Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar tók til starfa í dag og ráðherrar komu sér fyrir í nýjum ráðuneytum. Á Alþingi sköpuðust heitar umræður um yfirlýsingu forsætisráðherra og mótmælandi var fjarlægður af þingpöllum. Við sjáum myndir frá viðburðaríkum degi í íslenskum stjórnmálum í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við þingmenn í beinni útsendingu. 10.4.2024 18:01
Betur fór en á horfðist Ástand manns sem lenti undir þakplötu í vinnuslysi á Völlunum í Hafnarfirði í dag er gott eftir atvikum, segir Þorsteinn Gunnarsson, aðstoðarvarstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. 10.4.2024 16:57
Óku í hlið bíls til að stöðva ofsaakstur á Akranesi Ungur karlmaður hlaut á dögunum þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna tveggja brota. Annars vegar var hann ákærður fyrir að hrækja á andlit lögreglumanns. Hins vegar var honum gefið að sök að stela bíl og aka honum ansi glæfralega, þangað til lögregla stöðvaði för hans með því að keyra í hlið bílsins. 10.4.2024 08:00
Þóttist vera annar maður í þrjá áratugi Bandarískur karlmaður að nafni William Woods hefur verið til mikillar umfjöllunar í fjölmiðlum um allan heim síðustu daga. Ástæðan er sú að annar maður hefur þóst vera Woods í marga áratugi og safnað upp gríðarlegum skuldum í nafni hans. Fyrir vikið varð Woods heimilislaus um tíma, honum var stungið í steininn og lokaður á geðsjúkrahúsi. 10.4.2024 00:06
Myndaveisla: Endurnýjuð ríkisstjórn hefur verið mynduð Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar var formlega mynduð í kvöld á ríkisráðsfundi á Bessastöðum. Þá endurstaðfesti Guðni Th. Jóhannesson lausnarbeiðni Katrínar Jakobsdóttur úr forsætisráðuneytinu. 9.4.2024 22:06
Ávarp Guðna: Greinamunur á að vera skráður á Ísland.is og vera í framboði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ávarpaði fjölmiðla að loknum fyrri ríkisráðsfundi af tveimur sem fara fram á Bessastöðum í kvöld. 9.4.2024 20:28
„Ekki biðja um að þetta sé auðvelt“ Bjarni Benediktsson, sem verður skipaður forsætisráðherra á eftir, segir að það liggi vel á sér. Hann segir að sitt fyrsta verk í nýja ráðuneytinu verði að stilla sama strengi við aðra ráðherra endurnýjaðrar ríkisstjórnar. Honum þyki mikilvægt að byrja vel. 9.4.2024 19:32
Lýsing næturvarðar á árás bjórsala og foreldra hans skipti sköpum Maður var á dögunum sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás sem átti sér stað fyrir utan hótel um nótt árið 2021. Dómurinn frestaði ákvörðun um refsingu mannsins vegna ungs aldurs hans og hversu lengi það tók að fá niðurstöðu í það. 9.4.2024 07:00
Allt bendir til að Bjarni verði forsætisráðherra Allar líkur er á að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verði næsti forsætisráðherra í endurnýjuðu stjórnarsamstarfi núverandi stjórnarflokka, samkvæmt heimildum fréttastofu. 8.4.2024 22:33
Katrín minni á Ólaf Ragnar árið 2012 Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, segir líklegast að Katrín Jakobsdóttir, Baldur Þórhallsson og Jón Gnarr muni heyja baráttuna um Bessastaði. Þau þrjú mælast með mest fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Þó segir hann að mögulega geti einhver af þeim frambjóðendum sem komi næst á eftir þeim þremur blandað sér í slaginn. 8.4.2024 20:05