Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Alls fengu um 52 þúsund einstaklingar ofgreiddar lífeyrisgreiðslur í fyrra og þurfa að greiða þær til baka. Miðgildi ofgreiðslna árið 2023 var rúmlega 122.000 krónur en var árið 2022 rúmar 66.000 krónur. Ofgreiðslan nærri tvöfaldast því á milli ára. 28.5.2024 14:22
Ástandið í Hafnarfirði geti haft langvarandi áhrif á börn Á mánaðartímabili hafa komið upp fjögur tilvik þar sem veist er að eða setið um börn í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi, segir þetta ástand geta haft mjög alvarleg áhrif á börnin. Þau geti alið með sér ótta, kvíða eða þunglyndi. Tilvikin eru enn til rannsóknar hjá lögreglu sem er með aukið eftirlit í hverfinu með foreldrum. 28.5.2024 11:18
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Fyrrverandi yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar, Yossi Cohen, reyndi á nokkrum leynilegum fundum að þrýsta á aðalsaksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins, Fatou Bensouda, að falla frá því að rannsaka Ísrael fyrir stríðsglæpi. 28.5.2024 08:21
Skýjað og dálítil væta í dag Í dag má búast við hægri og breytilegri vindátt. Þá verður skýjað að mestu og sums staðar dálítil væta. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur svo fram að í kvöld komi úrkomubakki inn á vestanvert landið með rigningu og súld og vestan fimm til tíu metrar á sekúndu. Þá fer aðeins að hreyfa vind. 28.5.2024 07:25
Ágreiningur um túlkun sem nái inn á borð ríkisstjórnarinnar Hanna Katrín Friðriksson alþingismaður segir ágreining um túlkun laga sem gilda um netverslun áfengis á Íslandi. Sá ágreiningur nái allt upp í ríkisstjórnina þar sem þrír ráðherrar sem hafa tjáð sig um málið hafa ekki sömu skoðun. 26.5.2024 17:01
Elvar Árni sigraði Gagnaglímuna í ár Elvar Árni Bjarnason sigraði Gagnaglímuna í gær. Gagnaglíman er Netöryggiskeppni Íslands og fór fram í Háskólanum í Reykjavík í gær. Keppnin fer fram árlega og hefur það markmið að efla áhuga íslenskra ungmenna á netöryggi og auka þekkingu og færni þeirra sem sýna því áhuga. 26.5.2024 14:44
Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Álitsgjafar segja spennandi kosningabaráttu fram undan nú þegar ein vika er eftir. Frambjóðendur muni þurfa hafa fyrir því að vinna Katrínu. Höllurnar séu að skipta um hlutverk. Þórhallur Gunnarsson, Viktor Orri Valgarðsson og Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir fóru yfir forsetakosningarnar og spáðu í spilin á Sprengisandi í dag. 26.5.2024 12:42
Malbika hægri akrein Reykjanesbrautar á morgun Vegagerðin stefnir á að fræsa og malbika hægri akrein á Reykjanesbraut, á milli gatnamóta við Vogaveg og Grindavíkurveg á morgun. 26.5.2024 10:50
Flytja hjálpargögn til Gasa í gegnum Kerem Shalom Vöruflutningabílar með hjálpargögn fengu í dag að fara inn á Gasa í gegnum Kerem Shalom landamærin samkvæmt nýju samkomulagi við Egyptaland. Óljóst er hvort mannúðarsamtök fái aðgang að hjálpargögnunum inn á Gasasvæðinu vegna áframhaldandi árása á staðnum. 26.5.2024 10:15
Áfengissala, forsetakosningar og neytendamál Að vanda er dagskráin fjölbreytt í Sprengisandi í dag. Rætt verður um Gasa, áfengissölu, neytendamál og auðvitað forsetakosningarnar. 26.5.2024 09:45