Sonur og tengdasonur Duterte neita aðild að fíkniefnasmygli Skyldmenn forseta Filippseyja eru sakaðir um að hafa tekið þátt í að smygla fíkniefnum frá Kína. 7.9.2017 18:49
Vildi skaðlegar upplýsingar um Clinton til að meta „hæfi“ hennar Þegar syni Donalds Trump voru boðnar skaðlegar upplýsingar um Hillary Clinton svaraði hann "Ég elska það“. Í dag sagði hann þingnefnd að hann hefði viljað upplýsingarnar til að geta metið hæfi hennar og forsendur til að verða forseti. 7.9.2017 17:48
Irma heldur ótrauð áfram yfir Karíbahaf Fellibylurinn öflugi heldur áfram að valda usla á eyjum í Karíbahafi og auknar líkur eru á að hann stefni á meginland Bandaríkjanna á næstu dögum. 6.9.2017 23:45
Sonur Trump gefur þingnefnd skýrslu á morgun Framburður Trump yngri fer fram fyrir luktum dyrum. Hann verður að líkindum spurður út í fund sem hann átti með rússneskum lögmanni sem lofaði skaðlegum upplýsingum um Hillary Clinton í fyrra. 6.9.2017 22:03
Barbúda sögð gjöreyðilögð eftir Irmu Einn er sagður hafa farist á eynni Barbúda og 90% bygginganna þar eyðilagðar eftir að Irma gekk þar á land sem fimmta stigs fellibylur í gærkvöldi. 6.9.2017 21:23
Facebook seldi rússnesku fyrirtæki auglýsingar fyrir kosningarnar í Bandaríkjunum Fréttirnar vekja spurningar um hvar Rússarnir fengu upplýsingar um að hvaða hópum kjósenda þeir ættu að beina auglýsingunum. 6.9.2017 20:41
Bandaríkin vilja stöðva olíusölu til Norður-Kóreu TIllaga að hertum refsiaðgerðum gegn Norður-Kóreu sem bandarísk stjórnvöld hyggjast leggja fram felur meðal annars í sér að bann verði lagt við sölu á olíu til einræðisríkisins. 6.9.2017 19:11
Dalí ekki faðir konu sem krafðist DNA-rannsóknar Lík Salvadors Dalí var grafið upp í sumar til að hægt væri að sannreyna hvort að tarotlesari nokkur væri í raun dóttir hans. 6.9.2017 18:24
Ösku frá brennandi skógum rignir yfir Seattle Ríkisstjóri Washington-ríkis hefur boðið Donald Trump forseta að heimsækja svæðið til að sjá áhrif loftslagsbreytinga á skógana sem þar brenna. 6.9.2017 17:51
Hop jöklanna gæti haft áhrif á lífríki við strendur Íslands Rennsli í jökulám raskast þegar jöklar hopa vegna hnattrænnar hlýnunar. Breytingarnar munu hafa djúpstæð áhrif á lífríki og samfélög manna. 6.9.2017 15:00