Einn stærsti hluthafinn losaði um hlut sinn í Coripharma Framtakssjóðurinn TFII, meðal annars einn stærsti fjárfestirinn í Coripharma um árabil, seldi nánast allan eignarhlut sinn í samheitalyfjafyrirtækinu til eigin hluthafa, einkum lífeyrissjóða. Sjóðurinn, sem hafði glímt við rekstrarerfiðleika um nokkurt skeið og sleit samstarfi sínu við Íslensk verðbréf snemma árs í fyrra, tapaði meira en 900 milljónum á árinu 2023 og náði samkomulagi við hluthafa um að leggja honum til aukið fjármagn. 7.5.2024 15:41
Seðlabankinn haldi raunaðhaldinu þéttu á meðan „verkið er óklárað“ Þótt verðbólgan sé að ganga niður þá er hún enn fjarri markmiði en peningastefnunefnd Seðlabankans hefur verið skýr um að vilja bíða eftir trúverðugum vísbendingum um að sú þróun haldi áfram, sem eru ekki komin fram, áður en ráðist verður í lækkun vaxta og mun því halda á meðan raunaðhaldinu þéttu, að mati markaðsaðila og hagfræðinga í vaxtakönnun Innherja. Samstaða er um það að vaxtastiginu verði haldið óbreyttu til næstu fimmtán vikna en stóra spurningin er hver framsýna leiðsögnin verður – og telja sumir að bankinn þurfi að senda sterk skilaboð um mikið aðhald í peningastefnunni næstu misserin. 6.5.2024 11:21
CRI hefur greitt upp allar skuldir og hraðar ráðningum á öllum sviðum Íslenska hátæknifyrirtækið CRI, sem framleiðir metanól úr koltvísýringi og vetni, segist vera í „einstakri stöðu“ samhliða því að félagið er að fara inn í vaxtarskeið en fyrirséð er að eftirspurn eftir grænu metanóli sem skipaeldsneyti muni aukast um milljónir tonna á komandi árum. Eftir að hafa klárað milljarða fjármögnun um mitt síðasta ár, leidd af norska orkurisanum Equinor, er CRI orðið skuldlaust og boðar núna miklar ráðningar á öllum sviðum starfseminnar. 5.5.2024 11:51
Kallar eftir útlistun aðgerða hvernig eigi að sporna við minni framleiðnivexti Það er „ánægjulegt“ að stjórnvöld áformi að bregðast við minnkandi vexti í framleiðni vinnuafls á undanförnum árum, sem hefur neikvæð áhrif á sjálfbærni opinberra fjármála, með því að setja meiri áherslu á þær atvinnugreinar sem skila hærri framleiðni, að sögn Fjármálaráðs. Í nýrri fjármálaáætlun er hins vegar sagður vera skortur á útlistun aðgerða hvernig eigi að ná því markmiði en hagvöxtur á Íslandi virðist um nokkurt skeið einkum hafa verið drifin áfram af fjölgun starfsfólks í þeim greinum sem greiða að jafnaði lægri laun en almennt þekkist. 4.5.2024 11:33
Hagnaður stóru sjóðastýringarfélaganna minnkaði eftir erfitt ár á mörkuðum Samanlagður hagnaður fjögurra stærstu sjóðastýringarfélaga landsins minnkaði um þrettán prósent á síðasta ári sem einkenndist af krefjandi aðstæðum á flestum eignamörkuðum fyrir fjárfesta. Afkoma Kviku eignastýringar, sem er í eigu samnefnds banka, dróst mest saman, eða um liðlega helming á milli ára. 30.4.2024 11:27
Stjórnvöld vilja ekki bjóða erlendum fjárfestum upp á sérstöðu Íslands Ef það er raunverulega markmiðið að auka beina erlenda fjárfestingu og skapa umhverfi sem eflir hlutabréfamarkaðinn þá væri réttast að selja minnihluta í Landsvirkjun samhliða skráningu á markað og eins opna meira á erlent eignarhald í sjávarútvegi, að mati framkvæmdastjóra eins stærsta lífeyrissjóðs landsins. Þótt Kauphöllin fari stækkandi þá endurspegli hún ekki vel íslenska hagkerfið á meðan stjórnvöld halda verndarhendi yfir þeim atvinnugreinum sem eru með sérstöðu á heimsvísu. 18.4.2024 06:30
Lífeyrissjóðir stækkuðu stöðuna í Marel og fara með um 40 prósenta hlut Íslensku lífeyrissjóðirnir, einkum þeir stærstu, juku lítillega við hlutabréfastöðu sína í Marel í fyrra á afar sveiflukenndum og krefjandi tímum á markaði en að teknu tilliti til óbeins eignarhlutar í Eyri Invest fara sjóðirnir núna með samanlagt um fjörutíu prósenta hlut í félaginu. Bandaríska fyrirtækið JBT áformar að gera formlegt yfirtökutilboð í Marel í næsta mánuði en það er meðal annars háð skilyrði um samþykki að lágmarki 90 prósent hluthafa. 17.4.2024 11:33
Ráðherra skipaði fyrrverandi aðallögfræðing Seðlabankans í stjórn SKE Sigríður Logadóttir, sem var meðal annars aðallögfræðingur Seðlabanka Íslands um árabil, hefur nýlega verið skipuð af viðskiptaráðherra í stjórn Samkeppniseftirlitsins. Meira en eitt ár er liðið frá því að drögum að skýrslu starfshóps um mögulega sameiningu eftirlitsins og Neytendastofu var skilað til ráðuneytisins en niðurstaða þeirrar vinnu hefur enn ekki verið opinberuð. 16.4.2024 10:16
Fyrirtæki í fiskþurrkun hagnaðist um vel á þriðja milljarð við söluna á Kerecis Fyrirtæki á Vestfjörðum, sem sérhæfir sig einkum í þurrkun fisks, hagnaðist um 2,5 milljarða þegar gengið var frá risasölu á Kerecis til Coloplast síðastliðið haust. Félagið Klofningur, sem hafði verið hluthafi í Kerecis í meira en áratug, greiðir bróðurpart söluhagnaðarins út í arð til eigenda sem eru önnur fyrirtæki og einstaklingar af svæðinu. 15.4.2024 09:40
Spáir því að vextir haldist áfram háir þrátt fyrir „hóflega“ kjarasamninga Þrátt fyrir að heldur sé að draga úr þenslu í hagkerfinu er ólíklegt að „hóflegir“ kjarasamningar muni stuðla að því að hraðar dragi úr verðbólgu, að mati Hagfræðistofnunar, sem spáir því að húsnæðisverð muni hækka um liðlega tíu prósent í ár. Gert er ráð fyrir því að meginvextir Seðlabankans muni haldast áfram háir, jafnvel hækka frekar, sem skýrist einkum af miklum umsvifum í ferðaþjónustu. 12.4.2024 11:49