Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Forstöðumaður Miðstöðvar slysavarna barna segir það algengt að leita þurfi með börn á bráðamóttöku eftir að þau hafi innbyrt nikótínpúða. Börn allt að níu ára prófi að stinga slíku upp í sig. 11.9.2026 08:18
Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Fimm eru látnir og 67 særðir eftir að rússneskur dróni hæfði verslunarmiðstöð í Úkraínu. Töluvert af almennum borgurum var á svæðinu. 11.9.2026 07:47
25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Undanfarnar vikur hafa ýmsar frásagnir Donalds Trump Bandaríkjaforseta um hvar hann var staddur 11. september árið 2001 dregnar fram. Aldarfjórðungur er liðinn frá því að tveimur flugvélum var flogið á Tvíburaturnana í New York-borg með þeim afleiðingum að turnarnir féllu. Tæplega þrjú þúsund létust í árásinni. 11.9.2026 07:02
Vætusamt veður í kortunum Breytilegar áttir og vætusamt veður eru í kortunum samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. Hitinn í dag verður á milli sex og þrettán stig. 11.9.2026 06:57
Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um innbrot og að meintur innbrotsþjófur væri enn inni í húsnæðinu. Þegar lögregluna bar að garði og hún fannmeintan þjóf reyndist hann vera starfsmaður öryggisfyrirtækis. 11.9.2026 06:52
Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Íþróttamiðstöð Urriðaholtsskóla var formlega opnuð í dag og þar með ný sundlaug. Um er að ræða fyrstu sundlaugina í Urriðaholti. 10.9.2026 10:52
Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Staða hjúkrunarheimila á landinu hefur batnað til muna að mati forstjóra Heilsuverndar en þó er enn langt í land. Eitt vandamálanna sé skortur á mannskap en litið er til tæknilausna á við gervigreind til að leysa þann vanda að hluta. 10.9.2026 08:30
Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist ætla að gefa öllum fullorðnum Bandaríkjamönnum fimm þúsund dollara ef repúblikanar bera sigur úr býtum í báðum deildum þingsins. Kosningarnar fara fram í nóvember. 10.9.2026 07:30
Áfram rigning og lægðagangur Lægðagangur verður umhverfis landið næstu daga og gera spár ráð fyrir breytilegum vindum og vætusömu veðri samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. 10.9.2026 06:49
Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Meðalhitastigið í ágúst var það hæsta sem mælst hefur, jafn hátt og í júlí 2023, samkvæmt loftslagsþjónustu Evrópusambandsins. Nýafstaðið sumar var það hlýjasta í Vestur-Evrópu. 10.9.2026 06:45