Vegum lokað vegna veðurs og björgunarsveitir aðstoða ökumenn Hellisheiði og Þrengslin eru á meðal þeirra vega sem hefur verið lokað vegna ófærðar. 22.3.2019 17:43
Verkfall hótelstarfsmanna og rútubílstjóra hafið Aðgerðirnar eiga að standa frá miðnætti til miðnættis. Það nær til tuga hótela á suðvesturhorninu og rútubílstjóra. 22.3.2019 00:00
Maðurinn sem sendi andstæðingum Trump sprengjur játar sök Leiðtogar demókrata, fyrrverandi forstjóri CIA og leikarinn Robert De Niro voru á meðal þeirra sem maðurinn sendi rörsprengju í október. 21.3.2019 23:03
Lykilorð milljóna Facebook-notenda voru aðgengileg þúsundum starfsmanna Gögnin voru geymd ódulkóðuð á innra neti samfélagsmiðlarisans þar sem um tuttugu þúsund starfsmenn gátu skoðað þau. 21.3.2019 22:14
Icelandair og Wow air ræða aftur saman í samráði við stjórnvöld WOW air tilkynnti í kvöld að bandaríska félagið Indigo Partners hefði slitið viðræðum um kaup á félaginu. 21.3.2019 21:18
Kushner sagður nota WhatsApp til að ræða við erlenda aðila Þrátt fyrir að gagnaöryggi hafi verið miðpunktur forsetakosninganna árið 2016 virðist dóttir og tengdasonur Trump forseta hafa notað persónuleg samskiptaforrit til að reka opinber erindi. 21.3.2019 21:00
Fundi lokið hjá sáttasemjara og verkfall fram undan Ríkissáttasemjari ætlar að taka stöðuna á deiluaðilum í fyrramálið en tímasetning frekari funda hefur ekki verið ákveðin. 21.3.2019 20:16
Ekki rætt um frestun verkfalls Ríkissáttasemjari segir ágætis samtal hafa átt sér stað á fundi í dag en afar ólíklegt sé að samningar náist í kvöld. 21.3.2019 19:10
Boeing ætlar að hætta að rukka fyrir viðbótaröryggi Mælar sem hefðu mögulega getað afstýrt tveimur mannskæðum flugslysum voru ekki staðalbúnaður í Boeing-vélum. 21.3.2019 18:44
Bandaríkin ætla að viðurkenna yfirráð Ísraels yfir Gólanhæðum Ísraelar lögðu undir sig Gólanhæðir í sex daga stríðinu árið 1967. Önnur ríki hafa ekki viðurkennt yfirráð þeirra yfir landsvæðinu. 21.3.2019 17:36