Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Kjartan Kjartansson, Lovísa Arnardóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa 7. apríl 2026 19:17 Sanna Magdalena oddviti Vinstrisins, Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar og Ari Edwald oddviti Miðflokksins í Reykjavík. aðsendar Útlit er fyrir að Miðflokkurinn, Viðreisn og Vinstrið verði í lykilstöðu ef mynda á þriggja flokka meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur í vor. Dreifing atkvæða á milli þeirra gæti ráðið miklu um hvort vinstri eða hægri meirihluti verður myndaður. Samfylking og Sjálfstæðisflokkur fengju í kringum 23 prósent atkvæða og sex borgarfulltrúa hvor samkvæmt kosningaspá Baldurs Héðinssonar stærðfræðings í samstarfi við fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar. Spáin byggir á niðurstöðum nýlegra skoðanakannana en gefur þeim mismunandi vægi út frá nokkrum þáttum. Kosningaspá Baldurs Héðinssonar byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Þeim er gefið vægi út frá þremur þáttum; hversu margir svara könnun, hversu langt er frá því könnunin var gerð og hver stendur að henni. Útkoman er spá um hlutfall atkvæða sem hver flokkur hlýtur. Í framhaldinu hermir kosningaspáin 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi. Fyrir hverja niðurstöðu er borgarstjórnarsætum úthlutað. Þær hermanir gefa svo mat á líkum hvers frambjóðanda að ná kjöri. Eini tveggja flokka meirihlutinn sem er mögulegur samkvæmt spánni er meirihluti Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins. Flokkarnir hefðu saman tólf menn, minnsta mögulega meirihluta. Líkur eru á að Viðreisn og Miðflokkurinn fengju þrjá fulltrúa hvor flokkur, Vinstrið tvo og Flokkur fólksins, Pírata og Framsóknarflokkurinn einn hver. Hvorki Sósíalistaflokkurinn né Okkar borg næði inn manni. Þeir mælast með þrjú og 1,8 prósent hvor um sig. Þriðji maður stórt spurningarmerki Viðreisn, Miðflokkurinn og Vinstrið eru allir með á bilinu ellefu til tólf og hálft prósent samkvæmt kosningaspánni. Það svo gott sem tryggir þeim tvo borgarfulltrúa hverjum. Þriðji maðurinn er hins vegar stærra spurningarmerki. Þriðji maður Viðreisnar hefur 72 prósent líkur á að komast inn miðað við spána, fulltrúi Vinstrisins 54 prósent en Miðflokksins 52 prósent líkur. Líkurnar á að Samfylkingin, Viðreisn og Vinstrið næðu saman eins manns meirihluta eru 52 prósent samkvæmt spánni. Rétt tæplega fimmtíu prósent líkur eru á að Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Viðreisn nái einföldum meirihluta. Þorvaldur Davíð Kristjánsson frá Viðreisn, Lárus Blöndal frá Miðflokki og Stefán Pálsson hjá Vinstrinu eru í baráttusætum eins og spáin stendur nú. Ef fleiri flokka en þrjá þarf til að mynda meirihluta eru mestar líkur á að Viðreisn, Píratar, Samfylking og Vinstrið næðu nægilega mörgum mönnum inn. Borgarstjórn Reykjavíkur kosningaspá Framsókn og Píratar á svipuðum slóðum Framsóknarflokkurinn og Píratar eru með um fimm prósent fylgi í spánni sem svo gott sem tryggði þeim einn mann hvorum flokki. Líkurnar eru gegn því að Magnea Gná Jóhannsdóttir, sitjandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, og Alexandra Briem, sem hefur verið leiðandi í borgarstjórnarflokki Pírata, nái aftur inn í borgarstjórn. Guðmundur Ingi Þóroddsson, sem skipti yfir í Flokk fólksins eftir að hann hlaut ekki framgang hjá Samfylkingunni, mælist inni fyrir nýjan flokkinn. Lítið þarf að breytast til þess að Stefán Pálsson frá Vinstrinu taki það sæti. Hnífjafnt kapphlaup Baldur Héðinsson stærðfræðingur tók spána saman. Hann segir Samfylkinguna með smá forskot samkvæmt spánni en staða flokksins og Sjálfstæðisflokksins sé svo gott sem jöfn. Báðir flokkar séu með um 23 prósenta fylgi sem jafngildi um sex fulltrúum í borgarstjórn. „Þetta er hnífjafnt kapphlaup eins og er,“ segir Baldur en rætt var við hann í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Hægt er að horfa á viðtalið að neðan. Hann segir stöðu annarra flokka spennandi. Viðreisn, Miðflokkur og Vinstrið séu í kringum ellefu eða tólf prósent sem tryggi þeim tvo fulltrúa en það sé spurning með þann þriðja. „Þarna er hörkuspenna,“ segir hann og að það séu þarna tækifæri til að bæta og ná fleirum inn. Hann segir aðra flokka mælast í kringum fimm prósent sem geti dugað fyrir einum fulltrúa en fylgið megi ekki breytast mikið þannig að þeir nái engum inn. Þetta á við um til dæmis Pírata og Framsóknarflokkinn. Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Skoðanakannanir Reykjavík Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur fengju í kringum 23 prósent atkvæða og sex borgarfulltrúa hvor samkvæmt kosningaspá Baldurs Héðinssonar stærðfræðings í samstarfi við fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar. Spáin byggir á niðurstöðum nýlegra skoðanakannana en gefur þeim mismunandi vægi út frá nokkrum þáttum. Kosningaspá Baldurs Héðinssonar byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Þeim er gefið vægi út frá þremur þáttum; hversu margir svara könnun, hversu langt er frá því könnunin var gerð og hver stendur að henni. Útkoman er spá um hlutfall atkvæða sem hver flokkur hlýtur. Í framhaldinu hermir kosningaspáin 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi. Fyrir hverja niðurstöðu er borgarstjórnarsætum úthlutað. Þær hermanir gefa svo mat á líkum hvers frambjóðanda að ná kjöri. Eini tveggja flokka meirihlutinn sem er mögulegur samkvæmt spánni er meirihluti Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins. Flokkarnir hefðu saman tólf menn, minnsta mögulega meirihluta. Líkur eru á að Viðreisn og Miðflokkurinn fengju þrjá fulltrúa hvor flokkur, Vinstrið tvo og Flokkur fólksins, Pírata og Framsóknarflokkurinn einn hver. Hvorki Sósíalistaflokkurinn né Okkar borg næði inn manni. Þeir mælast með þrjú og 1,8 prósent hvor um sig. Þriðji maður stórt spurningarmerki Viðreisn, Miðflokkurinn og Vinstrið eru allir með á bilinu ellefu til tólf og hálft prósent samkvæmt kosningaspánni. Það svo gott sem tryggir þeim tvo borgarfulltrúa hverjum. Þriðji maðurinn er hins vegar stærra spurningarmerki. Þriðji maður Viðreisnar hefur 72 prósent líkur á að komast inn miðað við spána, fulltrúi Vinstrisins 54 prósent en Miðflokksins 52 prósent líkur. Líkurnar á að Samfylkingin, Viðreisn og Vinstrið næðu saman eins manns meirihluta eru 52 prósent samkvæmt spánni. Rétt tæplega fimmtíu prósent líkur eru á að Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Viðreisn nái einföldum meirihluta. Þorvaldur Davíð Kristjánsson frá Viðreisn, Lárus Blöndal frá Miðflokki og Stefán Pálsson hjá Vinstrinu eru í baráttusætum eins og spáin stendur nú. Ef fleiri flokka en þrjá þarf til að mynda meirihluta eru mestar líkur á að Viðreisn, Píratar, Samfylking og Vinstrið næðu nægilega mörgum mönnum inn. Borgarstjórn Reykjavíkur kosningaspá Framsókn og Píratar á svipuðum slóðum Framsóknarflokkurinn og Píratar eru með um fimm prósent fylgi í spánni sem svo gott sem tryggði þeim einn mann hvorum flokki. Líkurnar eru gegn því að Magnea Gná Jóhannsdóttir, sitjandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, og Alexandra Briem, sem hefur verið leiðandi í borgarstjórnarflokki Pírata, nái aftur inn í borgarstjórn. Guðmundur Ingi Þóroddsson, sem skipti yfir í Flokk fólksins eftir að hann hlaut ekki framgang hjá Samfylkingunni, mælist inni fyrir nýjan flokkinn. Lítið þarf að breytast til þess að Stefán Pálsson frá Vinstrinu taki það sæti. Hnífjafnt kapphlaup Baldur Héðinsson stærðfræðingur tók spána saman. Hann segir Samfylkinguna með smá forskot samkvæmt spánni en staða flokksins og Sjálfstæðisflokksins sé svo gott sem jöfn. Báðir flokkar séu með um 23 prósenta fylgi sem jafngildi um sex fulltrúum í borgarstjórn. „Þetta er hnífjafnt kapphlaup eins og er,“ segir Baldur en rætt var við hann í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Hægt er að horfa á viðtalið að neðan. Hann segir stöðu annarra flokka spennandi. Viðreisn, Miðflokkur og Vinstrið séu í kringum ellefu eða tólf prósent sem tryggi þeim tvo fulltrúa en það sé spurning með þann þriðja. „Þarna er hörkuspenna,“ segir hann og að það séu þarna tækifæri til að bæta og ná fleirum inn. Hann segir aðra flokka mælast í kringum fimm prósent sem geti dugað fyrir einum fulltrúa en fylgið megi ekki breytast mikið þannig að þeir nái engum inn. Þetta á við um til dæmis Pírata og Framsóknarflokkinn.
Kosningaspá Baldurs Héðinssonar byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Þeim er gefið vægi út frá þremur þáttum; hversu margir svara könnun, hversu langt er frá því könnunin var gerð og hver stendur að henni. Útkoman er spá um hlutfall atkvæða sem hver flokkur hlýtur. Í framhaldinu hermir kosningaspáin 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi. Fyrir hverja niðurstöðu er borgarstjórnarsætum úthlutað. Þær hermanir gefa svo mat á líkum hvers frambjóðanda að ná kjöri.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Skoðanakannanir Reykjavík Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira