Halda vart vatni yfir ungstirninu í Þorlákshöfn Hinn 19 ára gamli Styrmir Snær Þrastarson hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína með Þór Þorlákshöfn í Dominos-deild karla í vetur. 24.1.2021 08:01
Dagskráin í dag: Stórleikur á Old Trafford, undanúrslit í NFL-deildinni og fjöldi leikja hér heima Það er nóg um að vera í dag. Stórveldaslagur í enska FA-bikarnum, undanúrslit NFL-deildarinnar ásamt fjöldi leikja í hand- og körfubolta. Alls eru 16 beinar útsendingar á dagskrá Stöðvar 2 Sport í dag. 24.1.2021 06:01
Segir skrokkinn í góðum málum og leikina gegn Njarðvík alltaf með þeim erfiðari Dominykas Milka fór mikinn er Keflavík vann nágranna sína í Njarðvík í Dominos-deild karla í körfubolta á föstudagskvöld, lokatölur 90-77. Milka skoraði 32 stig og tók 17 fráköst. Hann var því eðlilega kampakátur er hann ræddi við Dominos Körfuboltakvöld að leik loknum. 23.1.2021 23:01
Newcastle sogast nær fallsætunum eftir tap á Villa Park Aston Villa vann 2-0 sigur á Newcastle United í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. 23.1.2021 22:30
Tryggvi spilaði vel í stórsigri | Elvar og Jón Axel áttu góða leiki þrátt fyrir töp Þrír íslenskir landsliðsmenn í körfubolta voru í eldlínunni í dag. Tryggvi Snær Hlinason lék vel í sigri Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni. Elvar Már Friðriksson skoraði 16 stig og Jón Axel Guðmundsson gerði 15 stig en báðir máttu þola tap. 23.1.2021 21:44
Danir bókuðu sæti í 8-liða úrslitum og Þýskaland vann Brasilíu Tveir íslenskir þjálfarar voru í eldlínunni í síðustu tveimur leikjum dagsins á HM í handbolta. Dagur Sigurðsson horfði á Dani tryggja sér sæti í átta liða úrslitum mótsins á meðan Alfreð Gíslason stýrði Þjóðverjum til sigurs. 23.1.2021 21:16
Sagði upp í beinni útsendingu Lino Cervar, þjálfari króatíska landsliðsins í handbolta, sagði af sér í beinni útsendingu eftir óvænt fjögurra marka tap gegn Argentínu í dag. 23.1.2021 20:45
Keflavík með fullt hús stiga eftir sigur á Val Keflavík vann fjögurra stiga sigur á Val í Dominos-deild kvenna í kvöld, 87-83. Keflavík er á toppi deildarinnar með fimm sigra í fimm leikjum. 23.1.2021 20:15
Man City áfram eftir torsóttan sigur á Celtenham Town Manchester City vann 3-1 sigur á Cheltenham Town í enska FA-bikarnum í síðasta leik dagsins. Öll mörk City komu á síðustu níu mínútum leiksins. 23.1.2021 19:50
Góður síðari hálfleikur tryggði Haukum sigur Haukar unnu HK með sex marka mun í Olís-deild kvenna í handbolta í dag. Lokatölur að Ásvöllum 27-21. 23.1.2021 19:47