Vaxtalækkanir erlendis „opna gluggann“ fyrir Seðlabankann að fylgja á eftir Með hjaðnandi verðbólgu og vaxtalækkunum erlendra seðlabanka að undanförnu er að „opnast gluggi“ fyrir Seðlabanka Íslands að fylgja í kjölfarið, að mati sérfræðings á skuldabréfamarkaði, en fjárfestar hér innanlands brugðust vel við stórri vaxtalækkun vestanhafs og ávöxtunarkrafa styttri ríkisbréfa féll nokkuð í morgun auk sem hlutabréfaverð hækkaði. Ólíkt stöðunni beggja vegna Atlantshafsins er verðbólgan hér á landi hins vegar enn fyrir utan vikmörk Seðlabankans. 19.9.2024 15:18
Hlutabréfasjóðir í varnarbaráttu á árinu og ávöxtunin oftast undir vísitölum Stærstu innlendu hlutabréfasjóðirnir hafa háð samfellda varnarbaráttu í að verða þrjú ár þar sem þeir hafa skroppið saman um liðlega fjörutíu prósent samhliða innlausnum fjárfesta og verðlækkunum á markaði. Ávöxtun flestra sjóða það sem af er þessu ári er undir helstu viðmiðunarvísitölum, einkum hjá þeim sem hafa veðjað stórt á Alvotech, en ólíkt keppinautum sínum reyndist vera umtalsvert innflæði í flaggskipssjóð Kviku eignastýringar á fyrri árshelmingi. 18.9.2024 17:12
„Merkilega sterkar“ kortaveltutölur drifnar áfram af aukinni neyslu erlendis Heildarvelta innlendra greiðslukorta jókst talsvert í liðnum mánuði, drifin áfram af meiri neyslu Íslendinga á ferðalögum erlendis, og voru tölurnar „merkilega sterkar,“ að sögn hagfræðings í Greiningu Arion banka. Þróunin í kortaveltunni getur gefið vísbendingar um þróttinn í einkaneyslu landsmanna, sem peningastefnunefnd mun horfa til þegar tilkynnt verður um næstu vaxtaákvörðun eftir tvær vikur, en sú fylgni hefur hins vegar veikst nokkuð á árinu. 18.9.2024 13:06
Fer frá Marel yfir í hlutabréfagreiningar hjá Fossum Einn af fjárfestatenglum Marels, sem stefnir að því að klára samruna við JBT á næstu mánuðum, hefur látið af störfum hjá íslenska félaginu og er að ganga til liðs við Fossa fjárfestingabanka. 18.9.2024 10:39
Krafa ríkisskuldabréfa hækkar vegna óvissu um stjórnarsamstarfið Ávöxtunarkrafa óverðtryggðra ríkisskuldabréfa hækkaði nokkuð á markaði í morgun sem má einkum rekja til pólitískrar óvissu, að sögn skuldabréfasérfræðings, og vísar þar til þess hvort ríkisstjórnarsamstarfið muni halda vegna ágreinings stjórnarflokkanna um brottvísun Yazans Tamimi, ellefu ára palestínsks drengs með vöðvarýrnunarsjúkdóm. Hækkunin á markaðsvöxtum núna kemur í kjölfar töluverðra kröfulækkana að undanförnu og væntingar voru um að sú þróun héldi áfram samtímis vaxtalækkunum erlendis. 17.9.2024 12:39
Vænta þess að verðbólgan verði orðin nálægt fimm prósentum í árslok Útlit er fyrir að árstaktur verðbólgunnar muni lækka nokkuð í septembermánuði, ef marka má meðalspá banka og greinenda, og hún verði komin nálægt fimm prósentum í árslok og hafi þá ekki verið lægri í þrjú ár. Þrátt fyrir að verðbólgan sé að hjaðna er talið afar ósennilegt að peningastefnunefnd Seðlabankans hefji vaxtalækkunarferlið þegar hún kemur saman eftir um tvær vikur. 16.9.2024 14:43
Stefnir að sölu eigna og aukinni skuldsetningu til að bæta arðsemi Eikar Fjárfestingafélagið Langisjór, sem fer með yfir 30 prósenta hlut í Eik og hefur gert öðrum hluthöfum yfirtökutilboð, telur að arðsemi þess fjármagns sem hluthafar hafa bundið í rekstri fasteignafélagsins sé of lágt og vilja „straumlínulaga“ eignasafnið með sölu eigna og nýta þá fjármuni til arðgreiðslna. Þá boða forsvarsmenn Langasjávar, sem eru meðal annars eigendur að Ölmu leigufélagi, að kannaðir verði kostir þess að Eik útvíkki starfsemi sína með því að sinna uppbyggingu og útleigu íbúðarhúsnæðis til almennings. 16.9.2024 09:57
Þurfa að gæta sín mjög vel þegar eignarhald þverast yfir samkeppnismarkaði Umræða um kaupréttarkerfi skráðra félaga er „óþroskuð“ hjá fjárfestum og stjórnum, meðal annars vegna skorts á upplýsingum og rökræðu, segir framkvæmdastjóri eins af stærri lífeyrissjóðum landsins í ítarlegu viðtali við Innherja, og gagnrýnir jafnframt þau vinnubrögð þegar breytingartillögur eru gerðar með skömmum fyrirvara á hlutahafafundum. Hann geldur varhug við að lífeyrissjóðum sé beitt sem „hreyfiafli“ þegar ekki liggja fyrir neinar meginreglur um hvernig slíku samstarfi ætti að vera háttað og telur þess í stað mikilvægt að sjóðirnir fari gætilega þegar eignarhald þeirra í fyrirtækjum þverast yfir samkeppnismarkaði. 13.9.2024 06:30
Blanda af reiðufé og hlutabréfum í JBT „hentar Eyri Invest vel“ Það er mat stjórnar Eyris Invest, langsamlega stærsti eigandi Marels, að væntanlegur samruni við bandaríska fyrirtækið JBT sé „afar jákvætt skref“ fyrir Marel og að blönduð greiðsla í formi hlutabréfa og reiðufjár henti fjárfestingafélaginu vel, meðal annars með hliðsjón af skuldsetningu þess. Stjórnendateymi sprotafjárfestinga Eyris, sem hafa verið færðar talsvert niður í virði vegna erfiðra aðstæðna á mörkuðum, forgangsraðar núna verkefnum og mun halda áfram að styðja við völd félög í eignasafninu. 12.9.2024 13:56
Yfirmaður einkabankaþjónustu Arion hættir eftir sameiningu sviða bankans Forstöðumaður einkabankaþjónustu Arion til margra ára hefur látið af störfum samhliða því að sviðið sameinast við Premíu, þjónustuleið sem er ætluð viðskiptavinum í umfangsmiklum viðskiptum við bankann. Samstæða Arion er með leiðandi stöðu á eignastýringarmarkaði á Íslandi og mun stækka enn frekar með boðuðum kaupum á Arngrimsson Advisors. 11.9.2024 11:17
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent