Segja eldsupptök ekki tengjast veitingastaðnum Upp kom eldur í Turninum á Höfðatorgi um hádegisbilið í dag. Rýming gekk vel og var slökkviliðið fljótt á vettvang og náði tökum á eldinum. Guðríður María Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Múlakaffis sem rekur veitingastaðinn Intro á Höfðatorgi, segir eldsupptök ekki hafa tengst veitingastaðnum á nokkurn hátt. Eldsvoðinn var að mestu leyti einskorðaður við veitingastaðinn. 26.6.2024 16:28
Jarðhitasýningin í Hellisheiðarvirkjun fékk óvænta heimsókn Stjarneðlisfræðingurinn og vísindamiðlarinn bandaríski Neil deGrasse Tyson heimsótti í dag jarðhitasýninguna við Hellisheiðarvirkjun. Jarðhitasýningin er eins konar fræðslusetur þar sem gestir geta lært um hvernig jarðvarmi er nýttur til að framleiða rafmagn fyrir landið og heitt vatn fyrir höfuðborgarsvæðið. 26.6.2024 14:53
Hlupu út úr turninum með mat á diskum og rúllur í hárinu Eldur kviknaði á jarðhæð turnsins á Höfðatorgi fyrir hádegi í dag en búið er að slökkva hann. Rýma þurfti bygginguna sem var ekkert smáræði þar sem mörg hundruð manns starfa í turninum. Allmargir biðu átekta fyrir utan Höfðatorg án þess að vita hvað þeir ættu að gera við sig þar sem þeir neyddust margir til að skilja bíllykla, húslykla og aðrar 26.6.2024 13:48
Eldsvoði á Höfðatorgi Slökkvilið hefur ráðið niðurlögum elds sem kviknaði á Höfðatorgi í Katrínartúni um klukkan 11:30. 26.6.2024 11:35
Í maí voru 5800 atvinnulausir Í maí á þessu ári voru 5800 einstaklingar atvinnulausir. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra einstaklinga var 2,5 prósent, hlutfall starfandi var áttatíu prósent og atvinnuþátttaka 82 prósent. 26.6.2024 10:55
Hinn grunaði í Kjarnagötu enn í gæsluvarðhaldi Maður sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana á Akureyri í lok aprílmánuðar er enn í gæsluvarðhaldi og segir Jóhannes Sigfússon aðstoðaryfirlögregluþjón á Akureyri að rannsókn málsins sé langt komin. 26.6.2024 10:21
Fjöldi látinn eftir árásir á sýnagógu og kirkjur Að minnsta kosti sex lögregluþjónar og einn prestur létust í skotárásum í tveimur borgum í Dagestan á sunnanverðu Rússlandi í dag. Árásarmenn hófu skothríð í sýnagógu, tveimur kirkjum og lögreglustöð. 23.6.2024 23:02
Ekki alltaf hægt að endurheimta öll gögn Vefur Morgunblaðsins, mbl.is, lá niðri í dag í um þrjá klukkutíma í kjölfar stórfelldrar netárásar á tækniinnviði Árvakurs. Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, stjórnandi viðskiptaþróunar og meðstofnandi Defend Iceland, fyrirtækis sem sérhæfir sig í forvirku netöryggi, segir blasa við að árásin hafi verið háalvarleg og að það sé ekki alltaf hægt að endurheimta töpuð gögn. 23.6.2024 21:39
Vefurinn kominn í loftið en óvíst með blað morgundagsins Vefur Morgunblaðsins, mbl.is, er kominn aftur upp eftir að hafa legið niðri frá um fimmleytið í dag eftir stórfellda netárás sem gerð var á tölvukerfi Árvakurs. Útsendingar hafa einnig legið niðri á K100. Karl Blöndal aðstoðarritstjóri segir ekki til um hvort Morgunblaðið komi út á morgun. 23.6.2024 20:21
Eldri borgarar mótmæla gjaldtöku Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni mótmælir harðlega hugmyndum um að innheimta gjald af eldri borgurum í sundlaugum Reykjavíkurborgar. Ingibjörg Sverrisdóttir, stjórnarformaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, segir þetta bæði vera lýðheilsu- og prinsippmál. 23.6.2024 19:58