Erlent

Ís­lendingar þurfi að huga að for­vörnum með auknum gróðri og skógi

Jón Þór Stefánsson skrifar
„Ég held að við ættum að minnsta kosti að undirbúa okkur undir að þetta gæti verið það sem koma skal,“ segir Guðrún Nína Petersen veðurfræðingur.
„Ég held að við ættum að minnsta kosti að undirbúa okkur undir að þetta gæti verið það sem koma skal,“ segir Guðrún Nína Petersen veðurfræðingur. Getty/Vísir

Gróðureldarnir í Los Angeles eru sagðir þeir mestu í sögu borgarinnar. Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs er vindurinn, sem á mikinn þátt í þessum miklu eldum, aðeins farinn að lægja og því vonast slökkviliðsmenn til að ná einhverri stjórn á útbreiðslu hans. Að því sögðu segja viðbraðgsaðilar að enn stafi gríðarleg hætta af eldunum sem eru sagðir hafa lagt heimili tugi þúsunda í rúst.

Guðrún Nína Petersen veðurfræðingur ræddi um gróðureldana í Kaliforníu í kvöldfréttum Stöðvar 2.

„Það er í rauninni gróðureldahætta í Kaliforníu allt árið, en mest utan regntímans, og nú vegna loftlagsbreytinga þá hefur regntíminn verið að styttast í báða enda. Það er búið að vera mjög þurrt og hlýtt lengi og þá eykst hættan. Og núna eru Santa Ana vindarnir, og þeir verða til þess að eldurinn sem kviknar að útbreiðsla hans verður miklu meiri og slökkvistarfið erfiðara.“

Er þetta bein afleiðing loftlagsbreytinga?

„Það er alltaf að segja hvað er bein afleiðing, árið 2024. Þá var það ár aftakaveðurs á mörgum stöðum. Það var bæði úrhellisúrkoma, flóð, en líka hiti, þurrkur, og gróðureldar víða í heimi, bæði í Suður- og Norður-Ameríku, Síberíu og í Evrópu getum við minnst á Portúgal þar sem voru miklir gróðureldir,“ segir Nína.

„Ég held að við ættum að minnsta kosti að undirbúa okkur undir að þetta gæti verið það sem koma skal.“

Kort af eldunum sem nú geysa vestanhafs.Vísir/Grafík

Að sögn Nínu þurfa Íslendingar að huga að forvörnum þar sem gróður og skógar færast í aukanna hér á landi.

„En það er eitt annað sem þetta byggir á. Eldarnir geta kviknað og veður hefur þar mikil áhrif, og þurkkur, vindátt og vindhraði. En svo er þetta líka spurning með hvernig við gerum okkar umhverfi, hvaða varnir við erum með. Þetta er eitthvað sem við þurfum líka að hugsa á Íslandi með auknum gróðri og auknum skógi.“

Eyðileggingin er mikil.Getty

Þannig það er hægt að byggja upp einhverjar varnir og varúðarráðstafanir með þetta í huga?

„Við getum alltaf haft einhverjar varnir, en þegar hlutirnir eru á þessum skala sem þetta er núna úti í Kaliforníu þá er þetta náttúrulega afskaplega erfitt viðureignar.“


Tengdar fréttir

Myndasyrpa: Að minnsta kosti tvö þúsund hús brunnin í Los Angeles

Enn loga miklir eldar í Los Angeles en vind hefur tekið að lægja en talið er að veðrið muni lítið hjálpa við slökkvistörf fyrr en annað kvöld. Þrír stórir eldar hafa brennt stór svæði í úthverfum borgarinnar en að minnsta kosti fimm eru látnir og rúmlega tvö þúsund byggingar hafa brunnið.

Harmleikur í Hollywood: Hús fræga fólksins fuðra upp

Mikill fjöldi Hollywood stjarna hefur neyðst til að flýja heimili sín vegna þeirra gríðarlegu skógarelda sem nú brenna í úthverfum Los Angeles borgar. Þá hefur töluverður fjöldi stjarna misst heimili sín í úthverfi borgarinnar, Pacific Palisades og í Malibu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×