Leyniþjónustumaður opnar sig um morðið á Kennedy sextíu árum síðar Paul Landis starfaði hjá leyniþjónustu Bandaríkjanna þegar John F. Kennedy, þáverandi Bandaríkjaforseti, var myrtur í nóvember 1963. Landis var í Dallas þar sem morðið átti sér stað og varð vitni að atburðunum afdrifaríku, og hefur nú opnað sig um þá sextíu árum síðar. 10.9.2023 17:32
Telur játningu Eimskipa vera taktíska ákvörðun Hörður Felix Harðarson, lögmaður Samskipa, viðurkennir að játning Eimskipa í máli er varðar ólöglegt samráð fyrirtækjanna setji málið í einkennilega stöðu. Þrátt fyrir það telur hann játninguna vera taktíska ákvörðun fyrirtækisins, en segir Samskip ekki hafa viljað taka álíka ákvörðun. 10.9.2023 11:42
Vonlaus barátta gegn símum í bíó Snjallsímar og kvikmyndahús fara illa saman. Sá sem þetta skrifar upplifir mikla aukningu í símanotkun bíógesta á meðan á sýningu stendur. Kvikmyndagagnrýnandinn Jóna Gréta Hilmarsdóttir segist hafa orðið vör við þessa aukningu. Blaðamaðurinn Þórarinn Þórarinsson segist hins vegar ekki upplifa að vandamálið sé í mikilli aukningu, en þó mögulega einhverri. Að minnsta kosti sé ástandið ekki að skána. 10.9.2023 11:00
Samskip, bandarískar forsetakosningar og samgöngusáttmáli Fyrsti gestur Kristján Kristjánssonar á Sprengisandi í dag verður Hörður Felix Harðarson, sem hefur verið lögmaður Samskipa frá upphafi. Forsvarsmenn fyrirtækisins halda því fram fullum fetum að Samkeppniseftirlitið sé á villigötum í mörg þúsund blaðsíðna greinargerð um samkeppnisbrot fyrirtækisins. 10.9.2023 09:40
Milt sunnanlands en svalt norðanlands Lítil lægð mun fara til austurs yfir sunnanvert landið í dag og þar af leiðandi verður vindur því norðaustlægur. 10.9.2023 09:11
Musk uppljóstar óvenjulegu nafni áður ótilgreinds sonar Elon Musk, auðugasti maður heims, hefur greint frá nafni þriðja barns síns og tónlistarkonunnar Grimes. Hann heitir Tau Techno Mechanicus. 10.9.2023 08:47
Tala látinna hækkar og almenningur sefur á götum úti Meira en tvöþúsund eru látnir eftir jarðskjálfta sem reið yfir í Marokkó á föstudagskvöld. 10.9.2023 07:40
Lögregla kölluð til vegna TikTok-byssumyndbands unglinga Það var mikið um ölvun og óspektir í miðbænum í nótt að sögn lögreglu, en sex gistu fangageymslur eftir nóttina. 10.9.2023 07:26
„Skömm ykkar er mikil“ Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens sakar íslenska stjórnmálamenn um græðgi í skoðanagrein á Vísi um laxeldi, en þar segist hann óttast að Íslendingar muni útrýma villta laxastofninum líkt og þeir drápu síðasta geirfuglinn. 9.9.2023 14:40
Alræmdi strokufanginn handtekinn Strokufanginn Daniel Abed Khalife hefur verið handtekinn í London. Hans hafði verið leitað síðan á miðvikudagsmorgun eftir að í ljós kom að hann hafði sloppið úr fangelsinu HMP Wandsworth í suðvesturhluta höfuðborgar Bretlands. 9.9.2023 11:19
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Lífið