Úkraínuher sækir fram í suðri og austri Varnir Rússa í Kherson-héraði í sunnanverðri Úkraínu voru brotnar á bak aftur í dag á sama tíma og Úkraínuher sótti fram í austanverðu landinu sem Rússar segjast hafa innlimað. Birgðaflutningaleiðum fyrir rússneska hermenn er sagt ógnað með gagnsókninni. 3.10.2022 23:55
Kölluðu rússneska sendiherrann á teppið vegna innlimunarinnar Utanríkisráðuneytið kallaði rússneska sendiherrann á Íslandi til fundar til að lýsa fordæmingu sinni á tilraun rússneskra stjórnvalda til þess að innlima fjögur úkraínsk héruð í dag. Íslensk stjórnvöld ætla ekki að viðurkenna héruðin sem hluta af Rússlandi. 3.10.2022 23:02
Þrennt í gæsluvarðhald vegna manndrápsins á Ólafsfirði Héraðsdómur Norðurlands eystra úrskurðaði tvær konur og einn karlmann í vikulangt gæsluvarðhald vegna mannsláts á Ólafsfirði í kvöld. Karlmaður á fimmtugsaldri var stunginn til bana þar í nótt. 3.10.2022 22:15
Skellir skuldinni á Bandaríkin og Ísrael Æjatolla Khamenei, æðsti leiðtogi Írans, kenndi Bandaríkjunum og Ísrael um mótmæli á götum landsins í fyrstu opinberu ummælum sínum um óróann í dag. Mótmælin brutust út eftir að ung kona lést í haldi siðgæðislögreglunnar. 3.10.2022 20:54
Hafnar fullyrðingum ASÍ um óhagkvæmni rafbílastuðnings Formaður Rafbílasambands Íslands segir fullyrðingar sérfræðings ASÍ um að hvatar til kaupa á rafbílum séu óhagkvæmar rangar. Hann tekur þó undir ákall ASÍ um að strætó ætti að vera gjaldfrjáls. 3.10.2022 19:42
Sendiherra segir Musk að fara norður og niður Úkraínski sendiherrann í Þýskalandi vandaði Elon Musk, auðkýfingnum sem hefur haslað sér völl sem nettröll, ekki kveðjurnar eftir að sá síðarnefndi viðraði hugmynd um forsendur friðar á milli Rússlands og Úkraínu. Bað sendiherrann Musk um að fara norður og niður. 3.10.2022 17:48
Meðlimir sértrúarsafnaðar flúðu úr haldi í Mexíkó Um tuttugu meðlimir gyðinglegs sértrúarsafnaðar í Mexíkó flúðu úr haldi lögreglu. Húsleit var gerð í búðum safnaðarins fyrir helgi vegna gruns og mansal og alvarleg kynferðisbrot. 30.9.2022 15:38
Ekki útilokað að Lula sigri strax í fyrstu umferð Skoðanakönnun sem var birt fyrir síðustu sjónvarpskappræður frambjóðenda í forsetakosningunum í Brasilíu benda til þess að Luiz Inacio Lula da Silva, fyrrverandi forseti, gæti unnið endanlegan sigur strax í fyrstu umferð. Taugar eru þandar fyrir kosningarnar en Jair Bolsonaro forseti hefur ítrekað gefið í skyn að hann muni ekki viðurkenna úrslitin ef hann tapar. 30.9.2022 14:07
Fyrstu myndirnar af vatnaveröldinni Evrópu í tuttugu ár Könnunarfarið Júnó er byrjað að senda myndir frá nærflugi sínu hjá ístunglinu Evrópu við Júpíter. Myndirnar eru þær fyrstu af tunglinu frá því að Galíleó flaug þar fram hjá fyrir 22 árum. Talið er að haf fljótandi vatns sé að finna undir ísilögðu yfirborði Evrópu þar sem líf gæti mögulega þrifist. 30.9.2022 11:24
Lekinn í Eystrasalti lítill hluti af losun manna á metani Þrátt fyrir að þúsundir tonna af jarðgasi velli út um göt á Nord Stream-gasleiðslunum tveimur er lekinn lítill í samanburði við aðra losun manna á metani. Áætlað er að ef allt gasið í leiðslunum læki út í andrúmsloftið næmi það um 0,1% af heildarlosun á metani í heiminum. 30.9.2022 09:35