Körfubolti

Á­fall fyrir Tinda­stól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls
Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls Vísir / Guðmundur

Adomas Drungilas, leikmaður Tindastóls, virtist meiðast illa í leik gegn Njarðvík í fyrstu umferð Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld.

Leiknum lauk með sigri Tindastóls í jafnari leik en margir bjuggust við. Stólarnir urðu fyrir áfalli strax í seinni hálfleik.

Drungilas meiddist í upphafi seinni hálfleiks en hann virkaði sárþjáður eftir að hafa lent illa ökklanum og var fluttur á sjúkrahús.

Adomas Drungilas í leik með TindastólAnton Brink/Vísir

„Ég held að hún sé ekki góð,“ sagði Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, aðspurður um stöðuna á Drungilas. „Ég veit að hann er uppi á sjúkrahúsi núna og við erum aðeins búnir að heyra í honum og við erum að fara núna að sjá hvernig hann er en staðan er líklega ekki góð“

Áttu von að að Drungilas verði lengi frá?

„Þetta gerðist fyrir tuttugu mínútum, ég er ekki læknir en þetta leit illa út og hann vælir ekki nema það sé eitthvað að“ sagði Arnar Guðjónsson.

Átta stiga sigur Tindastóls en Arnari fannst sitt lið, sem hefur byrjað tímabilið í ENBL deildinni í Evrópu fyrir tímabilið hér heima afar vel, ekki spila vel í kvöld.

„Njarðvíkingar börðu sig inn í leikinn og við vorum svolítið litlir í okkur í fyrri hálfleik þegar þeir juku pressuna. Við byrjuðum rosalega fínt, hittum úr nokkrum skotum og þá leið okkur vel en þetta var svolítið innantómt og við vorum ekkert að spila af miklum krafti“

„Við byrjum seinni hálfleikinn mjög vel en svo riðlast þetta svolítið mikið þegar Adomas [Drungilas] meiðist og Ragnar villar útaf. Þá erum við komnir í svolítið öðruvísi hluti“

„Gott þegar þú lendir í svona miklu veseni að ná að landa sigri“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×