Grænlensk skip landa loðnu meðan íslenski flotinn bíður Tveir grænlenskir togarar, Tasiilaq og Polar Ammasak, lönduðu loðnu í íslenskum höfnum í gær. Loðnan veiddist úti af Norðausturlandi úr kvóta Grænlendinga innan íslensku lögsögunnar. 17.1.2023 12:00
Þjórsá hverfur núna ofan í holu efst í Urriðafossi Mikil ísstífla hefur hrannast upp við Urriðafoss í frostakaflanum undanfarnar vikur. Sérfræðingar Landsvirkjunar skoðuðu íshrannirnar í Þjórsá í gær meðal annars til að skilja betur áhrif ísmyndunar á virkjanir. 16.1.2023 22:01
Hafrannsóknaskip í loðnu úti af Vopnafirði og Langanesi Áhöfn hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar er búin að finna loðnu úti af Vopnafirði og Langanesi. Skipið heldur áfram loðnuleit næstu daga vestur með Norðurlandi í sérstökum aukaleitarleiðangri sem hófst síðastliðinn miðvikudag en byrjað var á því að leita undan sunnanverðum Austfjörðum. 16.1.2023 12:36
Norska ríkisstjórnin gefur út 47 ný leyfi til olíuleitar Olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Terje Aasland, hefur úthlutað 47 nýjum sérleyfum til olíuleitar og olíuvinnslu á norska landgrunninu. Ráðherrann tilkynnti um úthlutunina á árlegri ráðstefnu norska olíuiðnaðarins í bænum Sandefjord í fyrradag. 12.1.2023 11:38
Meiri gjaldeyrisöflun dugði ekki til að mæta aukinni eyðslu Íslendinga Þrjár helstu stoðir íslensks efnahagslífs, ferðaþjónustan, áliðnaðurinn og sjávarútvegurinn, skiluðu allar mun meiri gjaldeyrisstekjum í fyrra miðað við árið á undan. Þrátt fyrir það var vöruskiptajöfnuðurinn við útlönd óhagstæður. 11.1.2023 19:49
Lagðir af stað í aðra aukaleit að loðnu á kostnað útgerðar Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt úr Hafnarfjarðarhöfn í morgun til loðnuleitar. Þetta er annar aukaleitarleiðangurinn sem efnt er til á þessari vertíð en sá fyrri var í byrjun desembermánaðar. 11.1.2023 11:46
Forstjóri Play spáir einu besta ári íslenskrar ferðaþjónustu Flugfélagið Play hyggst fljúga til hátt í fjörutíu áfangastaða í sumar og bætast þrettán nýir við. Þotum verður fjölgað úr sex í tíu og spáir forstjórinn því að þetta ár verði eitt það besta frá upphafi í íslenskri ferðaþjónustu. 10.1.2023 21:57
Hvalkjötið komið í skip og á leið til kaupenda í Japan Allt hvalkjöt frá síðustu vertíð, og raunar meira til, er farið úr landi. Flutningaskip lestaði kjötið í Hafnarfirði skömmu fyrir jól og er það núna á leiðinni til kaupenda í Japan. 9.1.2023 22:42
Sólin búin að lengja daginn um 47 mínútur í Reykjavík Myrkrið víkur núna hratt með hækkandi sól og í dag hafði daginn lengt um 47 mínútur í Reykjavík frá vetrarsólstöðum og um eina klukkustund á Akureyri. 9.1.2023 20:40
Í þessum hópi ræða menn um bilaða flugvélahreyfla Svo vænt þykir fyrrverandi starfsmönnum Loftleiða um sitt gamla félag að þeir halda úti sérstökum aðdáendaklúbbi. Þar lifir enn gamli Loftleiðandinn þar sem öldungar rifja upp glæsta tíma í flugsögunni. 7.1.2023 21:10