Leikplanið var að sækja hratt á Liverpool Þýski miðjumaðurinn Toni Kroos var allt í öllu er Real Madrid vann 3-1 sigur á Liverpool í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Hann sagði Real hafa lagt upp með að sækja hratt á Liverpool þegar tækifæri gáfust. 7.4.2021 17:01
Segir að svekkelsið sé farið að segja til sín hjá Tiger sem missir af Masters Masters-mótið í golfi hefst á morgun, fimmtudag. Mótsins er beðið með mikilli eftirvæntingu en eitt stærsta nafn golfheimsins, Tiger Woods, verður ekki með vegna meiðsla sem hann hlaut í bílslysi fyrr á árinu. 7.4.2021 15:00
Mun óvænt hetja PSG frá síðustu leiktíð bíta liðið í rassinn í kvöld? Í kvöld mætast Evrópumeistarar Bayern og Paris Saint-Germain í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Liðin mættust í úrslitum á síðustu leiktíð þar sem Bayern hafði betur 1-0 þökk sé marki Kingsley Coman. 7.4.2021 14:00
Guardiola og De Bruyne framlengja Manchester City tilkynnti nú rétt í þessu að Pep Guardiola og Kevin De Bruyne hafi skrifað undir framlengingar á samningum sínum. Pep verður hjá félaginu til 2023 en De Bruyne til 2025. 7.4.2021 12:30
Manchester City tapaði 126 milljónum punda á síðustu leiktíð Enska knattspyrnufélagið Manchester City hefur gefið út að félagið hafi tapað 126 milljónum punda á síðustu leiktíð. Gerir það rúma 22 milljarða íslenskra króna. Þar spilar kórónuveirufaraldurinn sinn þátt. 7.4.2021 10:31
Segir mömmu vera fyrirmyndina þó hún hafi ekki verið fræg NBA-stjarna líkt og pabbi sinn Trinity Rodman, dóttir Dennis Rodman, segir að móðir sín sé hennar helsta fyrirmynd þó hún hafi ekki spilað í NBA-deildinni í körfubolta líkt og faðir hennar. 7.4.2021 09:30
Juventus án lykilmanna gegn Napoli Ítalíumeistarar Juventus verða án þriggja lykilmanna er Napoli kemur í heimsókn á Allianz-völlinn í dag. Federico Bernardeschi greindist með Covid-19 í gær og missir því af leik dagsins líkt og varnarmennirnir Leonardo Bonucci og Merith Demiral. 7.4.2021 09:01
Spennt að sjá hvað Sveindís Jane hefur fram að færa Það styttist í að sænska úrvalsdeildin í knattspyrnu fari af stað og það er ljóst að sparkspekingar þar í landi geta vart beðið eftir að sjá Sveindísi Jane Jónsdóttur spila sinn fyrsta leik í deildinni. 7.4.2021 07:00
Dagskráin í dag: Stórleikur Bayern og PSG, Meistaradeildarmörkin ásamt risaleik á Ítalíu Það er nóg um að vera á Stöð 2 Sport í dag. Við sýnum að sjálfsögðu frá 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu og þá er risaleikur í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. 7.4.2021 06:01
Leikmenn Tottenham við það að gefast upp á Mourinho Ummæli José Mourinho eftir 2-2 jafntefli Tottenham Hotspur gegn Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á sunnudag féllu í grýttan jarðveg hjá leikmönnum liðsins. Eru margir þeirra búnir að fá nóg af hegðun þjálfarans. 6.4.2021 23:00