ACRO hagnast um 600 milljónir eftir tugprósenta tekjuaukningu í fyrra ACRO verðbréf skilaði metafkomu á árinu 2023 þrátt fyrir krefjandi aðstæður á mörkuðum, þar sem velta á hlutabréfamarkaði dróst talsvert saman, og áformar að greiða meira en sex hundruð milljónir í arð til eigenda félagsins. Á liðnu ári keyptu ACRO eigin bréf í tengslum við starfslok fyrrverandi hluthafa sem verðmat verðbréfafyrirtækið á ríflega einn milljarð. 12.4.2024 10:44
Oculis að klára milljarða hlutafjárútboð og áformar skráningu í Kauphöllina Augnlyfjaþróunarfyrirtækið Oculis, stofnað af tveimur íslenskum prófessorum, er núna á lokametrunum með að klára stóra hlutafjáraukningu frá meðal annars íslenskum fjárfestum og setur stefnuna í kjölfarið á skráningu í Kauphöllina hér heima. Félagið yrði þá tvískráð – því var fleytt á markað í Bandaríkjunum fyrir rétt rúmlega einu ári – en það er í dag með markaðsvirði upp á liðlega sextíu milljarða króna. 11.4.2024 12:14
Erum frekar að fá til okkar skuldabréfafjárfesta sem horfa til langs tíma Þær takmarkanir sem eru á framvirkum gjaldeyrisskiptasamningum útilokar í reynd að erlendir skuldabréfasjóðir geti farið að eiga í vaxtamunarviðskiptum af þeirri stærðargráðu sem var á árunum fyrir bankahrun, að sögn seðlabankastjóra. Innflæði fjármagns í íslensk ríkisbréf hefur aukist stöðugt að undanförnu og nemur yfir 40 milljörðum á síðustu sex mánuðum. 10.4.2024 17:23
Stærsti fjárfestirinn í frumútboði Ísfélagsins heldur áfram að bæta við sig Helstu íslensku lífeyrissjóðirnir í hluthafahópi Ísfélagsins hafa á undanförnum vikum og mánuðum haldið áfram að bæta við eignarhlut sinn í sjávarútvegsfyrirtækinu en það var skráð á markað undir lok síðasta árs. Sá fjárfestir sem var langsamlega umsvifamestur í frumútboði félagsins, Lífeyrissjóður verslunarmanna, hefur frá þeim tíma stækkað hlut sinn um meira en þriðjung í viðskiptum á eftirmarkaði. 9.4.2024 14:59
Vogunarsjóðum Akta reitt þungt högg eftir óvænt gengisfall Alvotech Ævintýralegar sveiflur hafa verið á gengi vogunarsjóða í stýringu Akta á undanförnum vikum samhliða hröðu risi og síðan falli á hlutabréfaverði Alvotech. Sjóðastýringarfélagið hefur lagt mikið undir á Alvotech, sem fékk undir lok febrúar langþráð samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum, en einn af flaggskipssjóðum Akta tók dýfu um nærri fimmtíu prósent á nokkrum viðskiptadögum þegar það fór að síga á ógæfuhliðina hjá líftæknilyfjafyrirtækinu á hlutabréfamarkaði. 9.4.2024 10:29
Bankarnir gætu þurft að hækka útlánakjör til að vega upp tapaðar vaxtatekjur Ákvörðun peningastefnunefndar um að hækka fasta vaxtalausa bindiskyldu í því skyni að láta lánastofnanir bera hluta af kostnaði sem fylgir gjaldeyrisforðanum mun að óbreyttu þýða tapaðar vaxtatekjur fyrir bankana, að sögn hagfræðings, sem bendir á að Seðlabankinn hafi sjálfur mikinn hag af stórum forða. Aðgerðin styður við peningalegt aðhald en áframhaldandi vöxtur í peningamagni er til marks um að umsvifin séu enn mikil í hagkerfinu. 6.4.2024 12:56
Vill að bankarnir beri einnig kostnað af ábata sem fylgir miklum gjaldeyrisforða Á sérstökum aukafundi sínum hefur peningastefnunefnd Seðlabankans ákveðið að hækka fasta bindiskyldu á lánastofnanir með það að markmiði að „dreifa betur“ kostnaði við að reka peningastefnuna og treysta fjármögnun gjaldeyrisforðans. Þetta er í annað sinn á innan við ári sem bindiskyldan er hækkuð sem að öðru óbreyttu ætti að minnka svigrúm banka til útlána en hlutabréfaverð þeirra hefur lækkað nokkuð eftir tilkynningu Seðlabankans. 4.4.2024 10:50
Fjárfestar tóku dræmt í skilaboð Alvotech um stóran sölusamning „á næstu vikum“ Skilaboð Alvotech um stöðuna í viðræðum vegna sölusamninga vestanhafs á stuttum kynningarfundi í hádeginu ollu nokkrum vonbrigðum meðal innlendra fjárfesta og féll hlutabréfaverð félagsins skarpt strax að afloknum fundi. Félagið segist vera á „lokastigi“ með að klára samning við einn stærsta söluaðilann í Bandaríkjunum vegna líftæknilyfjahliðstæðunnar Simlandi. 3.4.2024 14:19
Alvotech í mótvindi þegar eftirspurn innlendra fjárfesta mettaðist Gæfan hefur snúist hratt gegn hlutabréfafjárfestum í Alvotech sem hafa séð bréfin lækka um þriðjung eftir að félagið náði hinum langþráða áfanga að fá markaðsleyfi í Bandaríkjunum. Enn er beðið eftir að fyrirtækið ljúki stórum sölusamningum vestanhafs og væntingar um innkomu nýrra erlendra fjárfesta á kaupendahliðina hafa ekki gengið eftir. Skarpt verðfall síðustu viðskiptadaga framkallaði veðköll á skuldsetta fjárfesta en á sama tíma og búið er að þurrka út stóran hluta af hækkun ársins hafa erlendir greinendur tekið vel í uppfærða afkomuáætlun Alvotech og hækkað verðmöt sín á félagið. 3.4.2024 10:55
Gagnrýnir metarðgreiðslu og segir OR þurfa á „öllu fjármagni“ að halda Stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur gagnrýnir þá ákvörðun að greiða út nánast allan hagnað síðasta árs í arð til eigenda og segir hana ekki réttlætanlega með hliðsjón af afkomu fyrirtækisins, fjármögnunarkjörum þess á mörkuðum og stöðu orkumála almennt. Áform um hlutafjáraukningu með aðkomu nýrra fjárfesta að tveimur dótturfélögum OR hafa tafist nokkuð og hefur stjórnin af þeim sökum meðal annars hækkað brúarlán til Carbfix um meira en fjóra milljarða. 2.4.2024 11:49