Enn eitt jafntefli Bæjara Þriðja leikinn í röð gerðu Þýskalandsmeistarar Bayern München 1-1 jafntefli. Að þessu sinni gegn Eintracht Frankfurt á heimavelli. 28.1.2023 20:31
Son gekk frá Preston í seinni hálfleik Son Heung-Min skaut Tottenham Hotspur áfram í ensku bikarkeppninni með tveimur mörkum í síðari hálfleik þegar Spurs vann Preston North End 3-0 á útivelli. Þriðja markið skoraði nýi maðurinn Arnaut Danjuma. 28.1.2023 19:55
Martínez skaut Inter í annað sæti Heimsmeistarinn Lautaro Martínez, framherji Inter og argentíska landsliðsins, skoraði bæði mörk Inter þegar liðið kom til baka og vann 2-1 sigur á Cremonese í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. 28.1.2023 19:31
Stjarnan í humátt á eftir toppliðunum Stjarnan lagði Selfoss með fjögurra marka mun, 26-22, í Olís deild kvenna í handbolta. Sigur Stjörnunnar þýðir að liðið er þremur stigum á eftir toppliðum ÍBV og Vals. 28.1.2023 19:00
Markalaust í Íslendingaslagnum á Ítalíu | Jökull hélt hreinu Albert Guðmundsson og Hjörtur Hermannsson mættust í Serie B, næstefstu deild ítalskrar knattspyrnu í dag. Willum Þór Willumsson lék 72 mínútur í 0-2 tapi Go Ahead Eagles gegn PSV í Hollandi. Þá hélt Jökull Andrésson hreinu í endurkomu sinni hjá Exeter City í ensku C-deildinni. 28.1.2023 18:00
Pedri jók forystu Börsunga á toppnum Ungstirnið Pedri tryggði Barcelona 1-0 útisigur á Girona í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. 28.1.2023 17:16
Valur aftur á toppinn eftir sigur á Akureyri Valur gerði góða ferð til Akureyrar í Olís deild kvenna i handbolta þar sem liðið mætti KA/Þór. Leiknum lauk með þriggja marka sigri Vals, lokatölur 20-23. 28.1.2023 16:45
Bielsea vildi taka við U-21 ára liði Everton fyrst og aðalliðinu næsta sumar Marcelo Bielsa er einstakur á margan hátt. Hann var orðaður við þjálfarastöðuna hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Everton en var á endanum ekki ráðinn. Ástæðan virðist vera sú að hann vildi láta starfslið sitt taka við aðalliði félagsins á meðan hann myndi stýra U-21 ára liði Everton. 28.1.2023 09:01
„Við hefðum getað fengið miklu meira út úr leiknum“ „Mjög vonsvikinn,“ sagði Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, eftir 1-0 tap sinna manna gegn Manchester City í ensku bikarkeppninni í fótbolta. 28.1.2023 08:00
Bætti eigið Íslandsmet eftir löng og erfið meiðsli: „Líður eins og ég eigi meira inni“ Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir jafnaði Íslandsmetið á Stórmóti ÍR á dögunum og bætti síðan um betur þegar hún kom í mark á nýju Íslandsmeti, 7,35 sekúndum, í Árósum á miðvikudagskvöld. Guðbjörg Jóna segir erfiðan tíma að baki en hún var frá vegna meiðsla í 10 mánuði. 28.1.2023 07:00