Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Meiriháttar truflanir eru á greiðslumiðlun í Danmörku, Svíþjóð og í Noregi. Ástæðan er bilun í tölvukerfi hjá greiðslumiðluninni Nets, sem er ein sú stærsta á Norðurlöndum. 21.5.2026 11:41
„Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Fyrrverandi þingmaður segir mál manns á Suðurnesjum sem lögregla skaut með rafbyssu sýna fram á að „rafbyssugríma“ lögreglu sé fallin. Almenningi hafi verið talin trú um að mál lögreglu yrðu leyst með minni valdbeitingu en annars þyrfti með notkun rafbyssa, málið sýni fram á hið gagnstæða. 21.5.2026 11:04
Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Listi Samfélagsins, Z-listinn fékk flest atkvæði í Mýrdalshreppi. Listinn fékk 58,1 prósent atkvæða og þrjá sveitarstjórnarfulltrúa af fimm. 21.5.2026 10:20
Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Mikil mildi er að ekki hafi farið enn verr þegar eldsvoði kom upp í eldhúsinu í íbúð þeirra Fanneyjar Dóru Veigarsdóttur og Arons Ólafssonar í Grafarvogi á miðvikudag í síðustu viku. Aron slapp með 2. stigs bruna á höndum eftir að hafa slökkt í eldinum en íbúðin er mikið skemmd vegna sóts. Þau vilja fyrst og fremst minna á mikilvægi eldvarna eftir ömurlega lífsreynslu. 20.5.2026 16:25
Berglind Ósk sögð næsti bæjarstjóri Akureyrar Berglind Ósk Guðmundsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri er sögð verða næsti bæjarstjóri. 20.5.2026 16:02
Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Ásthildur Sturludóttir lætur af störfum um næstu mánaðarmót sem bæjarstjóri Akureyrarbæjar eftir átta ár í starfi. Hún greinir frá þessu í tilkynningu á samfélagsmiðlum. 20.5.2026 15:14
Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Vel fór á með oddvitum Sjálfstæðisflokks, Framsóknar, Miðflokks og Viðreisnar á tveggja tíma hádegisfundi að sögn Hildar Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins. Hún segir þó enga sérstaka niðurstöðu liggja fyrir hvað varðar myndun meirihluta og segist þurfa að ráða ráðum sínum hvað varðar næstu skref. 20.5.2026 14:27
Óska eftir vitnum að líkamsárás í Lækjargötu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum og upplýsingum frá þeim sem búa yfir upptökum af líkamsárás sem átti sér stað á að morgni sunnudags 17. maí rétt fyrir klukkan 06:00. 20.5.2026 13:29
Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Meðal ástæðu þess að dregist hefur að mynda tveggja flokka meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í borginni er að sumir Sjálfstæðismenn eru enn hræddir við „vókið,“ að mati Björns Inga Hrafnssonar aðstoðarmanns Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins. Hann telur að þegar Sjálfstæðismenn nái jarðsambandi muni þeir mynda tveggja flokka meirihluta í Reykjavík með Miðflokknum og segir menn verða að hætta að vera litlir í sér. Geri þeir það ekki gætu þeir allt eins myndað meirihluta með Samfylkingunni. 20.5.2026 10:29
Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning nú síðdegis um hnífamann í Hafnarfirði. Þetta staðfestir Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. 19.5.2026 16:01