Bretar ætla að banna nýja bensín- og dísilbíla fyrir 2040 Til að draga úr loftmengun ætla bresk stjórnvöld að banna nýja bensín- og dísilbíla árið 2040. Sérfræðingur telur aðgerðirnar þó skila litlu til skemmri tíma litið. 26.7.2017 09:48
Jarðskjálftar upp á þrjá riðu yfir Reykjanesskaga Sextán jarðskjálftar hafa mælst við Fagradalsfjall á Reykjanesi í morgun, þar af tveir af stærðinni þrír. 26.7.2017 08:50
Rússar óánægðir með hertar refsiaðgerðir Aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands gefur í skyn að rússnesk stjórnvöld svari í sömu mynt eftir að lægri deild Bandaríkjaþings samþykkti hertar refsiaðgerðir gegn þeim í gær. Óvíst er hvort að Donald Trump forseti beiti neitunarvaldi sínu gegn frumvarpinu. 26.7.2017 08:30
Þingnefnd krefur kosningastjóra Trump um opinberan framburð Fyrrverandi kosningastjóri Donalds Trump sem sat umdeildan fund með rússneskum lögfræðingi sem bauð skaðlegar upplýsingar um Hillary Clinton gæti neyðst til að bera vitni fyrir opnum dyrum hjá bandarískri þingnefnd. Formenn nefndarinnar hafa stefnt honum til að knýja hann til að mæta. 25.7.2017 15:55
Meintir vinargreiðar reynast forsætisráðherra Japans fjötur um fót Stuðningur við ríkisstjórn Shinzo Abe í Japan mælist nú aðeins 26%. Hneykslismál sem varða rekstraraðila skóla sem tengjast forsætisráðherranum hafa reynst honum þung í skauti. 25.7.2017 15:12
Forseti Póllands skrifar undir umdeild lög Hluti af umdeildum breytingum ríkisstjórnar Póllands á dómstólum er orðinn af lögum eftir að Andrzej Duda forseti skrifaði undir í dag. 25.7.2017 14:17
Þörungar gætu hraðað bráðnun Grænlandsjökuls Hlýnandi loftslag gæti aukið þörungagróður á Grænlandsjökli og hraðað þannig bráðnun íssins og hækkun yfirborðs sjávar. Vísindamenn reyna nú að átta sig á áhrifum þörunganna á bráðnun jökulsins. 25.7.2017 13:54
Foreldrar skátadrengja ósáttir eftir ræðu Trump Skátahreyfingin í Bandaríkjunum liggur undir ámæli fyrir að leyfa Donald Trump forseta að messa yfir ungum skátum um stjórnmál og andstæðinga sína. Forsetinn ýjaði meðal annars að svæsinni sögu um annan fasteignakóng. 25.7.2017 12:28
Alþjóðleg handtökuskipun á hendur keðjusagarmanninum Lögreglumenn í Sviss og Þýskalandi leita enn karlmanns á sextugsaldri sem réðst á fólk á skrifstofu tryggingafélags með keðjusög í Sviss í gær. Alþjóðleg handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur honum. 25.7.2017 11:01
Paint verður áfram til staðar Microsoft er hætt við að henda MS Paint eftir að mikil sorg braust út á samfélagsmiðlum. Forritið verður áfram aðgengilegt ókeypis í vefverslun Windows þó að það verði ekki hluti af nýjum uppfærslum á Windows 10-stýrikerfinu. 25.7.2017 10:24