Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Aron Guðmundsson skrifar 16. október 2026 07:24 Arnar Gunnlaugsson í Tallinn fyrir leik Íslands og Eistlands en ekki svo löngu áður hafði komið upp mál í tengslum við agabrot nokkurra leikmanna íslenska landsliðsins sem átti eftir að hafa áhrif á undirbúning liðsins fyrir umræddan leik sem endaði með markalausu jafntefli, orkulausri frammistöðu. Vísir/Getty Agabrot landsliðsmanna á dögunum er ekki í fyrsta skipti sem upp hefur komið mál í landsliðsþjálfaratíð Arnars Gunnlaugssonar. Hans fyrstu viðbrögð voru að reka umrædda leikmenn heim en ljóst sé að skömm þeirra sé nægilega mikil refsing. Arnar er sáttur við hvernig tekið hefur verið á málinu, því sé nú lokið en hafi haft áhrif á frammistöðu liðsins í leik gegn Eistum. „
Það sem gerðist þetta kvöld er náttúrulega bara óásættanlegt. En mikilvægast af öllu er að hópurinn tókst á við þetta á mjög sterkan hátt,“ segir Arnar í samtali við Vísi en viðtalið í heild sinni má sjá hér í spilaranum: Klippa: Skömm þeirra er brutu af sér nægileg refsing Umrædd agabrot áttu sér stað á laugardagskvöldi eftir sigurleik gegn Búlgaríu hér heima. Fjárhættuspil nokkurra leikmanna og áfengisneysla. Fyrstu viðbrögð hjá Arnari er hann fékk fréttirnar að kvöldi til á sunnudegi, þegar liðið hafði ferðast til Tallinn í Eistlandi, voru að reka leikmennina heim úr landsliðsverkefninu. „En svo kannski fer maður aðeins í þetta mannlega, talar við viðkomandi leikmenn og finnur fyrir mikilli iðrun af þeirra hálfu. Finnur líka fyrir því að þessi ákvörðun þeirra er ekki tekin bara til þess að verða einhver pörupiltur og sýna mér einhverja vanvirðingu. Þetta er miklu dýpra heldur en það og þá færðu virkilega þá stöðu að þig langar bara kannski að hjálpa viðkomandi leikmönnum, skilja hvað er í gangi.“ Um nokkra leikmenn íslenska landsliðsins er að ræða sem Arnar vill ekki nafngreina. Skömmin verði til þess að þeir læri sína lexíu. Ertu þá ekki að setja alla undir sama hatt í landsliðinu? „Algjörlega.“ Þeir sem standa eftir hljóta að vera ósáttir við þetta? „Ég held að hópurinn sé sáttur við hvernig tekið var á þessu máli. Hinn almenni áhugamaður hefur ekki alveg vitneskju um hvað er að gerast bak við tjöldin í svona máli eða öðrum. En svo kannski má vel vera og ég skil það mjög vel, að einn eða tveir hugsi með sér: „Bíddu, af hverju var þetta ekki gert og af hverju ekki hitt? Af hverju fékk ég ekki að spila út frá þessu og svo framvegis og svo framvegis?“ Frá leiknum gegn Búlgaríu. Íslensku landsliðsmennirnir fagna markiVísir/Getty Áður komið upp „lítillegt“ mál í Skotlandi Talandi um sögur, af því að þær hafa óneitanlega farið á kreik eftir að þetta varð opinbert, þá hefur meðal annars heyrst að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem leikmenn gerist sekir um agabrot undir þinni stjórn í landsliðinu, er það rétt? „Ekki svona agabrot. Það hefur verið meira kannski… það gerðist einu sinni fyrr í landsliðsverkefni í Skotlandi að mig minnir. En það var mjög lítillegt. Það var kannski meira svona eitthvað sem var ekki alveg kannski ljóst af minni hálfu. Þetta er í fyrsta skipti sem eitthvað gerist og maður hugsar með sér: „Ókei, hvað er í gangi hérna?