Eigin sannfæring útskýri sögulegan klofning Sjálfstæðismanna Borgarstjóri segir að uppfærður samgöngusáttmáli muni með tíð og tíma leiða til þess að auðveldara verður fyrir borgarbúa að komast leiðar sinnar. Sáttmálinn var samþykktur í gær en Sjálfstæðisflokkurinn var þríklofinn í afstöðu sinni. Borgarfulltrúi flokksins sem sat hjá við afgreiðslu segir að þau hafi viljað leyfa sér að standa með eigin sannfæringu. 18.9.2024 13:28
Gætu þurft að taka fram fyrir hendur Seðlabankans Stjórnvöld verða að grípa inn í, hafi peningastefnunefnd Seðlabankans ekki hug á því að lækka vexti í bráð. Þetta segir þingmaður Flokks fólksins sem hvetur fólkið til þess að mótmæla við þingsetningu á morgun. 9.9.2024 23:17
Segja að ekkert muni breytast nema fólkið sýni samstöðu Verkalýðshreyfingin hefur boðað til mótmæla við þingsetningu á morgun. Verkalýðsforkólfar segjast skynja mikla reiði vegna langvarandi verðbólgu og háum vöxtum og krefjast þess að stjórnvöld setji heimilin í landinu í forgang. 9.9.2024 20:02
Þurfa ekki lengur að treysta á olíuna Nýr samningur sem Orkubú Vestfjarða og Landsvirkjun gerðu með sér í dag um sölu á raforku til fjarvarmaveitna á Vestfjörðum mun tryggja raforkuafhendingu til mikilla muna næstu fjögur árin. Forstjóri Orkubús Vestfjarða segir samninginn mikilvægan þátt í orkuskiptum Vestfjarða. 9.9.2024 11:51
Dæmi um að börn komi heim með vopn úr sólarlandaferðum Tollurinn lagði hald á átján skotvopn á fyrstu átta mánuðum ársins sem er mun meira en fyrir ári. Dæmi eru um að börn komi með vopn heim úr sólarlandaferðum með fjölskyldunni. 6.9.2024 20:02
Söluhagnaður af ólöglegri sjónvarpssölu eldsneyti glæpahópa Rúm þrjátíu prósent Íslendinga nota ólöglega sjónvarpsþjónustu. Forstjóri norrænna samtaka um hugverkavernd segir söluhagnað af ólöglega streyminu meðal annars fara í að fjármagna skipulagða glæpastarfsemi eins og vændi, fíknefnasölu og smygl. 6.9.2024 19:40
Höfundalögin „þarfnast ástar“ til að virka Stjórnarformaður Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði kallar eftir því ráðherra breyti höfundalögum á Íslandi og uppfæri til samræmis við nútímann. Allur hugverkaiðnaðurinn sé undir sem neyðist til að styðja sig við úrelt lög. Málaflokkurinn „þarfnast ástar,“ líkt og stjórnarformaðurinn komst að orði, einkar skemmtilega. 5.9.2024 13:36
Mega ekki leita að vopnum í töskum og fatnaði barnanna Vopnaburður grunnskólabarna og unglinga hefur aukist á síðustu árum segir formaður Skólastjórafélags Íslands. Enn uggvænlegri þróun hafi orðið nýlega í þá átt að ungmenni eru farin að beita vopnunum. Samfélagið sé komið á alvarlegan stað og nú þurfi að spyrna við fótum. 2.9.2024 20:00
Mættu í bleiku til að heiðra minningu Bryndísar Klöru Verzlingar mættu í bleiku í dag til að heiðra minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sautján ára stúlku sem lést af sárum sínum á föstudag. Bleikur var hennar eftirlætislitur. Forseti nemendafélagsins í Verzlunarskólanum segir að nemendur og kennarar séu í sárum og hafi viljað senda frá sér falleg skilaboð. Hann segir þörf á fræðslu um ofbeldi á landsvísu. 2.9.2024 11:45
Hefja gagngerar endurbætur á Friðarsúlunni í Viðey Framkvæmdir við gagngerar endurbætur á Friðarsúlu í Viðey eru hafnar. Skúli Helgason, formaður menningar-, íþrótta og tómstundaráðs, segir í samtali við fréttastofu að Friðarsúlan sé þörf áminning um friðarboðskap, sérstaklega vegna þróun heimsmála undanfarin ár. 30.8.2024 15:31