Svekktur og efins um fleiri veiðiferðir til Íslands Breskur laxveiðimaður sem veiddi tvo eldislaxa í Skagafirði á dögunum er efins um að hann snúi hingað aftur ef fram heldur sem horfir. Hann óttast um lifibrauð bænda, leiðsögumanna, og ferðaþjónustufyrirtækja sem þjónusta stangveiðimenn. 13.9.2023 19:48
Vilja bæta sig eftir að innra eftirlit virkaði ekki sem skyldi Forstjóri Arctic Sea, sem á Arctic Sea Farm, viðurkennir að innra eftirlit fyrirtækisins hafi ekki virkað sem skyldi í ljósi alvarlegs umhverfisslyss sem varð í Patreksfirði í ágúst. Framkvæmdastjóra Landssambands veiðifélaga berast ábendingar um eldislaxa sem veiddir hafa verið í íslenskum ám á hverjum degi en ábendingarnar eru orðnar 106 talsins. 12.9.2023 14:14
Skilnaður einn hættulegasti tímapunkturinn Sérfræðingur hjá sýslumanni segir að það geti verið stórhættulegur tímapunktur í lífi þolanda að skilja við ofbeldismann og að undirbúningur sé nauðsynlegur. Heimilisofbeldismál séu orðin hættulegri og grófari. Varahéraðssaksóknari segir að í slíkum málum komi steranotkun oft við sögu. 11.9.2023 19:03
Engin herferð í gangi gegn fólki á ADHD-lyfjum af hálfu lögreglu Engin herferð er í gangi gegn fólki á ADHD-lyfjum af hálfu lögreglu. Þetta segir formaður Landssambands lögreglumanna sem bendir á að ef aksturslag vekur grunsemdir hjá lögreglumanni geti hann ekki tekið fólk á orðinu þegar það framvísi lyfseðli því lyfseðillinn einn og sér útiloki ekki notkun annarra lyfja. Það sé sígilt vandamál innan lögreglunnar þegar fólk stígur fram og segir frá samskiptum sínum við lögreglu að lögreglan geti ekki varið sig því hún sé bundin trúnaði. 8.9.2023 11:52
„Maður fer að velta fyrir sér hvort þarna geti verið á ferðinni mannréttindabrot“ Framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands veltir því fyrir sér hvort lögregla hafi brotið á mannréttindum annars mótmælandans í hvalveiðiskipinu með því að hafa svipt hana eigum sínum. Þá þurfi það að koma til alvarlegrar skoðunar hvort lögreglan hafi gætt meðalhófs í málinu. Fólk missi ekki mannréttindi sín við að viðhafa borgaralega óhlýðni. 5.9.2023 13:37
Lögregla hafi bakað ríkinu bótaskyldu Katrín Oddsdóttir lögmaður telur að lögreglan geti verið að baka íslenska ríkinu bótaskyldu með framgöngu sinni í morgun. Valgerður Árnadóttir, talskona Hvalavina, segir að stuðningsfólk mótmælanna hafi nú barist fyrir því í fleiri klukkustundir að gefa mótmælendunum vatn. 4.9.2023 18:35
„Verðum að hafa hugrekki til að stoppa þegar við erum komin út í algjöran skurð.“ Stofnandi True North er uggandi vegna hvalveiða við Íslandsstrendur og hefur verulegar áhyggjur af vaxandi andstöðu áhrifafólks í kvikmyndaiðnaði á alþjóðavísu vegna málsins. Lögmaður fyrirtækisins segir skilningsleysi einkenna viðbrögð stjórnvöld eftir að krafa þeirra um lögbann á starfsemina var send til baka. 4.9.2023 13:16
„Ég veit hver tapar á þessu, það er almenningur“ Þorsteinn Sæmundsson, fyrrverandi þingmaður Miðflokksins, segir leyndina við uppgjör Lindarhvols hafa hvatt hann til að halda málinu á lofti. Hann segir ljóst að það sé almenningur sem tapi ef ekkert verður aðhafst í málinu. 7.7.2023 21:05
Lindarhvolsskýrslan birt Greinargerð setts ríkisendurskoðanda, Sigurðar Þórðarsonar, um Lindarhvolsmálið hefur verið birt á vefsíðu Pírata. Það að skýrslan hafi ekki verið birt var gífurlega umdeilt á sínum tíma og strandaði sú ákvörðun á forseta Alþingis. 6.7.2023 14:29
Landrisið bendi til kraftmikils goss Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir umfang og útbreiðslu landriss á Reykjanesskaga benda til þess að nægilegt kvikumagn sé til staðar til þess að búa til kraftmikið gos. Slíkt gos yrði stærra en gos á Reykjanesskaga árið 2021 og 2022. Ljóst sé að kvika sé búin að ryðja sér til rúms í efri hluta jarðskorpunnar. 5.7.2023 16:37