Seðlabankinn er „full virkur í athugasemdum,“ segir framkvæmdastjóri Birtu Framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs segir að Seðlabankinn sé orðinn „full virkur í athugasemdum“ þegar hann er farinn að koma með ábendingar um sjóðirnir eigi mögulega fremur að kaupa sértryggð skuldabréf á bankanna heldur að standa í beinni útlánastarfsemi til íbúðakaupa. Þá rifjar hann upp að síðasta fjárfestingarráðgjöf Seðlabankans, þegar seðlabankastjóri vildi að lífeyrissjóðir kæmu meira að fjármögnun ríkissjóðs, hefði reynst sjóðunum dýrkeypt ef þeir hefðu farið eftir henni. 11.12.2022 13:31
Verðtryggð íbúðalán lífeyrissjóða ekki verið meiri frá upphafi faraldurs Ný verðtryggð íbúðalán lífeyrissjóðanna voru meiri en sem nam öllum upp- og umframgreiðslum þeirra í október í fyrsta sinn frá því á vormánuðum ársins 2020. Bankar og lífeyrissjóðir veittu samanlagt lítillega meira af verðtryggðum lánum með veði í íbúð heldur en óverðtryggðum í mánuðinum. 8.12.2022 06:30
„Umhugsunarefni“ að lífeyrissjóðir kaupi ekki sértryggðar útgáfur bankanna Núna þegar vaxtastig fer hækkandi eftir langt tímabil þar sem áhætta var ekki rétt verðlögð þá hljóta ótryggðar skuldabréfaútgáfur bankanna að byrja að verða „aðlaðandi“ fyrir fjárfesta á borð við íslensku lífeyrissjóðina, að sögn varaseðlabankastjóra. Hann segir það jafnframt vera „umhugsunarefni“ af hverju lífeyrissjóðirnir séu ekki í meira mæli að kaupa sértryggðar útgáfur af íslensku bönkunum sem skili þeim betri ávöxtun borið saman við að lána beint út til sjóðsfélaga sinna. 7.12.2022 15:31
Áhætta tengd fjármálastöðugleika hefur vaxið, segir Seðlabankinn Aðstæður á erlendum fjármagnsmörkuðum hefur farið versnandi fyrir íslensk fjármálafyrirtæki og þá hefur vaxandi innlend eftirspurn leitt til meiri viðskiptahalla. Áhætta tengd fjármálastöðugleika hér á landi hefur því vaxið, að sögn Seðlabanka Íslands. 7.12.2022 08:40
Tveir stærstu lífeyrissjóðir landsins seldu í Íslandsbanka fyrir um milljarð Eftir að hafa stækkað stöðugt við hlut sinn í Íslandsbanka um langt skeið minnkuðu tveir stærstu lífeyrissjóðir landsins stöðu sína í bankanum í liðnum mánuði. Áætla má að sjóðirnir hafi selt bréf í Íslandsbanka fyrir hátt í einn milljarð króna. 6.12.2022 12:00
Lífeyrissjóðir vilja auka vægi erlendra hlutabréfa eftir lækkanir á mörkuðum Margir af stærstu lífeyrissjóðum landsins hafa sett sér það markmið að auka talsvert hlutfall erlendra hlutabréfa í eignasöfnum sínum á komandi ári, að því er lesa má út úr nýlega samþykktum fjárfestingastefnum sjóðanna. Sömu lífeyrissjóðir áforma meðal annars að minnka samtímis vægi eigna sinna í ríkisskuldabréfum og þá ráðgera einnig sjóðir eins og Gildi og LSR að leggja minni áherslu á innlend hlutabréf frá því sem nú er. 6.12.2022 06:31
Stokkað upp í stjórnendateymi Kviku og Sigurður tekur við sem aðstoðarforstjóri Gerðar hafa verið umfangsmiklar breytingar á skipuriti og framkvæmdastjórn Kviku banka. Þær fela það meðal annars í sér að Ármann Þorvaldsson, sem hefur verið aðstoðarforstjóri bankans, lætur af því starfi og mun einbeita sér að uppbyggingu á starfsemi Kviku í Bretlandi og við stöðunni hans tekur Sigurður Viðarsson en hann hefur verið forstjóri TM samfellt frá árinu 2007. 5.12.2022 09:45
Dýr erlend fjármögnun „áhyggjuefni“ og gæti þýtt verri lánakjör fyrir fyrirtæki Það er „áhyggjuefni“ hvað fjármögnun bankanna á erlendum mörkuðum er orðin dýr og ef sú staða snýr ekki við á næstunni mun það að óbreyttu skila sér í versnandi lánakjörum fyrir íslenskt atvinnulíf, að sögn seðlabankastjóra. Hann segist ekki geta tjáð sig um umfangsmikil gjaldeyriskaup Landsbankans á millibankamarkaði á síðustu mánuðum og hvort þau kunni að tengjast stórri afborgun bankans á erlendu láni sem er á gjalddaga á fyrri helmingi næsta árs. 2.12.2022 09:10
Innlán atvinnufyrirtækja aukist um fjórðung frá áramótum Ekkert lát er á umfangsmiklum vexti í innlánum atvinnufyrirtækja í bönkunum og hafa þau aukist langt umfram verðbólgu á árinu. Á síðustu tveimur mánuðum hafa innlánin tekið um 70 milljarða króna stökk, eða um heil tíu prósent, þar sem líklegt má telja að muni mikið um stórar greiðslur sem hafa borist eftir söluna á Mílu og Tempo. 30.11.2022 09:37
Genís klárar 2,4 milljarða króna hlutafjáraukningu Íslenska líftæknifyrirtækið Genís sem hefur um tveggja áratuga skeið unnið að rannsóknum og þróun á lífvirkum kítínfásykrum til notkunar í fæðubótarefnum, lyfjum og við beinígræðslu hefur lokið fjármögnun sem felur í sér hlutafjáraukningu að fjárhæð 2,4 milljarðar króna. 30.11.2022 08:28