Fréttamaður

Sigurgeir Þorkelsson

Sigurgeir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðar­línuna

Neyðarlínan hefur kynnt varanúmerið 599-0112 ef ekki næst í 112. Vakin er athygli á því í tilkynningu að símtöl í þetta númer séu höndluð sem almenn símtöl og njóti ekki sama forgangs og ef hringt sé beint í 112. Því sé mikilvægt að hringja enn fyrst í 112. 

Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum

Hvalavinir segja eftirlitsskýrslur Matvælastofnunar (MAST) vegna hvalveiða sýna að langdregin dauðastríð dýranna séu enn algeng. Þá séu annmarkar á skráningu eftirlitsgagna. Opinberar skýrslur séu aðeins tuttugu og ein á meðan veidd dýr séu tuttugu og fjögur.

Að­eins 50 hafa nýtt sér með­eignarúrræðið: „Þetta eru fimm­tíu sem hafa komist í eigið hús­næði“

Fram til þessa hefur 44 kaupsamningum verið þinglýst þar sem notað er svokallað sameignarfyrirkomulag. Fyrirkomulagið hafur nú verið til staðar í tíu mánuði en HMS segir að útbreiðsla þess sé enn takmörkuð. Sjóðir sem buðu upp á slíkt sameignarfyrirkomulag spruttu upp eins og gorkúlur síðasta haust og báru heiti eins og SAFÍR20, REIR20, Kauplykill og ÞG Sjóður.

Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu

Samruni Paramount-Skydance og Warner Bros Discovery hefur verið settur á bið í tvær vikur samkvæmt úrskurði alríkisdómara í Bandaríkjunum. Ástæðan er málsókn tólf ríkissaksóknara sem vilja koma í veg fyrir hann.

Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni

Maður er sakaður um að hafa slegið Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra breska Íhaldsflokksins, alls tuttugu og einu sinni með hamri í höfuðið. Widdecombe hafði síðustu ár verið áberandi meðlimur hins breska Umbótaflokks (e. Reform).

Fyrrum bæjar­stjóri og banka­stjóri leiða stjórn Land­spítalans

Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað stjórn Landspítala til næstu tveggja ára. Formaður nýrrar stjórnar er Regína Ásvaldsdóttir, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Varaformaður verður Birna Einarsdóttir, áður bankastjóri Íslandsbanka árin 2008 til 2023.

Á­fram lækkar í­búða­verð að raun­virði

HMS hefur birt vísitölu íbúðaverðs fyrir júní. Vísitalan hækkaði um 0,09% á milli mánaða eftir að hafa lækkað um 0,44% á milli mánaða í maí og staðið í stað í apríl.

Fleiri færðu lög­heimili í ár

Þjóðskrá hefur birt tölur um skráða flutninga fyrir júnímánuð. Alls fluttu 5284 einstaklingar lögheimili sitt í mánuðinum sem eru átta prósentum fleiri en í júnímánuði síðasta árs.

Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi

Ferju á vegum hins opinbera hvolfdi undan ströndum Gvæjana. Farþegar voru hundrað og sextán og í áhöfn voru sautján. Staðfest hefur verið að sextíu og sjö hafi verið bjargað en fjölda manns er enn saknað.

Sjá meira