Rekin í gegn af fljúgandi sólhlíf Strandgestur í Garden City í Suður-Karólínu lést af sárum sínum eftir að sólhlíf sem hafði fokið úr festingu sinni lenti í bringu hennar. 11.8.2022 19:30
Tók banka í gíslingu til að geta tekið út sparifé sitt Maður tók banka í gíslingu í Beirút í dag til að krefjast þess að bankinn leyfði honum að taka út sparifé af læstum reikningi svo hann gæti borgað sjúkrareikninga föður síns. Mótmælendur hópuðust fyrir framan bankann til að krefjast þess að bankinn léti undan kröfum mannsins. 11.8.2022 18:42
Matvælastofnun og Fiskistofa muni sinna eftirliti um hvalveiðar Matvælaráðherra hefur sett reglugerð um eftirlit við hvalveiðar. Matvælastofnun er falið að hafa reglubundið eftirlit til að farið sé að lögum um velferð dýra við hvalveiðar og mun Fiskistofa sjá um framkvæmd eftirlitsins. Eftirlitið mun hefjast samstundis. 11.8.2022 17:48
„Guðfaðir glímunnar“ sem kenndi bæði Bruce Lee og Chuck Norris er allur Áhættuleikarinn og júdómeistarinn Gene LeBell, sem var gjarnan kallaður „Guðfaðir glímunnar“ og kenndi bæði Chuck Norris og Bruce Lee, er látinn 89 ára að aldri. Ásamt því að keppa í júdói og bandarískri glímu lék LeBell sem áhættuleikari í meira en þúsund myndum. 10.8.2022 23:38
Börn geti fengið of stóran skammt af svefnlyfjum vegna ósamræmis samheitalyfja Sérfræðingur í nýrnalækningum barna segir „bagalegt“ að lyfseðilsskylt svefnlyf fyrir börn fáist ekki á landinu og að samheitalyf skuli koma í mörgum mismunandi styrkleikum. Slíkt geti valdið því að börn fái of stóran skammt af svefnlyfjum. 10.8.2022 22:17
Fundu málverk metið á átta milljarða undir rúmi svikahrapps Málverk eftir Tarsila do Amaral, einn þekktasta listmálara Brasilíu, fannst falið undir rúmi meints svikahrapps í lögreglurassíu á Ipanema-strönd í Rio de Janeiro á miðvikudagsmorgun. Rassían tengdist margra milljarða listaverkastuldi og fjársvikum sem beindust að 82 ára gamalli konu. 10.8.2022 20:15
Höfundur Snjókarlsins látinn Breski teiknarinn Raymond Briggs, þekktastur fyrir að hafa skrifað barnabókina Snjókarlinn, er látinn 88 ára að aldri. 10.8.2022 18:58
Rússnesk fréttakona sem mótmælti innrásinni handtekin fyrir að gagnrýna herinn Rússneska fréttakonan Marina Ovsyannikova, sem vakti athygli í mars síðastliðnum fyrir að mótmæla innrás Rússa í Úkraínu í beinni útsendingu, hefur verið ákærð fyrir að dreifa falsupplýsingum um rússneska herinn. Hún gæti átt yfir höfði sér allt að tíu ára dóm verði hún sakfelld, segir lögmaður hennar. 10.8.2022 18:02
Hlaut lífstíðardóm fjórtán árum eftir að hafa myrt dætur sínar Yaser Said var dæmdur í lífstíðarfangelsi í dag fyrir að skjóta dætur sínar, Aminu og Söruh Said, til bana árið 2008. Eftir morðin hvarf Said sporlaust og var á flótta undan bandarísku alríkislögreglunni í tólf ár, þar til hann var handtekinn árið 2020. 10.8.2022 00:19
Ákærður fyrir að myrða tvo í Albuquerque Yfirvöld hafa ákært hinn 51 árs gamla Muhammad Syed fyrir morð á tveimur múslimum í Albuquerque í Nýju-Mexíkó en hann er einnig grunaður um að hafa orðið tveimur mönnum til viðbótar að bana. 9.8.2022 22:40