Enginn Martial né Cavani í leikmannahóp Man Utd fyrir leikinn mikilvæga í kvöld Manchester United mætir RB Leipzig í Þýskalandi í leik sem sker úr um hvort liðið kemst áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Man United má ekki tapa leiknum en jafntefli dugir þeim áfram. 8.12.2020 07:00
Dagskráin í dag: Kemst Man Utd í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar? Segja má að Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu eigi hug okkar allan í dag. Síðasta umferð riðlakeppninnar fer fram í dag og mætast RB Leipzig og Manchester United í úrslitaleik um sæti í 16-liða úrslitum. 8.12.2020 06:01
Viggó valinn leikmaður mánaðarins í Þýskalandi Viggó Kristjánsson, leikmaður Stuttgart, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta var í dag valinn besti leikmaður nóvembermánaðar. 7.12.2020 23:00
Búið að sparka þjálfara Birkis og Hólmberts hjá Brescia Brescia, lið Birkis Bjarnasonar og Hólmberts Arons Friðjónssonar í ítölsku B-deildinni, hefur ákveðið að reka þjálfara sinn, Diego López. Entist hann aðeins tvö mánuði í starfi. 7.12.2020 22:31
Kristian kom inn í sínum fyrsta leik og Elías Már lék allan leikinn í tapi Hinn 16 ára gamli Kristian Hlynsson kom inn af varamannabekk varaliðs Ajax í fyrsta sinn í kvöld er liðið gerði jafntefli í hollensku B-deildinni. Elías Már Ómarsson lék allan leikinn er Excelsior tapaði á heimavelli fyrir Volendam. 7.12.2020 22:15
Ings skaut Southampton upp í fimmta sætið Southampton vann Brighton & Hove Albion í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 2-1 en Danny Ings skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á 81. mínútu leiksins. 7.12.2020 21:55
Guðni segir að Ísland stefni á annað efstu sætanna Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segir sambandið og íslenska landsliðið verða að stefna á annað efstu sætanna í undankeppni HM í knattspyrnu. Þetta kom fram í viðtali Guðna við íþróttavef mbl.is fyrr í kvöld. 7.12.2020 21:36
Noregur og Rússland komin áfram með fullt hús stiga Noregur og Rússland flugu upp úr riðlakeppni Evrópumóts kvenna í handbolta með öruggum sigrum í síðustu leikjum sínum í riðlakeppninni í kvöld. Tveir Íslendingar voru í eldlínunni í kvöld. 7.12.2020 21:21
Umboðsmaður Pogba segir miðjumanninn óhamingjusaman og að hann þurfi að komast frá Manchester Mino Raiola, umboðsmaður Paul Pogba, segir að miðjumaðurinn sé óhamingjusamur og þurfi að yfirgefa Manchester United hið snarasta. 7.12.2020 20:31
Jón Dagur í byrjunarliði er AGF lagði Bröndby AGF vann góðan 3-1 sigur á Bröndby í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Alls komu tveir íslenskir landsliðsmenn við sögu. Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði AGF á meðan Hjörtur Hermannsson kom inn af varamannabekk Bröndby í hálfleik. 7.12.2020 20:00