í næstu viku hefjist bólusetning einstaklinga á aldrinum 70 til 80 ára. 4.3.2021 11:39
Einn greinst með suður-afríska afbrigðið Einn hefur greinst með suður-afríska afbrigði SARS-CoV-2 hér landi, það var fyrir fjórum dögum. Um var að ræða smit á landamærunum. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi vegna Covid-19 rétt í þessu. 4.3.2021 11:14