Kvika boðar sölu á TM og vill styrkja „verulega“ bankastarfsemina Aðeins 30 mánuðum eftir að Kvika og TM sameinuðust formlega hefur stjórn bankans ákveðið að hefja undirbúning að sölu eða skráningu á tryggingafélaginu, sem hefur verið sagt líklega hið „ódýrasta“ á markaði, en tekjusamlegð af bankastarfsemi og tryggingarrekstri hefur reynst „takmörkuð.“ Horft er til þess að greiða út stóran hluta söluandvirðis til hluthafa en bæði greinendur og stórir hluthafar höfðu hvatt Kviku til að skoða sölu eigna með hliðsjón af því að markaðsgengi bankans væri undir upplausnarvirði. 3.10.2023 21:06
Eigandi Verne Global í kröppum dansi og söluferli gagnavera dregst á langinn Hlutabréfaverð breska fjárfestingarfélagsins Digital 9 Infrastructure, sem rekur meðal annars Verne Global á Íslandi, hrundi um nærri 40 prósent þegar ljóst varð að það myndi ekki standa við áform um arðgreiðslu til hluthafa vegna lausafjárþurrðar og mikillar skuldsetningar og að söluferli á hlutum í gagnaverunum myndi tefjast. Nokkur óskuldbindandi tilboð hafa borist í Verne Global sem verðmeta gagnaver félagsins nálægt bókfærðu virði, eða samtals jafnvirði liðlega 90 milljarða króna. 3.10.2023 11:42
Markaðurinn spáir enn annarri hækkun og raunvextir verði „háir lengi“ Þrátt fyrir vísbendingar um kólnun í hagkerfinu eftir miklar vaxtahækkanir þá er líklegt að peningastefnunefnd Seðlabankans vilji ná raunvöxtum enn hærra í því skyni að auka taumhaldið frekar, að mati markaðsaðila og hagfræðinga í könnun Innherja, sem spá fimmtándu vaxtahækkun bankans í röð – en mikil óvissa er hversu langt verður gengið í þetta sinn. Þeir sem vilja taka minna skref, eða 25 punkta hækkun, benda á að jákvæðir raunvextir séu ekki byrjaðir að bíta en aðrir segja nauðsynlegt að halda háum raunvöxtum lengi eigi að ná tökum á verðbólguvæntingum. 2.10.2023 09:59
Félagið Icelandic Water endurgreiddi yfir þrjá milljarða til BlackRock Útistandandi lán Icelandic Water Holdings, sem starfrækir vatnsverksmiðju í Ölfusi, við sjóði í stýringu BlackRock voru að hluta til greidd til baka þegar fjárhagur íslenska fyrirtækisins var endurskipulagður í byrjun sumar en þá nam skuld þess við bandaríska sjóðastýringarrisann samtals yfir 50 milljónum dala. Fyrirtækið tapaði um 22,5 milljónum dala í fyrra, lítillega meira en árið áður, og var eigið fé orðið neikvætt um síðustu áramót. 1.10.2023 18:19
Ávöxtunarkrafa ríkisbréfa tók snarpa dýfu eftir kaup erlends sjóðs Markaðsvextir á ríkisskuldabréfum lækkuðu talsvert á síðustu tveimur dögum vikunnar, sem tók sömuleiðis niður verðbólguálagið, samhliða kaupum erlends fjárfestis á óverðtryggðum bréfum og var veltan á markaði sú mesta frá því snemma árs 2020. Nýjar hagtölur sýna að verðbólguvæntingar fyrirtækja og heimila, bæði til skamms og lengri tíma, hafa lækkað talsvert sem peningastefnunefnd mun vafalaust líta til við ákvörðun vaxta í næstu viku. 30.9.2023 16:48
Flest „lagst gegn“ bankanum frá síðustu ákvörðun og spáir 50 punkta hækkun Á þeim ríflega mánuði sem er liðin frá því að peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði síðast vextina í 9,25 prósent þá hafa skammtímavísbendingarnar „heilt yfir lagst gegn“ bankanum, hvort sem litið er til verðbólgu, verðbólguvæntingar eða þróunar efnahagsmál, að mati greiningar Arion banka, sem spáir þess vegna að nefndin muni hækka vextina á ný um 50 punkta. Aðhald peningastefnunnar sé „enn of lítið“ og fari verðbólguvæntingar ekki að hjaðna á næstunni er sennilegt að vextirnir muni brjóta tíu prósenta múrinn áður en árið er liðið. 29.9.2023 12:01
Háir langtímavextir vestanhafs minnka áhuga fjárfesta á „framandi“ mörkuðum Þegar það kemst á meiri vissa um að vextir hafi náð hámarki og verðbólgan sé á niðurleið ætti það að skila sér í meira innfæði fjármagns í íslensk ríkisbréf, að sögn seðlabankastjóra, en háir langtímavextir í Bandaríkjunum valda því að skuldabréfafjárfestar sýna framandi mörkuðum núna lítinn áhuga. Eftir nánast ekkert innflæði í ríkisbréf um margra mánaða skeið kom erlendur sjóður inn á markaðinn í gær sem átti sinn þátt í því að ávöxtunarkrafan féll skarpt. 29.9.2023 09:42
Verðbólguálagið á markaði féll þótt bólgan hafi verið yfir spám greinenda Viðsnúningur varð á skuldabréfamarkaði þegar leið á daginn og fjárfestar sóttust eftir því að kaupa óverðtryggð ríkisskuldabréf í mikilli veltu sem varð til þess að verðbólguálagið, sem hefur hækkað mikið frá síðustu vaxtahækkun Seðlabankans, lækkaði töluvert. Skuldabréfafjárfestar virðast því sumir hverjir hafa átt von á enn verri verðbólgumælingu í morgun enda þótt hún hafi reynst hærri en greinendur gerðu ráð fyrir. 28.9.2023 18:25
Fjárfestingafélag Heiðars hagnast um nærri hálfan milljarð Fjárfestingafélag Heiðars Guðjónssonar, fyrrverandi forstjóra Sýnar, skilaði tæplega 470 milljóna króna hagnaði í fyrra en Ursus seldi þá allan eignarhlut sinn í fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækinu. Góð afkoma Ursus í fyrra skýrist einkum af uppfærslu á óbeinum eignarhlut félagsins í HS Veitum. 28.9.2023 15:09
Bandarískur sjóðastýringarrisi vill fjárfesta í Carbfix fyrir milljarða Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt að undirgangast tiltekna skilmála vegna tilboðs bandaríska sjóðastýringarfélagsins Stonepeak, einn stærsti innviðafjárfestir heims, um möguleg kaup á nýjum hlutum í fyrirtækinu Carbfix. Erlendir fjárfestar gætu lagt félaginu, sem hefur hannað tæknilausn sem bindur koltvísýring varanlega í bergi, til marga milljarða króna í aukið hlutafé til að standa straum að uppbyggingu þess á komandi árum. 27.9.2023 10:01