Þrjátíu og fimm kílómetrar í kjörstað Mývetningar eru margir hverjir afar ósáttir með tilætlaða framkvæmd forsetakosninga í Þingeyjarsveit. Aðeins einn kjörstaður verður í sveitinni og verður hann í Félagsheimilinu Breiðumýri nálægt Laugum. Ragnheiður Jóna Grétarsdóttir, íbúi á svæðinu segir segir fólk ekki ánægt. 25.5.2024 13:52
Ganga 111 kílómetra til styrktar börnum í Gasa Sex drengir, þeir Benjamín, Erik, Felix, Markús, Stefán og Óðinn lögðu af stað snemma í morgun í 111 kílómetra gönguferð til styrktar börnum á stríðshrjáðu Gasasvæðinu. Gangan mun taka þrjá daga. 25.5.2024 11:51
„Við munum vinna þennan slag“ Færeyingar búa við eina ströngustu löggjöf er varðar þungunarrof í Evrópu. Dönsk lög frá árinu 1956 gilda þar enn þrátt fyrir að danskar konur hafi getað síðan 1973 undirgengst þungunarrof af eigin frumkvæði til allt að tólftu viku meðgöngu. Hervør Pálsdóttir, þingflokksformaður Þjóðveldisflokksins og meðstjórnandi í samtökunum Frítt Val, frjálst val, segir núverandi lög stuðla að óöryggi og að færeyskar konur muni vinna þennan slag. 25.5.2024 10:51
Hálfri milljón yrði gert að rýma kæmi til goss Skólum hefur verið lokað og fjöldi fólks svaf í bílum sínum eða á götunni í kjölfar öflugrar skjálftahrinu nærri Campi Flegrei-eldfjallinu í nágrenni Napólíborgar. 21.5.2024 23:19
Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Magnús Davíð Norðdahl, borgarfulltrúi Pírata, segir þá fimm frambjóðendur sem búa yfir mestu fylgi í komandi forsetakosningum hafa tromp á hendi séu þeir ekki sigurvissir er nær dregur kjördegi. Ekki geti þeir allir orðið forseti en dragi eitt þeirra framboð sitt til baka og lýsi yfir stuðningi við meðframbjóðenda gæti sá hinn sami ráðið úrslitum að miklu leyti. 21.5.2024 21:41
Pétur Jökull ákærður í stóra kókaínmálinu Héraðssaksóknari gaf í dag út ákæru á hendur Pétri Jökli Jónassyni fyrir aðild að innflutningi á nærri hundrað kílóum af kókaíni til landsins fyrir tveimur árum síðan. Fjórir hafa þegar verið dæmdir í þessu svokallaða stóra kókaínmáli sem er stærsta kókaínmál Íslandssögunnar. 21.5.2024 20:26
Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Vanir flugfarþegar þekkja það að upplifa mikla ókyrrð um borð. Það getur valdið örum hæðabreytingum í flugi og veldur mörgum einnig miklum óþægindum. Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir ástæðu fyrir því að mælst sé til þess að farþegar sitji með sætisólar spenntar á meðan flugi stendur. 21.5.2024 19:54
Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum Utanríkisráðuneytið harmar það að borið hafi á skorti á kjörseðlum vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á Spáni fyrir komandi forsetakosningar á Íslandi. Uppnám varð á kjörfundi á eyjunum Tenerife og Gran Canaria í gær þegar ljóst varð að of fáir kjörseðlar hafi verið á kjörstað. 21.5.2024 17:50
Bjarni í heimsókn í Malaví Bjarni Benediktsson forsætisráðherra er í opinberri heimsókn í Malaví í tilefni af 35 ára afmæli þróunarsamvinnu ríkjanna. Hann lagði af stað fyrir helgi og stefnir á að dvelja í landinu fram á föstudag. 21.5.2024 17:19
Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Þyrlan sem hrapaði í gær með Ebrahim Raisi, forseta Írans, og Hossein Amir-Abdollahian utanríkisráðherra, var annað hvort ekki með merkissvara um borð eða að slökkt hafi verið á honum þegar slysið varð. 20.5.2024 23:39