Stofnandi Stealers Wheel látinn Skoski tónlistarmaðurinn Joe Egan er látinn, 77 ára að aldri. Tilkynnt var um andlát hans á sunnudag. Joe Egan var annar tveggja stofnmeðlima hljómsveitarinnar Stealers Wheel, sem gerði garðinn frægan með laginu Stuck in the middle with you. 9.7.2024 15:45
Réttindi íslenskra sjómanna séu færð marga áratugi aftur í tímann Sjómannasamband Íslands segir Brim hf., Sjómannafélag Íslands og SFS standa að réttindamissi sjómanna og færi þá marga áratugi aftur í tímann með nýjum kjarasamningi. Samningurinn kveður á um að sjómennirnir landi aflanum sjálfir fyrir smánarlaun. 8.7.2024 22:07
Ísland hafi lengi verið einn dýrasti áfangastaður heims Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að Ísland hafi í tíu ár verið eitt af þremur dýrustu löndum heims. Ferðamenn vilji þrátt fyrir það koma til Íslands, og greiða fyrir það þessi háu verð. Ísland sé þó að dragast aftur úr í samkeppni við lönd eins og Noreg, meðal annars vegna þrálátrar verðbólgu. 8.7.2024 18:53
Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Icelandair flutti 514 þúsund farþega í júní, 1 prósent færri en í júní í fyrra. Þar af voru 31 prósent á leið til Íslands, 15 prósent frá Íslandi, 49 prósent voru tengifarþegar og 4 prósent ferðuðust innanlands. Eftirtektarverð breyting hefur orðið í skiptingu á milli markaða en tengifarþegum fjölgaði um 15 prósent í júní á meðan farþegum til landsins hefur fækkað á milli ára. 8.7.2024 17:47
Fleiri farþegar en minni sætanýting Íslenska flugfélagið Play flutti 173.109 farþega í júní 2024, sem er 7,5 prósent meira en í júní í fyrra þegar félagið flutti 160.979 farþega. Sætanýting dróst þó örlítið saman, hún var 86 prósent í júní 2024, en 87,2 prósent á sama tíma í fyrra. Forstjórinn kveðst ánægður að sjá vöxt í farþegatölunum, en hefði viljað sjá hærri sætanýtingu. 8.7.2024 17:24
Bifhjólamaðurinn á Vestfjörðum ekki í lífshættu Svo virðist sem bifhjólaslysið sem varð í norðanverðum Arnarfirði í gær hafi komið til vegna óhapps. Engin umferðarlagabrot virðast hafa átt stað, segir Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum. 8.7.2024 15:54
Náttúran hafi sterkt umboð í samfélaginu og þurfi ekki umboðsmann Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, sér ekki ástæðu til þess að stofna sérstakt embætti umboðsmanns náttúrunnar, náttúran hafi þegar sterkt umboð í samfélaginu. Þetta kemur fram í svari ráðherrans við fyrirspurn Valgerðar Árnadóttur, varaþingmanns Pírata. 8.7.2024 15:27
Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Helgi Jóhannesson, skiptastjóri þrotabúsins Skagans 3X, segir að mikill áhugi sé á fyrirtækinu. Margir hafi sett sig í samband við hann og viðrað verðhugmyndir og önnur tilboð. Tilboð hafa borist í hluta eignanna, en ekki hefur borist heildartilboð í allar eignirnar og reksturinn. 8.7.2024 14:21
Kvikmyndastjarna slær í gegn á Landsmóti hestamanna Hornfirðingurinn Ída Mekkín Hlynsdóttir fer nú mikinn á Landsmóti hestamanna. Hún er í fjórða sæti í unglingaflokki eftir keppni í milliriðlinum, og hefur tryggt sér sæti í úrslitum. Ída Mekkín var ellefu ára þegar hún var í burðarhlutverki í kvikmyndinni Hvítur hvítur dagur, og lék einnig í myndinni Volaða land, en hún er dóttir leikstjórans og handritshöfundarins Hlyns Pálmasonar. 4.7.2024 20:00
Herbert og Patrik leika við hvern sinn fingur í nýju myndbandi Tónlistarmennirnir Herbert Guðmundsson, Prettyboitjokko og Bomarz hafa gefið út skemmtilegt tónlistarmyndband við nýja lagið þeirra „Annan hring.“ Mikill 80's fílingur er í myndbandinu sem og í laginu sem þeir gáfu út saman í vikunni. 4.7.2024 16:14