Réðst á nágrannakonu í heimahúsi í Hafnarfirði Karlmaður var handtekinn fyrir að ráðast á nágrannakonu sína í heimahúsi í Norðurhellu í Hafnarfirði í kvöld. Konan var flutt með minniháttar áverka til aðhlynningar á slysadeild samkvæmt upplýsingum lögreglu. 21.10.2020 20:35
Greiddi nemendum til að benda á kennarann Saksóknarar í Frakklandi halda því fram að tveir nemendur í skólanum þar sem Samuel Paty kenndi hafi fengið greitt fyrir að bera kennsl á hann fyrir morðingjans hans. 21.10.2020 19:45
Eftirlitsnefnd um störf lögreglu tilkynnt um „óviðeigandi“ fána Tilkynning um umdeilda fána á búningi lögregluþjóns á höfuðborgarsvæðinu hefur verið send eftirlitsnefnd um störf lögreglu. 21.10.2020 18:45
Spyrja hvort móðurfélag Norðuráls reyni að þvinga niður raforkuverð Landsvirkjun hafnar ásökunum Norðuráls um að fyrirtækið hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína á skammtímamarkaði með raforku. 21.10.2020 18:26
Framleiðandi Oxycontins játar sekt og greiðir milljarða Purdue Pharma, bandaríska lyfjafyrirtækið sem framleiðir sterka verkalyfið Oxycontin, ætlar að játa sig sekt um mútugreiðslur og samsæri og greiða meira en átta milljarða dollara til að ná sátt í máli bandarísku alríkisstjórnarinnar gegn því. 21.10.2020 17:58
Næðum ekki hjarðónæmi án alvarlegra afleiðinga Hjarðónæmi við kórónuveirunni næst ekki án alvarlegra afleiðinga og enginn vísindalegur rökstuðningur hefur verið settur fram fyrir hugmyndum um að aflétta sóttvarnaaðgerðum og treysta á náttúrulegt hjarðónæmi, að sögn íslenskra sérfræðinga. 21.10.2020 07:01
Grípur sér sýni úr smástirninu Bennu í kvöld Bandaríska geimfarið Osiris-Rex reynir að grípa bergsýni úr yfirborði smástirnisins Bennu í kvöld að íslenskum tíma. Til stendur að senda sýnið aftur til jarðar og gangi áformin eftir verður það stærsta sýni úr geimnum sem hefur komið til jarðar frá því að Apollógeimfararnir sneru heim frá tunglinu á 8. áratug síðustu aldar. 20.10.2020 15:44
Brá við skjálftann en allir héldu ró sinni Skólabygging Hraunvallaskóla á Völlunum í Hafnarfirði gekk til í jarðskjálftanum sem reið yfir á öðrum tímanum í dag. Skólastjórinn þar segir að nemendum og starfsfólki hafi verið brugðið en að allir hafi haldið ró sinni. 20.10.2020 14:25
Saka Google um að vera einokunarhringur Bandaríska dómsmálaráðuneytið ætlar að stefna Google í dag fyrir meinta misnotkun á markaðsráðandi stöðu í netleit sem hamli samkeppni og skaði neytendur. 20.10.2020 13:35
Beraði sig fyrir vinnufélögum á fjarfundi Bandaríska blaðið New Yorker hefur vikið Jeffrey Toobin, rithöfundi og greinahöfundi, frá störfum eftir að hann beraði sig fyrir framan vinnufélaga á fjarfundi í síðustu viku. 20.10.2020 13:01