Stúlka lést þegar hola í sandi féll saman Sjö ára stúlka lét lífið og níu ára bróðir hennar slasaðist þegar hola sem þau voru að grafa á strönd í Flórída féll saman í gær. Fjöldi fólks reyndi að grafa stúlkuna upp með höndunum en holan féll sífellt aftur saman. 22.2.2024 11:56
Leki varpar ljósi á tíðar tölvuárásir Kínverja Kínverskir hakkarahópar, sem tengjast yfirvöldum í Peking, beita umfangsmiklum tölvuárásum gegn erlendum ríkisstjórnum, fyrirtækjum og gegn innviðum í öðrum ríkjum. Hakkararnir notast við galla á kerfum fyrirtækja eins og Microsoft, Apple og Google. 22.2.2024 10:48
Föruneytið nálgast endalokin Föruneyti Pingsins nálgast nú endalokin í Baldur's Gate 3. Spurningin er hvort þeim muni takast að bjarga heiminum frá glötun. 21.2.2024 19:30
Felldu tugi hermanna með HIMARS Úkraínumenn eru sagðir hafa fellt tugi rússneskra hermanna með HIMARS árás á þjálfunarstað í austurhluta Úkraínu. Myndefni af vettvangi sýnir fjölda líka á víð og dreif. 21.2.2024 16:00
Biden situr á digrum sjóðum en Trump ver fúlgum í lögmenn Donald Trump og Nikki Haley eyddu bæði miklum fjármunum í kosningabaráttu þeirra í janúar. Trump varði einnig milljónum dala í lögfræðikostnað en hann stendur meðal annars frammi fyrir 91 ákærulið í fjórum mismunandi málum auk annarra lögsókna. Joe Biden á töluvert meira í sjóðum sínum en Trump. 21.2.2024 14:51
Austur-Kongó og Rúanda á „barmi styrjaldar“ Hundruð þúsunda hafa þurft að flýja undan sífellt harðnandi átökum milli hers Austur-Kongó og M23 uppreisnarmanna í austurhluta Kongó. Uppreisnarmennirnir hafa barist gegn hernum í áratugi, með stuðningi yfirvalda í Rúanda, en líkur á almennu stríði milli Kongó og Rúanda hafa aukist verulega. 21.2.2024 13:33
Lyginn uppljóstrari í samskiptum við rússneska embættismenn Fyrrverandi uppljóstrari Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) sem sakaður er um að hafa logið um það að Joe Biden, forseti, og sonur hans Hunter hafi tekið við mútum segist hafa átt í samskiptum við útsendara frá rússneskri leyniþjónustu. Saksóknarar lýsa honum sem raðlygara sem geti ekki sagt satt um grunnatriði um eigið líf. 21.2.2024 10:45
Saka Rússa um að myrða særða stríðsfanga í Avdívka Rússneskir hermenn hafa verið sakaðir um að taka særða úkraínska hermenn af lífi í borginni Avdívka í austurhluta Úkraínu. Mennirnir voru skildir eftir þegar úkraínski herinn yfirgaf borgina en forsvarsmenn hersins segja að samið hafi verið við Rússa um að hlúa að mönnunum, þar sem ekki var hægt að flytja þá á brott vegna meiðsla þeirra. 20.2.2024 17:02
Hættir við málsókn gegn ríkinu vegna aðgengi að Grindavík Maður sem höfðað mál á hendur íslenska ríkinu vegna lokunar Grindavíkur hefur hætt við. Stefán Kristjánsson, forstjóri og eigandi fiskvinnslufyrirtækisins, hætti við þar sem búið er að opna á aðgengi fólks að bænum. 20.2.2024 15:12
Heiðraði fangelsismálastjóra Rússlands Vladimír Pútín, forseti Rússlands, heiðraði í gær Valerí Bojarínev, fangelsismálastjóra Rússlands, með því að hækka hann í tign. Bojarínev er nú undirherforingi en Pútín skrifaði undir stöðuhækkunina þann 19. febrúar, þremur dögum eftir að Alexei Navalní dó í fanganýlendu í Síberíu. 20.2.2024 14:13