“ Frá æfingarleik Skotlands og Íslands á Hampden Park í júní árið 2025.Vísir/Getty Fengu spark í andlitið Ákveðinn rammi er til varðandi reglur í íslenska landsliðinu. Arnar vill þó ekki vera að tönglast á því við sína leikmenn að þeir eigi ekki að drekka áfengi milli leikja. Þeir eigi bara að vita betur. „Leikurinn við Búlgaríu var á laugardegi. Við erum að fara í ferðalag á sunnudegi. Það er leikur á þriðjudag. Það er rosa skrýtið í mínum huga að þurfa að segja leikmanni, þegar þú gefur honum frelsi til að fara út og hitta fjölskyldu, vini og vandamenn í löngum og ströngum glugga, að drekka ekki áfengi það kvöld. Mér finnst það bara fyrir neðan mína virðingu að vera að setja svoleiðis reglur af því ef menn skilja þetta ekki þá eiga þeir ekki að vera í þessum bransa. Menn fengu svolítið svona spark í andlitið núna og samtölin sem áttu sér stað eftir þetta sjái til þess að þetta sé ekki að fara að gerast aftur. Ef þetta er að fara að gerast aftur þá ertu ekki að bregðast mér. Þá ertu að bregðast þínu fólki, þér sjálfum og þínum feril sem leikmaður.“ Sýndu þessir leikmenn iðrun? „Meira en iðrun. Þeir voru mjög leiðir yfir þessu. Ég er mjög stoltur af mínum fyrirliða, Orri Steini, fyrir að hafa kallað leikmannahópinn saman og haldið góðan fund. Án aðkomu minnar. Það er mikilvægt að leikmenn fái að pústa. Við stigum skref í að verða alvöru fullorðinslið með því að tala hvorn annan til og veita aðhald. Ég var mjög sáttur við það. En á endanum er það þessara leikmanna, sem að gerðu þessa hluti, að sjá til þess að þetta gerist ekki aftur. “ Orri Steinn Óskarsson, landsliðsfyrirliði, kallaði til fundar meðal leikmanna í Eistlandi eftir að málið kom upp.Vísir/Getty Hafði áhrif í leiknum gegn Eistlandi Þú sendir leikmenn ekki heim en á eftir fylgir leikur á móti Eistlandi ytra. Leikskipanin þar, uppstillingin, tók hún mið af þessu agabroti? Var einhverjum leikmönnum refsað með slíkum hætti? „Erfitt að nota orðið refsa. Þetta er meira þannig að þú ert búinn að lesa hópinn, reyna að finna taktík og leikmenn sem eru að fara hjálpa þér að vinna leikinn og koma okkur í geðveika stöðu í riðlinum. Þetta var meira þannig. Það var búið að gera upp þessi mál fyrir leikinn, bæði á einstaklings- og liðsfundum.“ Fyrir leik gegn Eistlandi í Tallinn á dögunum. Niðurstaðan markalaust jafntefli og atburðir liðanna daga sátu í mönnumVísir/Getty Undirbúningurinn að sjálfsögðu ekki kjörinn fyrir leikinn ytra gegn Eistlandi. „Mönnum líður ekkert vel yfir þessu og það er nógu erfitt að spila fótboltaleik, hvað þá landsleik í nútímaárferði og vera ekki með einhvern bagga hangandi yfir sér þegar leikurinn hefst. Það var kannski augljóst að við vorum ekki alveg ofan á í þessum leik. Þess vegna sagði ég í viðtali eftir leik, án þess að hafa útskýrt það, að stigið hafi bara verið nokkuð gott.“ Þannig að þetta mál hefur haft áhrif á landsleikinn sem að kemur á eftir, frammistöðuna þar og óneitanlega þá úrslitin í kjölfarið? „Þú þarft að vera bara snarblindur til að sjá það ekki. Þegar atvik kemur upp svona sólarhring fyrir mikilvæga leiki. Auðvitað, þrátt fyrir að einhver muni segja að þetta hafi ekki haft nein áhrif, þá auðvitað hefur það áhrif á leikmenn og hópinn.