Kvöldfréttir Stöðvar 2 Íslensk fjölskylda ungrar konu, sem skotin var til bana í Bandaríkjunum í vikunni, er frávita af sorg. Amma konunnar segir áfallið ólýsanlegt. Skömm sé að því hvernig kerfið vestanhafs taki á móti syrgjendum. Við ræðum við Ingunni Ásu Mency Ingvadóttur í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 16.7.2023 18:20
„Hugsanlegt að það sé að draga aðeins úr flæði“ Rennsli í hraunánni frá gíg eldgossins við Litla-Hrút virðist hafa minnkað síðasta hálfa sólarhringinn, að sögn eldfjallafræðings. Virknin hefur þó haldist nokkuð stöðug yfir helgina. Hraun heldur áfram að renna í suður, niður í Meradali, yfir hraun frá 2021 og er nú einnig komið upp á hraun frá því í gosinu í fyrra. Gígbarmar aðalgígsins eru orðnir 22 metra háir. 16.7.2023 13:44
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Strandveiðimenn sóttu hart að matvælaráðherra á fjölmennum mótmælum í miðborginni í dag. Þeir líkja stöðvun strandveiða á miðri vertíð við fjöldauppsögn og segja kerfið ómannúðlegt. Við ræðum við mótmælendur í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. 15.7.2023 18:26
Hádegisfréttir Bylgjunnar Gosstöðvarnar við Litla-Hrút verða áfram lokaðar almenningi í dag vegna hættulegra aðstæðna á svæðinu. Ákvörðunin verður endurskoðuð í fyrramálið. Gasmengun frá gosinu liggur yfir Suðurstrandarveg og gönguleiðir í dag - og verður jafnvel vart í Grindavík í kvöld og á morgun. Við tökum stöðuna á eldgosinu í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan 12. 15.7.2023 11:59
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Vólódímír Selenskí forseti Úkraínu réði lögum og lofum á leiðtogafundi G7 sem lauk í dag, eftir ströng fundahöld og afgerandi stuðningsyfirlýsingar vesturveldanna við Úkraínu. Selenskí þurfti ítrekað að hafna fullyrðingum Rússa um yfirráð yfir úkraínsku borginni Bakhmút á lokadegi fundarins. 21.5.2023 18:01
Hádegisfréttir Bylgjunnar Forseti Úkraínu þvertekur fyrir að Rússar hafi náð borginni Bakhmút á sitt vald, þrátt fyrir afgerandi yfirlýsingar þeirra þar um í gær. Vafi var þó í fyrstu um afstöðu forsetans eftir svar hans við spurningu fréttamanns á G7-leiðtogafundinum í morgun. Bandaríkjaforseti kynnti þar stóraukinn stuðning við Úkraínu í formi hergagna. Við förum yfir morguninn á G7 í hádegisfréttum Bylgjunnar. 21.5.2023 11:51
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Félagsmenn BSRB í Garðabæ bættust í dag í stóran hóp félagsmanna sem fara munu í víðtæk verkföll eftir um tvær vikur. Aðgerðirnar ná til 29 sveitarfélaga og meðal annars bitna á sundlaugum, sem víða gætu staðið lokaðar fram eftir sumri. Varaformaður BSRB segir verkföll verstu niðurstöðu sem hann geti hugsað sér. 20.5.2023 18:17
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Bæjarstjóri Akureyrar segir mikil vonbrigði fyrir íbúa Norðurlands að félagið Niceair sé farið í þrot. Of litlum markaði fyrir utanlandsflug frá Akureyri sé ekki um að kenna, heldur öðrum þáttum. Gjafabréf sem fólk á inni hjá félaginu eru líklegast ónýt, að sögn formanns Neytendasamtakanna. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. 20.5.2023 11:46
Lentu loksins í Keflavík eftir næstum 40 tíma seinkun Flugvél Icelandair með farþegum innanborðs sem setið höfðu fastir í næstum fjörutíu klukkustundir á flugvellinum í Glasgow tók loks á loft í kringum miðnætti að íslenskum tíma í gærkvöldi og var lent á Keflavíkurflugvelli upp úr tvö í nótt. 20.5.2023 11:13
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forsætisráðherra vísar á bug gagnrýni vegna samskipta sinna við forsætisráðherra Ítalíu á leiðtogafundi Evrópuráðsins. Óljóst er hvað verður um byssur sem fluttar voru inn vegna fundarins, en á þriðja tug öryggismyndavéla sem settar voru upp fara hvergi. Við gerum leiðtogafundinn upp í fréttatímanum og ræðum aukið myndavélaeftirlit í kjölfar fundar við borgarfulltrúa í beinni útsendingu. 19.5.2023 18:20