Nýr erfingi á leiðinni í Bretlandi Beatrice prinsessa af Bretlandi á von á sínu öðru barni með eiginmanninum Eduardo Mapelli Mozzi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bresku konungsfjölskyldunni, að því er fram kemur í breskum miðlum. 1.10.2024 14:19
Jákvæðni í algleymingi á Bylgjunni þessa vikuna Jákvæðni verður í algleymingi á útvarpsstöðinni Bylgjunni í þessari viku þar sem nú fer fram sérstök jákvæðnivika. Spiluð verður jákvæðari tónlist og mun dagskrárgerðarfólk leggja sig fram um að segja frá jákvæðum fréttum og viðburðum og koma með góð ráð til þess að létta lundina. 1.10.2024 13:02
Fóru líka upp á eiginkonuna fyrir besta útsýni landsins Garpur og félagar fóru í þetta skiptið upp á báða toppa Tindfjalla í Okkar eigið Ísland, toppa sem kenndir eru við hjónin Ýmu og Ými. Í þættinum má sjá stórbrotið útsýni sem Garpur segir besta útsýni sem hann hefur fengið á Íslandi. 30.9.2024 20:01
Ekki lengur undir sérstöku eftirliti Tónlistarmaðurinn Sean Combs, betur þekktur sem P Diddy, er ekki lengur undir sérstöku eftirliti, svokallaðri sjálfsvígsvakt. Þetta segir lögmaður tónlistarmannsins sem nú er í haldi lögreglu vestanhafs vegna meintrar skipulagðrar glæpastarfsemar, mansals, mútuþægni og kynferðisbrota. 30.9.2024 15:00
Útilokar ekki að bjóða sig aftur fram Sigríður Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra segist hafa þykkan skráp og að hún hafi aldrei tekið gagnrýni persónulega þegar hún var í stjórnmálum. Sigríður, sem er gestur í podcasti Sölva Tryggvasonar, segir að það sem gerðist í Covid-faraldrinum megi ekki endurtaka sig, hún segist sjálf hafa verið með „underground“ ræktaraðstöðu á þeim tíma og óttast lögreglu. Þá útilokar hún ekki að bjóða sig aftur fram til þings. 30.9.2024 11:02
Inga Lind gengin út Inga Lind Karlsdóttir eigandi Skot Productions er gengin út. Sá heppni heitir Sigurður Viðarsson og er viðskiptamaður. 30.9.2024 09:24
Lítil tengsl við okkar innri kynveru koma niður á kynlífinu Íris Stefanía Skúladóttir listakona segir allt of marga ekki vera í tengslum við sína innri kynveru hér á landi. Hún segir það mikinn misskilning að það að vera kynferðislegur sé það sama og að hafa náð góðum tengslum við kynveruna. 30.9.2024 07:02
Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður segir það hafa verið foreldrum sínum talsvert áfall þegar hann féll á stúdentsprófi í Versló og þá sérstaklega móður hans sem var búin að skipuleggja stúdentsveisluna. Hann segist enn vera spurður að því af stöku leigubílstjóra hvernig honum hafi dottið í hug að ráða eiginkonu sína í vinnu, þrátt fyrir að það hafi alls ekki verið raunin. 29.9.2024 07:02
Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu. 28.9.2024 07:00
„Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður segir ekkert að því að menn vaði í hann í opinberri umræðu. Öðru máli gegni um það þegar vaðið sé í fjölskyldu hans en þá segist Stefán Einar taka af sér boxhanskana. 27.9.2024 20:02