Kjartan Henry frá næstu þrjár til fjórar vikurnar Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður danska knattspyrnuliðsins Esbjerg, verður frá næstu 3-4 vikurnar. Það er högg fyrir liðið sem er í harðri baráttu um að komast upp í dönsku úrvalsdeildina. 4.4.2021 11:01
Sjáðu ótrúlega sigurkörfu Gonzaga sem á enn möguleika á hinu fullkomna tímabili Gonzaga Bulldogs er komið í úrslitaleik marsfársins í körfubolta. Flautukarfa Jalen Suggs sem tryggði Gonzaga sigur gegn UCLA í framlengdum leik var ekkert annað en stórkostleg, hana má sjá hér að neðan ásamt öllu því helsta úr leiknum. 4.4.2021 10:01
Naumur sigur Bucks og fjöldi stórsigra í nótt Alls fóru átta leikir fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Milwaukee Bucks vann nauman eins stigs sigur á Sacramento Kings, 129-128. Þá unnu Utah Jazz, Portland Trail Blazers, New York Knicks og Dallas Mavericks öll stórsigra. 4.4.2021 09:15
Chelsea spilaði illa af því við spiluðum vel Sam Allardyce var eðlilega sáttur með frammistöðu sinna manna í West Bromwich Albion eftir að liðið vann frækinn 5-2 útisigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag. 3.4.2021 16:30
Tíu íslensk mörk er Kristianstad tryggði sér sæti í undanúrslitum Alls litu tíu íslensk mörk dagsins ljós í sex marka sigri Kristianstad á Malmö er Íslendingaliðið tryggði sér sæti í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar, lokatölur 34-28. 3.4.2021 15:50
Vonir Dortmund um Meistaradeildarsæti fara dvínandi Það stefnir í að Borussia Dortmund verði ekki í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Liðið tapaði 2-1 á heimavelli fyrir Eintracht Frankfurt í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. 3.4.2021 15:30
Atalanta og Napoli með mikilvæga sigra Það var mikil spenna í leikjum dagsins sem nú eru búnir í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Atalanta og Napoli unnu bæði mikilvæga sigra í baráttunni um Meistaradeildarsæti. 3.4.2021 15:15
Fimm mörk á hálftíma tryggðu West Ham fyrsta sigur ársins Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn er West Ham United vann ótrúlegan 5-0 sigur á Reading í ensku úrvalsdeildinni í dag. Er þetta fyrsti sigur West Ham í deildinni á þessu ári. 3.4.2021 15:01
Enn tapar Le Havre Íslendingalið Le Havre tapaði enn einum leiknum í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og fátt virðist geta komið í veg fyrir að liðið falli úr efstu deild. Í dag tapaði liðið 2-0 á heimavelli fyrir Dijon. 3.4.2021 14:31
Markvörðurinn lagði upp er WBA vann einkar óvæntan sigur á Brúnni West Bromwich Albion vann einkar óvæntan, en magnaðan, 5-2 útisigur á Chelsea í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Thomas Tuchel hafði stýrt Chelsea í 14 leikjum án ósigurs fyrir leik dagsins. 3.4.2021 13:30