Engin svör um dánarorsök 135 dögum eftir andlát Sólveig Hlynsdóttir var 33 ára þegar hún lést skyndilega í júlí síðastliðnum. Fjölskylda hennar hefur allt frá því að hún lést barist fyrir svörum varðandi það hvað í ósköpunum kom fyrir. Þau segjast ekki geta reynt að jafna sig á áfallinu og lifa með sorginni fyrr en þau fái svör. Ekki eru nema tveir réttarlæknar starfandi hér á landi, þar af annar í aðeins 25 til 30 prósent stöðu. 3.12.2022 07:00
Jóladagatal Vísis: Rúmfastur í tvo daga eftir myndbandsupptökur Lagið Meðan ég sef með hljómsveitinni Í svörtum fötum kom út árið 2004 og varð gríðarlega vinsælt. Lagið er frábært en myndbandið eiginlega enn betra. Hljómsveitameðlimir sýna stórkostlegan leikursigur. Áki Sveinsson sem ljósmyndari og Einar Örn Jónsson sem reiður bílstjóri. Hrafnkell Pálmarsson er sérlega sannfærandi í hlutverki útigangsmanns. 3.12.2022 07:00
Jóladagatal Vísis: Bríet tók lagið og Sóli trylltist á hljómborðinu Lag dagsins í Jóladagatali Vísis er Feiminn með Bríet. Söngkonan ástsæla tók lagið í þættinum Föstudagskvöldi með Gumma Ben árið 2019.Bríet sló ekki feilnótu frekar en fyrri daginn en við flutningin naut hún dyggrar aðstoðar Sóla Hólms sem sýndi fádæma hljómborðsleik. 2.12.2022 07:00
Diego allur að braggast: Fyrsta myndin eftir slysið Frægasti köttur landsins og lukkudýr Skeifunnar, Diegó, er allur að koma til eftir bílslys fyrir rúmri viku. Aðdáendur Diegó hafa beðið milli vonar og ótta en geta nú andað léttar, þar sem bataferlið virðist ganga vonum framar. 1.12.2022 23:14
Pétur Örn hættir sér út úr skelinni: „Á líf hins útskúfaða virkilega að vera svona?“ Lítið hefur spurst til tónlistarmannsins Péturs Arnar, oft þekktur sem Pétur Jesú, undanfarna mánuði. Pétur dró sig í hlé frá sviðsljósinu og samfélagsmiðlum eftir að söngkonan Elísabet Ormslev steig fram í viðtali við Fréttablaðið og lýsti sambandi sínu við Pétur á sínum tíma. Hún var 16 ára þegar á sambandinu stóð en hann 38 ára. 1.12.2022 22:23
Sólborg valin framúrskarandi ungur Íslendingur Sólborg Guðbrandsdóttir hlaut í gær titilinn Framúrskarandi ungur Íslendingur 2022. Sólborg Guðbrandsdóttir er brautryðjandi í baráttu mannréttinda og réttinda kvenna. Hún hefur barist gegn skaðlegu feðraveldi og nauðgunarmenningu og hvatt ungt fólk til að breyta rétt og veitt þeim innblástur. 1.12.2022 20:56
Barnapían varð kófdrukkin, móðgaði einhvern í Todmobile og týndi barninu Auður Jónsdóttir rithöfundur segist það lengsta sem hún hafi komist með að vera frægur tónlistarmaður vera þegar hún, þá 17 ára gömul á Akureyri passaði Bryndísi Jakobsdóttur fyrir Röggu Gísla og Jakob Frímann. Þau buðu barnapíunni með í Húnaver þar sem hún fékk baksviðspassa. En einhvernveginn æxlaðist það fljótt þannig að barnapían varð kófdrukkin, móðgaði einhvern í Todmobile og týndi barninu í þvögu poppara og rokkara. 1.12.2022 19:34
Aðstoðuðu ferðamann í Landmannalaugum Flugbjörgunarsveitin á Hellu aðstoðaði erlendan ferðamann í morgun sem staddur var í Landmannalaugum og hafði fest bíl sinn í á. 1.12.2022 18:38
92 hagræðingar- og umbótatillögur samþykktar í borgarráði Borgarráð samþykkti í dag 92 tillögur meirihlutaflokka Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar um hagræðingu í rekstri borgarinnar á næsta ári upp á vel á annan milljarð króna. Meðal annars er lagt til að leggja niður dagsetrið Vin, hætta styrkjum til áfangaheimila og stöðva rekstur Seljahlíðar. 1.12.2022 18:25
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kostnaður almennings vegna samningsleysis á milli sérgreinalækna og sjúkratrygginga hefur numið fimm milljörðum króna á þessu ári að mati Öryrkjabandalagsins. Dæmi eru um að öryrkjar hafi þurft að greiða fimmtíu þúsund krónur á einum mánuði bara í komugjöld og annan aukakostnað. Þetta og margt annað í kvöldfréttum Stöðvar 2. 1.12.2022 17:38