Fréttamaður

Margrét Helga Erlingsdóttir

Margrét Helga er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Hnífstunguárás í mið­bænum, endómetríósa og hótanir Trumps

Maður á þrítugsaldri var fluttur á bráðamóttöku eftir að hafa verið stunginn með eggvopni í kvið og læri í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Árásarmaðurinn lagði á flótta eftir árásina en fannst ellefu mínútum síðar með hnífinn á sér og með blóðugar hendur. Lögreglan segir eftirlitsmyndakerfið enn og aftur hafa sannað sig. Við fjöllum nánar um þetta mál í hádegisfréttum.

Fannst ellefu mínútum síðar með stunguvopn og blóðugar hendur

Maður á þrítugsaldri var fluttur á bráðamóttöku eftir að hafa verið stunginn með eggvopni í kvið og læri í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Árásarmaðurinn lagði á flótta eftir árásina en fannst ellefu mínútum síðar með hnífinn á sér og með blóðugar hendur. Lögreglan segir eftirlitsmyndakerfið enn og aftur hafa sannað sig.

Veittu ferða­mönnum í vanda að­stoð við Héðinsfjarðargöng

Þrátt fyrir hina djúpu lægð sem gekk yfir landið í gær og í nótt þá fengu björgunarsveitir landsins ekki ýkja mörg útköll. Þrátt fyrir að vindurinn gangi hratt niður fram eftir degi og gul veðurviðvörun á bak á burt þá er von á öðrum veðurhvelli seint í kvöld. Veðurstofan varar við óveðri á Norðausturlandi, Austurlandi og Austfjörðum en gul viðvörun tekur gildi þar á miðnætti.

Slysið í Fóður­blöndunni, mögu­leg af­skipti af þjóðar­at­kvæða­greiðslu og enn meira ó­veður

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að rannsókn á sprengingunni sem varð í húsnæði Fóðurblöndunnar í Reykjavík í gærmorgun gæti tekið vikur og jafnvel mánuði en taka þarf skýrslur af fjölda vitna. Einn lést af sárum sínum eftir sprenginguna og annar liggur á sjúkrahúsi með áverka. Nánar í hádegisfréttum.

Inn­viðir og í­búðir eiga að rísa sam­tímis í Hallahverfi

Vinningstillaga í hugmyndaleit vegna rammaskipulagsgerðar á svæði Halla og nágrennis í Úlfarsárdal var kynnt á kynningarfundi borgarstjórnar um húsnæðismál fyrir hádegi. Formaður starfshóps um innviðafélag segir að íbúðir og innviðir, eins og leikskólar og götur, eigi að byggjast upp á sama tíma.

Á­kvarða stýrivexti í skugga versnandi verðbólguhorfa

Fjármálaráðherra segir tvísýnt hver ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um stýrivexti verður á fundi nefndarinnar í fyrramálið. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, mun í setti gera grein fyrir sinni spá um stýrivexti og fara yfir horfurnar í efnahagsmálunum. Það eru blikur á lofti í efnahagsmálum.

Þúsundir hringja í Skattinn

Rúmlega 267 þúsund manns hafa skilað skattframtalinu þetta árið en landsmenn hafa verið eilítið duglegri við skilin en í fyrra. Skatturinn heldur úti sérstakri símavakt sem fólk getur leitað til ef það er í vandræðum. Þangað streyma símtölin.

Sjá meira