Ekki auðvelt að feta í fótspor Þórólfs Það verður ekki auðvelt að fylla í það skarð sem Þórólfur Guðnason skilur eftir. Þetta segir Guðrún Aspelund nýráðinn sóttvarnalæknir. Starfið sé krefjandi en hún kveðst treysta sér í verkefnið. Það sem sé mest aðkallandi nú sé að hvetja aldraða og fólk í áhættuhópum til að fara í bólusetningu gegn COVID-19. 21.6.2022 13:10
Undrun og vonbrigði innan OECD með framgang Samherjamálsins á Íslandi Drago Kos, yfirmaður vinnuhóps OECD gegn mútum, segir að það sé nánast vandræðalegt fyrir Ísland að yfirvöld í Namibíu dragi vagninn í rannsókn á Samherjamálinu. Hann tekur þó fram að hann vanmetur ekkert land. Hópurinn hefur fylgst með framvindu málsins og krefst nú svara frá yfirvöldum á Íslandi vegna afskipta lögreglu af blaðamönnum. 18.6.2022 20:00
„Þessir gömlu stálfákar eru eins og að setjast í mjúkan lazyboy“ Að setjast undir stýri í gömlum stálfáki er líkt og að láta sig sökkva ofan í mjúkan hægindastól. Þetta segir formaður Bílaklúbbs Akureyrar um hina haganlega smíðuðu fornbíla. Þrjú hundruð af glæsilegustu bílum landsins, gömlum og nýjum, verða á hátíðarsýningu á bíladögum á Akureyri. 16.6.2022 12:02
Segir leiguverð ekki þurfa að fylgja hækkandi fasteignaverði Leiguverð hefur ekki mælst lægra að raunvirði síðan 2017. Hagfræðingur hjá Húsnæðis-og mannvirkjastofnun segir leiguverð ekki alltaf þurfa að fylgja fasteignaverði. Kostnaður við að eiga og reka íbúð hafi ekki hækkað mikið 15.6.2022 14:21
Beitir sér fyrir stofnun Félags strætófarþega: „Mikilvægt að valdið komi neðan frá“ Borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins hyggst beita sér fyrir stofnun Félags strætófarþega og vill vera milliliður notenda Strætó og stjórnkerfisins. Hann segir alveg ljóst að bestu tillögur til úrbóta myndu koma frá farþegunum sjálfum. Flokkurinn mun leggja fram tillögu í borgarstjórn um að farþegar og vagnstjórar fái fulltrúa í stjórn Strætó. 14.6.2022 14:49
Telja fullvíst að viðvörunin hafi verið villuskilaboð Í nótt var rauðu neyðarstigi lýst yfir á Keflavíkurflugvelli vegna farþegaþotu PLAY sem var að koma inn til lendingar. Kerfi vélarinnar sendi viðvörun um að vandamál væri með varaeldsneyti en forsvarsmenn telja fullvíst að um villu hafi verið að ræða. Til stóð að sama vél færi til Parísar í dag en fluginu hefur verið frestað til morguns því verið er að ganga úr skugga um að ekkert sé að vélinni. 13.6.2022 14:25
Ungt félagshyggjufólk um allan heim fordæmir fjöldabrottvísanir Alþjóðasamtök ungliðahreyfinga jafnaðar- og félagshyggjuflokka (IUSY) fordæma fyrirhugaðar fjöldabrottvísanir flóttafólks á Íslandi. Neyðarályktun þess efnis var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á heimsþingi IUSY sem fór fram í höfuðborg Albaníu dagana 2.-4. júní. 10.6.2022 17:45
Apabóla nú skilgreind sem tilkynningarskyldur sjúkdómur Apabóla er nú skilgreind sem tilkynningarskyldur sjúkdómur eftir að heilbrigðisráðherra gerði breytingu á reglugerð um skýrslugerð vegna sóttvarna. 10.6.2022 12:01
Býst við fleiri tilfellum af apabólu á næstu dögum Tveir íslenskirkarlmenn á miðjum aldri greindust með apabólu á fyrsta prófi hér á landi í gær. Smitin eru rakin til ferðalags annars þeirra til Evrópu. Hvorugur er alvarlega veikur. Sóttvarnalæknir býst við fleiri tilfellum á næstu dögum en telur ekki líkur á stórum faraldri. Rætt var við sóttvarnalækni í hádegisfréttum Bylgjunnar. 9.6.2022 12:06