Vill sjá undanþágur vegna barna í viðkvæmri stöðu Formaður heimilis og skóla hefur áhyggjur af því að verkfall aðildarfélaga BSRB bitni mest á viðkvæmustu hópum barna. Talsvert hefur borist af undanþágubeiðnum, meðal annars frá foreldrum fatlaðra barna sem hefur verið synjað. Formaður BSRB segir ekkert samtal í gangi varðandi samninga. 15.5.2023 12:00
Segir yfirlýsingu um boðaða hækkun á leiguverði minna á vísindaskáldskap Formaður samtaka leigjenda er hræddur um að mörgum hafi brugðið þegar stjórnarformaður leigufélagsins Ölmu boðaði hækkun á leiguverði í dag. Yfirlýsing stjórnarformannsins um að leiguverð sé of lágt minni á vísindaskáldskap. 14.5.2023 19:30
Voru sextán klukkustundir að ná konunni af jöklinum Um klukkan þrjú í gær óskaði hópur gönguskíðafólks á Vatnajökli eftir aðstoð viðbragðsaðila eftir að kona úr hópnum hafði fengið sleða sem hún dró á eftir sér í höfuðið. Björgunarsveitir héldu af stað úr tveimur áttum, en þegar komið var á staðinn þar sem talið var að fólkið væri, bólaði ekkert á hópnum. 14.5.2023 13:57
Skert gæsla í frímínútum og engir stuðningsfulltrúar Verkföll hefjast að óbreyttu á morgun meðal félagsfólks í BSRB. Skert gæsla í frímínútum og engir stuðningsfulltrúar í grunnskólum eru meðal þeirra áhrifa sem verkföllin munu hafa. 14.5.2023 10:04
„Ég vil bara betra líf fyrir okkur, venjulega fólkið“ Þrátt fyrir ausandi rigningu var talsverður fjöldi fólks samankominn í miðbæ Reykjavíkur í dag, þar sem aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart heimilum og launafólki landsins var mótmælt. Formaður VR segir þetta aðeins byrjunina á nauðvörn almennings, markmiðið sé að halda áfram og troðfylla Austurvöll. 13.5.2023 19:25
„Þetta getur bara ekki gengið svona mikið lengur“ Í dag kemur í ljós hvort fólkið í landinu sé tilbúið að rísa upp og mótmæla því ástandi sem skapast hefur í samfélaginu, segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. Boðað hefur verið til mótmæla á Austurvelli klukkan tvö. 13.5.2023 11:34
Starfsfólk getur átt von á að vera sent í tilviljanarkenndar skimanir Formaður ADHD samtakana gagnrýnir að ADHD-lyf séu bönnuð meðal flugliða Icelandair og segir það fornaldarhugsunarhátt. Málið hafi áhrif á fjölda fólks sem nú þurfi að velja á milli starfs síns eða nauðsynlegra lyfja. Starfsfólk getur átt von á að vera sent í tilviljanarkenndar skimanir. 12.5.2023 13:25
„Grátbroslegt“ að Ísland sé í fyrsta sæti hvað varðar réttindi trans fólks Formaður Trans Íslands segir það grátbroslega staðreynd að réttindi transfólks séu hvergi jafn góð og hér á landi. Hinsegin fólk hefur aldrei búið við jafn sterka lagalega vernd á Íslandi og nú. 11.5.2023 20:00
„Hann getur ekki gert neinum mein og er besti vinur allra“ „Ég gæti ekki ímyndað mér að lifa án hans,“ segir dóttir konu sem tók að sér hund systur sinnar sem lést úr krabbameini. Nágrannar eru ósáttir við veru hundsins í húsinu þrátt fyrir að þeir búi ekki á sama stigagangi. Enginn hefur borið fyrir sig ofnæmi né ónæði. 5.5.2023 20:01
Rannsókn beinist að hugsanlegu manndrápi Rannsókn lögreglu á andláti ungrar konu á Selfossi í síðustu viku beinist nú að hugsanlegu manndrápi til samræmis við bráðabirgðaniðurstöður krufningar. Héraðsdómur Suðurlands hefur framlengt gæsluvarðhald til 19. maí yfir öðrum af tveimur mönnum sem handteknir voru í tengslum við málið. Maðurinn var leiddur fyrir dómara nú fyrir stundu. 5.5.2023 16:42