Ekki komin á þann stað að ráðherrar þurfi lífverði Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, telur ekki að íslensk þjóð sé komin á þann stað að æðstu ráðamenn þjóðarinnar þurfi á lífvarðargæslu að halda öllum stundum þrátt fyrir fréttir síðustu vikna um að tveir menn eigi að hafa rætt sín á milli um að ráða tiltekið stjórnmálafólk af dögum. 18.10.2022 17:45
Segir lækkun heimsmarkaðsverðs á matvælum ekki skila sér til Íslands Alþjóðleg vísitala hrávöruverðs sýnir að verðhækkanir sem urðu í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu hafa gengið til baka en hún mælist nú svipað og fyrir innrás Rússa. Verkefnisstjóri verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands segir að sömu þróun sé ekki fyrir að fara hér á landi. 18.10.2022 13:38
„Við ætlum ekki að glutra niður þessu tækifæri“ Nýráðinn forstjóri Menntamálastofnunar telur að með boðuðum breytingum barna- og menntamálaráðherra muni íslenska skólakerfið nútímavæðast og verða betur í stakk búið að innleiða nýjungar í kennslu. Nýrri stofnun er ætlað að vera þjónandi og styðjandi við starfsfólk skólanna. 18.10.2022 13:05
Vekur athygli á „óbærilegum kostnaði tilverunnar“ Á alþjóðlegum baráttudegi gegn fátækt vill samhæfingarstjóri Pepp-samtakanna vekja athygli á „óbærilegum kostnaði tilverunnar“ nú þegar allar nauðsynjar fara hækkandi. Hún segir stöðu einstæðra foreldra sem þurfa að reiða sig á örorkulífeyri vera alvarlega. 17.10.2022 13:55
Stjórn Prestafélagsins fundar í dag í skugga afsagnar formanns Stjórn Prestafélags Íslands fundar í dag um næstu skref nú í kjölfar þess að formaður félagsins hefur sagt af sér eftir vantraustsyfirlýsingu prestvígðra kvenna. Varaformaður félagsins segir forgangsmál að lægja öldurnar. 14.10.2022 14:34
Telur laskað Alþýðusamband koma launafólki illa Staðan í verkalýðshreyfingunni lítur ekki vel út og kemur illa við launafólk. Þetta segir dósent í sagnfræði sem hefur sérhæft sig í sögu verkalýðshreyfingarinnar. Ástandið, eins og það blasir við nú, minnir hann helst á árin fyrir seinna stríð þegar allt logaði stafnanna á milli innan verkalýðshreyfingarinnar. 13.10.2022 13:10
„Það er ekkert eðlilegt við að kennarar í dag séu öryrkjar út af ofbeldi nemenda“ Líkamlegt ofbeldi grunnskólabarna færist í aukana og verður sífellt grófara. Þetta er þróun sem skólastjórnendur í Reykjavík hafa numið í sínum störfum. Þeir segja algeran skort á stuðningi og miðstýrðum verkferlum. Kennari segir samfélagið verða að vakna til meðvitundar um alvarleika málsins; það sé ekki eðlilegt að missa kennara í örorku vegna ofbeldis nemenda. 11.10.2022 11:53
„Nafn mitt kom fram í tengslum við fólk sem átti að drepa“ Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata, Helgi Hrafn Gunnarsson og Smári McCarthy, fyrrverandi þingmenn Pírata, voru allir þrír kallaðir til sem vitni í skýrslutöku vegna rannsóknar lögreglunnar á ætlaðri skipulagningu hryðjuverka. 10.10.2022 16:34
Minna álag sé samvinnufúsum almenningi og góðum undirbúningi að þakka Verkefnastjóri aðgerðamála hjá Landsbjörg segir góðan undirbúning almannavarna og samvinnufúsan almenning hafa stuðlað að því að verkefni björgunarsveita voru færri en ráð hafði verið gert fyrir vegna óveðursins sem gekk yfir landið í gær og í nótt en þau voru þrjátíu talsins. Veðurfræðingur segir veðurspár hafa ræst að mestu. 10.10.2022 11:53
Telur að Ólafur hafi þegið ofgreidd laun í góðri trú Hæstaréttarlögmaður telur að framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs hafi verið í góðri trú þegar hann þáði mánaðarlega þóknun í sjö ár fyrir störf í stýrinefnd sem lögð hafði verið niður. Þá sé það langsótt að varpa ábyrgð á mistökum Fjársýslu ríkisins yfir á stjórn og framkvæmdastjóra. 7.10.2022 12:18