Innherji

Eik talið veru­lega undir­verðlagt á markaði í nýrri greiningu

Hörður Ægisson skrifar
Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri Eikar.
Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri Eikar.

Eik er talið verulega undirverðlagt á markaði samkvæmt nýútgefinni frumskýrslu og er fasteignafélagið metið á ríflega sextíu prósent hærra verði en núverandi markaðsgengi. Kaupin á fasteignasafni Festingar, sem eru sögð á hagstæðari verðmargfaldara en önnur sambærileg viðskipti á undanförnum árum, eru talin geta orðið mikilvægur drifkraftur vaxtar hjá félaginu á komandi árum.


Tengdar fréttir

Eru ekki að sjá meðal­stór fyrir­tæki fara í vöxt við núverandi aðstæður

Afkoma Eikar undir lok síðasta árs var nokkuð umfram áætlanir greinenda en fasteignafélagið boðar jafnframt mikla aukningu í tekjum og rekstrarhagnaði í „metnaðarfullri“ spá sinni fyrir yfirstandandi ár. Stjórnendur segja hins vegar að meðalstór fyrirtæki séu ekki að fara í mikinn vöxt við núverandi efnahagsaðstæður og vanskil eru að mestu bundin við veitinga- og skemmtistaðarekstur sem eigi í erfiðleikum.

Kaup á tugþúsunda fer­metra eigna­safni mun hækka verðmatið á Eik

Lítillega meiri rekstrarhagnaður og lægra kaupverð en áður var áætlað í nýafstöðnum kaupum Eikar á tugþúsunda fermetra fasteignasafni sem hýsir starfsemi Samskipa á Íslandi mun hafa nokkuð jákvæð áhrif á verðmatsgengi félagsins, að sögn hlutabréfagreinanda, en síðast var það metið um 25 prósent yfir markaðsgengi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×