Fyrsta apótek Víkur opnað Íbúar Mýrdalshrepps hafa eignast sitt fyrsta apótek sem verður rekið undir vörumerki Apótekarans. Það mun bjóða upp á alhliða lyfja- og heilbrigðisþjónustu ásamt fjölbreyttu úrvali af vörum. 28.7.2026 21:03
Mjólkurhvít mengun í Sauðá Mengun hefur borist í Sauðá og hefur áin hefur tekið á sig mjólkurhvítan blæ. Ekki er vitað hvaðan mengunin kemur. 28.7.2026 19:25
Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Festi hf. hefur birt afkomu sína á öðrum ársfjórðungi en félagið rekur meðal annars Krónuna, N1, Lyfju og Elko. Aukning var í vörusölu milli ára og hagnaður varð af rekstrinum upp á tæpa 1,3 milljarða. Hækkandi heimsmarkaðsverð olíu virðist hafa áhrif á rekstrarárið 2026 en afkomuspá EBITDA fyrir árið hefur verið lækkuð um 500 milljónir. 28.7.2026 18:49
Skelfur við Landmannalaugar Skjálfti 2,9 að stærð varð norðarlega í Torfajökulsösku, skammt frá Landmannalaugum, klukkan 16:57. Í kjölfarið hafa fylgt örfáir eftirskjálftar. 28.7.2026 18:19
„Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fríða Björk Gunnarsdóttir segir farir sínar ekki sléttar eftir að hafa lent á Keflavíkurflugvelli í morgun en miklar tafir voru á flugvellinum. „Ég hef aldrei lent í öðru eins. Mér leið eins og ég væri í réttum nema að ég var kindin, ekki smalinn,“ segir Fríða. 24.7.2026 17:42
Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. greina frá því í tilkynningu að farþegum Strætó muni nú vera birtar rauntímaupplýsingar um komutíma strætisvagna af meiri nákvæmni. 24.7.2026 12:12
Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Varað er við hviðum allt að þrjátíu metrum á sekúndu í vindstrengjum frá því seint í kvöld fram á hádegi á morgun á landinu suðaustanverðu. 24.7.2026 11:50
Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Matvælastofnun (MAST) telur nauðsynlegt að bregðast við og koma á framfæri skýringum vegna meintra annmarka á skráningu eftirlitsgagna vegna hvalveiða. Vísir birti fyrr í dag frétt upp úr yfirlýsingu Hvalavina, samtaka sem berjast gegn hvalveiðum. 23.7.2026 17:40
Laun hækka umfram verðbólgu Hagstofan hefur birt tölur fyrir júnímánuð og hækkaði launavísitala um 0,2 prósent frá fyrri mánuði. Greint var frá því fyrr í morgun að verðbólga hækki milli mánaða en hún mælist nú 5,3 prósent á ársgrundvelli. 23.7.2026 14:36
Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Air China hefur hafið sölu á flugferðum frá Keflavík til Peking, höfuðborgar Kína. Jómfrúarflugið verður 26. október næstkomandi en Air China er eitt stærsta flugfélag heims og ríkisflugfélag Kína. 23.7.2026 12:00