Dagskráin í dag: Olís, Dominos, Sveindís Jane, Karim Benzema, gríska undrið og Joel Embiid Það er svo sannarlega nóg um að vera á Stöð 2 Sport í dag. Frábær dagskrá í allan dag enda eru alls 14 beinar útsendingar framundan. 24.4.2021 06:01
Hörð mótmæli fyrir utan Emirates-völlinn í kvöld Þó frammistaða Arsenal í 0-1 tapinu gegn Everton í kvöld hafi ekki verið upp á marga fiska voru leikmenn og forráðamenn félagsins eflaust sáttir með að reitt stuðningsfólk liðsins fékk ekki að vera í stúkunni. 23.4.2021 23:01
Íþróttamannsleg framkoma Gylfa Þórs að leik loknum Everton vann 1-0 útisigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Bernd Leno gerði sig sekan um skelfileg mistök sem tryggðu Everton stigin þrjú. Gylfi Þór Sigurðsson fór beint upp að markverðinum að leik loknum. 23.4.2021 21:30
Valgeir leikur með HK í sumar HK hefur heldur betur fengið öflugan liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Pepsi Max-deild karla. Valgeir Valgeirsson, besti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð, mun leika með uppeldisfélagi sínu í sumar. HK greindi frá þessu í kvöld. 23.4.2021 21:10
Slysalegt sjálfsmark Leno tryggði Everton sigur Everton vann 1-0 útisigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld þökk sé einkar skrautlegu sjálfsmarki þýska markvarðarins Bernd Leno. Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn í liði Everton. 23.4.2021 20:55
Alfreð byrjaði í kaflaskiptum leik Alfreð Finnbogason sneri aftur í byrjunarlið Augsburg er liðið tapaði 2-3 gegn Köln í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. 23.4.2021 20:31
Már Gunnarsson setti heimsmet Már Gunnarsson sló tæplega 30 ára gamalt heimsmet er hann synti 200 metra baksund á Íslandsmótinu í 50 metra laug í dag. Mótið fer fram í Laugardal. 23.4.2021 19:59
Silkeborg í góðum málum eftir leiki kvöldsins Íslendingalið Silkeborg og Esbjerg í dönsku B-deildinni áttu misjöfnu gengi að fagna í kvöld. Sigur Silkeborgar þýðir að liðið er í frábærri stöðu til að tryggja sér sæti í efstu deild á næstu leiktíð á meðan tap Esbjerg þýðir að liðið er að heltast úr lestinni. 23.4.2021 19:15
Häcken áfram með fullt hús stiga Häcken vann 2-0 sigur á Växjö í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í Svíþjóð í kvöld. Diljá Ýr Zomers sat allan tímann á varamannabekk Häcken. 23.4.2021 18:56
Konaté á leið til Liverpool Svo virðist sem Ibrahima Konaté, miðvörður RB Leipzig, sé við það að ganga til liðs við Englandsmeistara Liverpool. Hann mun skrifa undir fimm ára samning við félagið. 23.4.2021 18:14