Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 30. janúar 2026 23:16 Elon Musk og Donald Trump eru báðir nefndir margítrekað á nafn í nýjum skjölum tengdum máli barnaníðingsins Jeffrey Epstein. EPA Donald Trump Bandaríkjaforseti er nefndur á nafn mörghundruð sinnum í nýbirtum skjölum tengdum máli Jeffrey Epstein barnaníðings og auðkýfings. Röð ásakana á hendur Trump um þátttöku í glæpum Epstein bárust alríkislögreglunni, þó með þeim fyrirvara að ásakanirnar virðast hafa borist í aðdraganda forsetakosninganna 2020.
Um er að ræða lista sem gerður var innanhúss hjá alríkislögreglunni FBI í ágúst 2020, skömmu fyrir forsetakosningarnar sem Trump beið ósigur í. Listinn felur í sér ásakanir á hendur forsetanum um þátttöku í níðingsverkum Epstein í mörgum liðum en skjalið er þó búið að ritskoða þannig að ekki er nokkur leið til að sannreyna þær. Grófar ásakanir um brot gegn barnungum stúlkum Athygli hefur vakið að skömmu eftir að umgangur dagsins af gögnum málsins birtist var þetta tiltekna skjal gert óaðgengilegt á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins. Ásakanirnar sem birtast í skjalinu eru mjög ógeðfelldar. Trump er sakaður um að hafa brotið á stúlkum niður í þrettán ára aldur. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna og Hvíta húsið sömuleiðis benda á í yfirlýsingu að í skjalinu, og öðrum, birtist ásakanir sem bárust í aðdraganda forsetakosninga og að því fyrrnefnda sé skylt að birta öll þessi gögn og alríkislögreglunni sömuleiðis að halda utan um þau. „Svo því sé haldið til haga, eru ásakanirnar tilhæfulausar og rangar. Byggðu þær á snefli af sannleika hefði þeim án efa verið þegar beitt gegn Trump forseta,“ segir í yfirlýsingunni. Elon Musk talsvert nánari en vitað var Meðal skjalanna sem birtust í dag eru einnig tölvupóstar sem ýja að því að Elon Musk, auðkýfingur og fyrrverandi samstarfsmaður Bandaríkjaforseta, hafi átt talsvert nánara samband við Epstein en hann hefur viljað gangast við. Í tölvupóstum á árunum 2012 og 2013 ræddu þeir vinalega saman og skipulögðu ferð Musk til eyjunnar alræmdu Little St. James sem þó virðist sem ekkert hafi orðið af. „Verð á Bresku Jómfrúareyjum/Sankti Barts-svæðinu yfir hátíðirnar. Er hentugt að ég komi í heimsókn?“ skrifar Musk 13. desember 2013. „Hvaða dag sem er 1. til 8. Spilaðu það bara eftir eyranu. Alltaf pláss fyrir þig,“ svaraði Epstein. Þessum samskiptum fylgir röð tölvupósta fram og til baka þar sem smáatriði eru útrædd og það ákveðið að Musk komi í heimsókn 2. janúar. Að lokum segist Epstein hafa þurft að dvelja lengur í New York en til stóð og því varð ekkert úr heimsókninni. „Slæmar fréttir. Dagskráin heldur mér því miður í New York. Ég hlakkaði mikið til að fá að verja loksins tíma með þér þar sem ekkert væri fyrir stafni nema gaman. Þannig að ég er mjög svekktur. Vonandi getum við náð saman í náinni framtíð,“ skrifaði Epstein. Ekki er enn ljóst hvort slík heimsókn hafi nokkurn tímann farið fram.
Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Donald Trump Elon Musk Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Erlent Möguleiki á tuttugu stiga hita Veður Fleiri fréttir Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Sjá meira