Kvöldfréttir Stöðvar 2 Konur og kvár lögðu niður störf í dag og fjölmenntu á baráttufundi um land allt. Stærsti fundurinn var í miðbænum og talið er að allt að hundrað þúsund hafi komið saman á Arnarhóli. 24.10.2023 18:02
Kom til landsins fyrir rúmum sjö tímum og er enn í haldi Rúmensk kona sem lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan hálf fjögur í dag, hefur verið í haldi lögreglu inni í lokuðu herbergi á flugvellinum frá því að hún lenti fyrir rúmum sjö tímum síðan. Lögmaður hennar segir ljóst að ekki sé löglegt að meina konunni inngöngu í landið, enda sé um að ræða EES-borgara í atvinnuleit hérlendis. 23.10.2023 23:30
Börn að bera hæstan kostnað af stríðinu Framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi segir börn bera hæstan kostnað vegna stríðsins fyrir botni Miðjarðarhafs. Hún segir andrúmsloftið í Miðausturlöndum einkennast af spennu og sorg 23.10.2023 21:30
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Aukinn þungi er í árásum Ísraelshers á Gaza og hátt í fimm hundruð létust í loftárásum í nótt. Brýn þörf er á hjálpargögnum og læknir segir ungbörn og sjúklinga í bráðri hættu. 23.10.2023 18:00
Hættur við að fá gestaþjóna í kvennaverkfalli og biðst afsökunar Haraldur Þorleifsson, eigandi veitingahússins Önnu Jónu, er hættur við að fá þjóðþekkta einstaklinga til að hlaupa í skarðið fyrir kvenkyns þjóna á morgun í tilefni af kvennaverkfalli. 23.10.2023 17:46
Seltirningar þreyttir á lélegum grenndargámum Reykjavíkur og setja upp sína eigin Seltirningar hafa nú í bígerð að koma upp tveimur grenndarstöðvum á Seltjarnarnesi. Bæjarstjóri Seltjarnarness segir íbúa vesturbæjar Reykjavíkur því ekki þurfa að hafa áhyggjur af auknu álagi á grenndargáma í Vesturbænum. Hann hefur áhyggjur af nýjum gangbrautarljósum við JL húsið og segir íbúa ekki spennta yfir tilhugsuninni um sameiningu við Reykjavík. 20.10.2023 06:46
Samherji borgar ekki laun starfsfólks í kvennaverkfalli Norðlenska fiskvinnslufyrirtækið Samherji hyggst ekki greiða konum og kvárum sem vinna hjá fyrirtækinu laun mæti þau ekki til vinnu næsta þriðjudag, þegar boðað hefur verið til kvennaverkfalls. Starfsfólki er þó frjálst að skreppa á 45 mínútna mótmælafund á Akureyri. 19.10.2023 16:29
Ökumaður alvarlega slasaður eftir slys á Breiðholtsbraut Annar ökumannanna sem fluttur var á slysadeild eftir alvarlegt umferðarslys á Breiðholtsbraut í Reykjavík á tólfta tímanum í gær er alvarlega slasaður. 19.10.2023 14:59
Segja upp allt að fjórtán þúsund manns Finnska fjarskiptafyrirtækið Nokia hyggst segja upp á milli níu þúsund til fjórtán þúsund starfsmanna fyrir lok árs 2026. Er um að ræða aðhaldsaðgerðir. Um er að ræða rúmlega sextán prósent af heildarfjölda starfsfólks. 19.10.2023 14:43
Hákarlinn kom alltaf nær og nær „Við bjuggumst alveg við því að sjá hvali, enda mikið af þeim þarna fyrr um daginn og meira að segja höfrungar, en við bjuggumst ekki við því að sjá hákarl,“ segir Skarphéðinn Snorrason sem var ásamt systur sinni, kærasta hennar og hundi á bát í Steingrímsfirði þegar þau tóku eftir ugga hákarls sem veitti bátnum eftirför. 19.10.2023 13:23