“ Túlkar þetta ekki sem virðingarleysi gagnvart sér Málinu er lokið frá bæjardyrum Arnars séð og mun ekki hafa áhrif á landsliðsval hans fyrir næsta verkefni í nóvember. Hann er sáttur með það hvernig tekið var á málinu. Það að leikmenn leyfi sér þetta samt í landsliðsferðunum. Einhverjir myndu kannski túlka þetta sem dálítið svona virðingarleysi gagnvart þér sem landsliðsþjálfara. Er það eitthvað sem þú hefur íhugað, bera þessir leikmenn ekki nægilega mikla virðingu fyrir þér í starfi? „Það fer eftir því hvernig glæpurinn var framinn. Var hann framinn með einhverjum ásetningi um að sýna mér og öðrum leikmönnum vanvirðingu? Eða eru einhverjar dýpri og kannski aðeins merkari ástæður að baki. Ég er svona að reyna ýja að því að það seinna hafi verið kannski aðalástæðan fyrir því að menn fóru kannski aðeins yfir strikið. Ég held að þetta hafi ekki verið þannig að menn hafi verið veltandi niðri í bæ blindfullir. Það voru bara reglur brotnar sem að öll frábær lið þurfa að virða til þess að eiga möguleikann á árangri.“ Arnar í rigningunni á Laugardalsvelli þegar Ísland spilaði gegn BúlgaríuVísir/Anton Brink „Ástæðan var ekki eitthvað virðingarleysi gagnvart mér. Ég held meira að þeir hafi bara brugðist sjálfum sér og liðsfélögunum, mér svo í þriðja sæti. Þekkjandi það þegar maður var lítill polli þá var ekkert endilega besta refsingin þegar mamma og pabbi voru að öskra á mann. Besta refsingin var þegar þú upplifðir það að þú varst að bregðast foreldrunum, gerðir eitthvað rangt. Ég held vissulega að þeir hafi tekið út sína refsingu, bara hvernig tilfinningin þeirra var eftir að þeir áttuðu sig á stöðunni og hvernig hópurinn þeirra brást við, hvernig ég brást við. Það sé eiginlega nægilega mikil refsing til þess að þetta muni ekki gerast aftur og viðkomandi leikmenn munu í raun og veru gera eitthvað í sínum málum.“ Mun ekki koma fyrir aftur Málið kemur upp á tíma þar sem að stemningin fyrir íslenska landsliðinu hefur litið betri daga. Dræm mæting hefur verið á leiki í Laugardalsvelli, ný kynslóð að fóta sig og úrslitin höfðu ekki verið að detta fyrir liðið en sigurleikir í nýafstöðnum glugga höfðu kveikt vonarneista. Leikmenn fagna með stuðningsmönnum Íslands eftir sigur gegn Búlgaríu hér heima áður en haldið var til Tallinn degi seinnaVísir/Anton „Þetta er bara vanvirðing gagnvart öllum. Stuðningsmönnum, þjóðinni, leikmönnum, stjórn og þjálfurum. En hvað er til ráða þá? Menn iðrast. Það er búið að loka málinu. Ég held að stuðningsmenn séu fljótir að fyrirgefa hetjunum sínum ef þeir sýna fram á það í næstu leikjum að þeir í raun og veru elski að vera í bláu treyjunni og gefa fólkinu blóð, svita og tár. Þá eru menn fljótir að hoppa aftur á vagninn. Ég vil frekar fara í þennan mannlega þátt. Menn gera mistök og læra af því. Í þessu lífi þá er það bara gamli og enski frasinn sem á alltaf við: „You learn it the hard way.“ En þú verður svo sannarlega að læra af mistökum til að komast áfram í þessu lífi. Hefði ég kosið að þessi mál hefðu aldrei komið upp? Já, að sjálfsögðu. En þetta mál kom upp og það þarf ekkert að væla yfir því. Við bara tókumst á við þetta af ákveðni og þetta mun ekki koma fyrir aftur.“ Viðtalið við Arnar í heild sinni má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni. Þá er hægt að nálgast viðtalið á öllum helstu hlaðvarpsveitum sem og í spilara hér fyrir neðan:
Landslið karla í fótbolta Fótbolti Þjóðadeild karla í fótbolta KSÍ Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Körfubolti Fleiri fréttir Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjá meira