Atlético komið með sjö stiga forystu á toppnum Atlético Madrid kom til baka gegn Valencia og vann 3-1 sigur er liðin mættust í spænsku úrvalsdeildinni. Lærisveinar Diego Simeone eru þar af leiðandi komnir með sjö stiga forystu á toppi La Liga. 24.1.2021 23:00
Svíar og Frakkar ósigraðir inn í átta liða úrslit | Heimamenn áfram eftir jafntefli gegn Slóveníu Frakkar fara með fullt hús stiga inn í 8-liða úrslit HM í handbolta eftir stórsigur á Portúgal í kvöld. Svíar jörðuðu Rússa og fara áfram án þess að tapa leik og þá komust heimamenn í Egyptalandi áfram í 8-liða eftir jafntefli gegn Slóveníu. 24.1.2021 21:44
Solskjær ánægður með að Man Utd hafi loks unnið á eigin forsendum Ole Gunnar Solskjær var hæstánægður með 3-2 sigur sinna manna gegn Liverpool í FA-bikarnum í dag. 24.1.2021 21:15
Martin spilaði lítið er Valencia vann tíunda leikinn í röð Valencia vann stórsigur á Baskonia í spænsku úrvalsdeildinni í köfurbolta í kvöld. Martin Hermannsson skoraði fimm stig á tíu mínútum í þægilegum 83-61 sigri Valencia. 24.1.2021 20:31
Sverrir Ingi spilaði allan leikinn og nældi sér í gult spjald gegn AEK Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn er PAOK gerði 2-2 jafntefli við AEK Aþenu í grísku úrvalsdeildinni. Fyrr í dag vann topplið Olympiacos 0-1 útisigur á Atromitos Aþenu, Ögmundur Kristinsson var ekki í leikmannahópi toppliðsins. 24.1.2021 20:00
Liverpool aðeins einu sinni komist í 16-liða úrslit FA-bikarsins síðan Klopp tók við Englandsmeistarar Liverpool töpuðu 3-2 gegn Manchester United í fjórðu umferð FA-bikarsins [32-liða úrslitum] í dag. Það þýðir að Liverpool hefur aðeins einu sinni komist í 16-liða úrslit keppninnar á þeim sex árum sem Jürgen Klopp hefur stýrt liðinu. 24.1.2021 20:00
Bruno Fernandes skaut Man United áfram | Sjáðu mörkin Manchester United vann 3-2 sigur á erkifjendum sínum í Liverpool er liðin mættust á Old Trafford í 4. umferð FA-bikarsins í dag. Varamaðurinn Bruno Fernandes reyndist hetja heimamanna í mögnuðum fótboltaleik. 24.1.2021 19:00
Albert lagði upp í mikilvægum sigri AZ AZ Alkmaar hafði sætaskipti við Feyenoord í hollensku úrvalsdeildinni eftir 3-2 sigur AZ í leik liðanna í dag. Albert Guðmundsson lagði upp fyrsta mark AZ í leiknum. 24.1.2021 17:51
De Jong allt í öllu er Barcelona komst nær toppliðunum Barcelona vann 0-2 útisigur á Elche í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Hollenski miðjumaðurinn Frenkie De Jong skoraði fyrra markið og lagði upp það seinna. 24.1.2021 17:15
„Staðreyndir og rök halda en ekki tilfinningar“ Sérfræðingar HM stofu RÚV svöruðu gagnrýnni Guðmundar Guðmundssonar, landsliðsþjálfara eftir tapleikinn gegn Frakklandi. Þeir segja að rök og staðreyndir haldi en ekki tilfinningar. 24.1.2021 16:59